Frækorn - 16.04.1902, Síða 4

Frækorn - 16.04.1902, Síða 4
44 Ekkert athvarf heima. — o — Eg mætti honum við götuhornið, — Ijóshærðum, döggeygum dreng, á að giska á 14. ári. Eg var bú nn að sjá hann þar hvert kvöldið eftir annað og var farinn að furða mig á þvf, að hann skyldi vera látinn veraþarna alltaf, þar sem svo marg- ar freistingar gátu orðið á vegi hans. Eg gaf mig á tal við hann; við urðum brátt góðir vinir, og hann fór að segja mér af högum sínum. Eg spurði hann vingjarniega, hvers vegna hann væri svona oft timunurr. saman úti á göt- unni. Hann horfði á mig svo hreinskilnis- legur og geðþekkur á svipinn, og eg sannfærðist um, að hjarta hans væri óspillt og götugt. «Eg veit það« sagði hann, »að gatan er ekki hentugasti staðurinn fyrir drengi á mínum aldri, en, sjáið þér, að heima er mér allstaðar otaukið.« »Hvernig þá?« spurði eg. »Jú, eg á tvær fullorðnar systur, og þær halda samkvæmi í beztu stofunni á hverju kvöldi, og eg hef komist að því hjá þeim, að þær vilja helzt, að eg komi þar ekki nærri. Pabbi er alltaf svo þreytlur, þegar hann er heima, og vill þessvegna hvíla sig f næði í daglegu stofunni. Mér finnst tíminn svo langur og leiðinlegur, og þessvegna kem eg hingað út á götuna. En það hefur ekki ætfð verið svona«, bætti hann við, »því meðan amma mín lifði, þá fór eg alltaf upp á herbergið til hennar og þar fór svo vel um mig. Amma mín var svo góð við mig.« Rödd hans skalf og bar vott um sár- an söknuð, sem tíminn hafði enn ekki getað læknað. »En hún mamma þín?« spurði eg. »Ó, hún mamma ! hún er stöðugt önn- um kafin við einhver góðgerða- og sið- bótastörf og hefur engan tíma afgangs til þess að sinna um mig. Hún heim- sækir hælisleysingjana og fangana í fang- elsunum, til þess að teija um fyrir þeim og leiða þá á betri veg, og svo skrifar hún ritgjörðir og ráðleggingar um það, hvernig umkomulausu börnunum verði hjálpað.« »Og hennar eigið barn í hættu statt!« »Já, eg er orðinn miklu verri, en eg var, á meðan amma mín lifði. Eg er hræddur um, að eg sé farinn að verða kærulítill og ósiðlátur. En það er eng- inn, sem hirðir neitt um mig eða þykir vænt um mig, svo það gerir víst hvorki til né frá«. Það var sár og bitur sannleiknr; og því miður var mér það ljóst, að það voru margir fleiri en þessi drengur, sem þörfn- uðust vingjai nlegrar handleiðslu á hinum villigjarna og hættulega vegi. O, þér mæður! vakið um fram allt yfir gæfu barna yðar. Gjörið heimilin að sólbjartasta blettinum á jörðunni fyrir börn yðar. Takið þátt í gleði þeirra og leikum og gjörið yður ungar í anda þeirra vegna. Eg held að eg hafi aldrei heyrt neitt hryggilegra og sorglegra en þessi orð drengsins: »Mér var alstaðar ofaukið heima.« Guð fyrirgefi móður hans og opni augu hennar, áður en það er um seinan, og hjálpi öðrum mæðrum til að læra af þessu dæmi! Hvernig cr því varið, mæður? Eru drengir yðar í hættu ? Hugsið um þetfa og hafið vakandi auga á börnunum. Á. — Herold. Finnar. — o — Finnska þjóð'n verður eigi talin með- al þeirra þjóða, er gæfan hefur borið á höndum sér til vegs og frama, þar sem hún fyrst og fremst hefur orðið að heyja stríð við óblíðu náttúrunnar og í annan stað einatt átt í vök að verjast fyrir út- lendum árásum og yfirgangi þcirra, er hafa viljað kúga hana og svifta hana frelsi. Þjóðin hefur þannig ýmist verið undir- okuð af útlendu vaidi, byggðir brendar og ræntar af óvinum eða landinu skift sem herfangi milli þeirra, er hærri hlut báru í þann og þann svipinn. Finnland liggur álíka norðarlega á hnettinum eins og Island. Ibúarnir eiga því, eins. og vér, hörðum óvini að mæta, þar sem er frost og vetrahörkur. Jarð- vegurinn er þar grýttur og ófrjósamur;

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.