Frækorn - 16.04.1902, Blaðsíða 7
47
lcggiir drottinn líkn með þraut
Ijúft af gæzku sinni.
Eg vil halla hans í skaut
höfði’ í angist minni
mun hann aila mína þraut
mýkja’ af gæzku sinni. J. D.
t Magnús Sigurðsson.
í fyrra sumar, 17 julí, drukknaði hér í
Seyðisfirði Magnús Sigurðsson frá Dverga-
steini. Þar sem hans hefir ekki verið getið
opinberlega, þá vildi jeg hér með fara fáum
orðum um hann.
Magnús sál. var sonur Sigurðar Stefánsson-
ar og Sigurlaugar Magnúsdóttir hjóna að
Heyskálum í Hjaltastaðaþinghá
Frá því fyrst, að Goodtemplarastúkan Gefn
var stofnuð hér á Vestdalseyri, var Magnús
sál. meðlimur hennar, og jafnvel þó lítið b'-eri
á honum útifrá hvað regluna snerti, var hann
sannur bindindismaður og hvata og stuðnings-
maður margra framfaramála stúku sinnar, svo
sem stofnun sjúkrasjóðs hennar og ýmsra fleiri.
A meðan hann bjó hér nálægt, sótti hann
miög vel fundi, sem er sönnun fyrir áhuga á
málefninu og vilja til að vinna þvígagn;kom
hann þar jafnan fram með lipurð og prúð-
mennsku, eins og í hversdagslífinu yfir höfuð.
En það var með Mágnús sál. eins og marga
fleiri, að erfiðar kringumstæður hölmúðu hon-
um frá að geta unnið reglunni, og mannfélag-
inu yfir höfuð, það gagn, sem hann hafði vilja
og hæfilegleika til, því þegar fátæktin er á
aðra hönd, heimtar umhyggjan fyrir heimilinu
óskifta krafta.
t fám orðum má segja um hann, að hann
var stiltur og dagfarsgóður, alúðlegur í við-
móti og yfir höfuð prúður í allri framgöngu,
og munu allir, sem þekktu hann, minnast hans
með hlýjum huga, en ekki sízt vér reglusystkyn
hans.
Magnús sál. var kvæntur Stefaníu Ketilsd.,
sem lifir mann sinn ásamt tveim uppkoninum
börnum þeirra. Fyrir nokkrum árum misstu
þau hjón dótturá barnsaldri, mjög skemmtilega
og mannvænlega, sem þau syrgðu mjög. Tók
Magnús sál. missir þennan sér svo nærri, að
hann hefur harmað hana til hins síðasta, enda
var hann ástríkur og umhyggjusamur faðir,
sem eftirlitandi börn og ekkja munu harma og
minnast með ást og virðingu.
Með þoigæði vannstu ; vér þökkum hvert starf,
þjóðinni blessun er færir,
fegursta dæmi þú fékkst oss í arl,
er framsóknarkraftana nærir.
Þó gröfin þig hylji og hjartað sé kalt
og hðndin þin framar ei vinni:
glaðir í minningu geymum vér allt
hið góða úr tilveru þinni.
(Einn af reglubræðrum hins látna.)
Fréttabálkur
Þráðlaus firðritun. Marconi hefir nú sent
út skýrslu um firðritun sína. Hún kom út í
Lundúnum. í>ráðlaus flrðritun er nú stöðugt
og reglulega rekin á 25 stöðvum í ýmsum
heimsálfum, og auk þess hagnýtt á 38 herskip-
um og 25 verzlunarskipum. — Yfir Atlants-
haf sendir hann nú á þennan hátt 25 orð á
minútunni, þ. e. jafnmörg og send verða með
síma. Hann segist engan kvíðboga bera
fyrir því. að veðrátta eða loftbreytingar getr
valdið sér neinum tálma. Og örugt segir
hann það, að auðvelt sé að varna því, að neinn
geti komist að orðsendingunum annar en
viðtökustöðin rétta. Fyrir orðsendingarnar
megi taka 45 au. fyrir orðið (í stað 90 au.
með ritsímanum). (Eetta er tekið eftir
Björgvinarblaði 19. febrúar.)
Búastríðlð. Afþvíer sú ein fregn, að De
Wett hefur orðið aívarlega særður. Hve mjög
er óvíst. (Rvík.)
Frímerki íslenzk ný ætlar ráðojafi vor að
gefa út, og skora dönsk blöð á hann, að
láta þau verða snildarverk að fegurð og bjóða
öllum dönskum listamönnum að keppa um,
hver fegursta fyrirmynd geti búið til fyrir
þau. Skyldi þau ekki eiga að komast á 1904,
er vér fáum stjórnarbótina, og verða í þess
minningu?
Möðruvallaskólinn brunninn. Norður-
landsblöðin segja þær fréttir, að Möðruvalla-
skólinn hafi brunnið til kaldra kola 22. f. m.
Flestu af innanhús-munum var bjargað að
undanteknu bókasafn skólastjóra, sem að mestu
leyti fórst. Upptök eidsins eru ókunn. Húsið,
sem var landssjóöseign, kvað hafa veriðvátryggt
fyrir 30,000 króna.
»Sösuféla£«. sem starfar að útgáfu íslenskra
sagnarita, er nýstofnað í Reykjavík. hélagið
ætlar sér að vinna útbreiðslu um allt land.
í þeim tilgangi hefur stjórn félagsins sent
ýmsum mönnum kring um land lög félagsins
og áskorun um að styðja félagið. Árstillag
til félagsins er 5 kr„ æfitillag 50 kr. í stjórn-
inni eru: Dr. Jón Þorkelsson (form.), Jón
(ónsson sagnfræðingur, Hannes Þovsteinsson
ritstj., Þórh. Bjarnason lektor og Bjarnijóns-
son kennari.
Innratrúboðið í Reykiavík fær eins og
von er misjafnar viðtökur. Þjóðv. héfurþannig
í síðastkomnum blöðum all-langa lýsing á því
starfi, skoðar það sem versta skaða, ef ÞV1
verði nokkuð ágengt. Fjallkonan, Amfirðingur