Frækorn - 27.10.1905, Blaðsíða 1
Hvernig verður vilji guðs
fundinn?
Biblíurannsókn
eftir
C. Skovgaard-Petersen.
Framh.
Haltu öruggur áfram þinu andlega
starfi og bið!
Samúel sagði við Sál: — — — »S]ö
daga skaltu bíða, þangað til eg kem, þá
skal eg láta þig vita, hvað þú átt að
gjöra.« (1. Sam. 10, 8.)
Davíð sagði við konung Móabítanna:
»Leyf föður mínum og móður minni að
vera hér, þangað til eg sé, hvað guð
gjörir við mig.« (1. Sam. 22, 3).
Móse sagði við fólkið: »Bíðið, að
eg heyri, hvað drottinn býður yður.«
(4. Mós. 9, 8).
»f*eir settu hann í varðhald, þangað
til úrskurður drottins væri fenginn.« (3.
Mós. 25, 12).
»Eg kom til hinna herleiddu í Tel-Bíb
— — — og þangað sem þeir bjuggu,
og sat þar á meðal þeirra í sjö daga, ut-
an við mig.« Og þið bar við, er þeir
sjö dagar voru liðnir, að orð drottins
kom tfl mín.« (Es. 3, 15 — 16.)
Niðurstaðan verður þá: Allir hinir
miklu guðs menn hafa orðið að bíða
eftir svari drottins. Bíð þú því líka ör-
uggur eftir Ijósinu af hæðum, þá fetar
þú í spor hinna heilögu. »Vaktu dag-
lega við dyr spekinnar og bíddu við
dyrustafi hennar.« (Orðskv. 8, 34). —
Láítu þessi orð rætast á þér: »Til þín
sem situr á himni, lyfti eg augum mínum.
Sjá, eins og augu þjónsins líta á hönd
húsbóndans, eins og augu þjónustustúlk-
unnar líta á hönd húsmóðurinnar, svo
mæna augu vor til drottins vors guðs,
þangað ti! hann líknar oss.« (Salm. 123,
1-2).
Qjörðu það, þá mun drottinn verða
þér náðugur að lyktum, og láta sína á-
sjónu lýsa yfir þér, og þér gefst eins og
Eliezer, tilefni til að lofa drottin fyrir
það, að hann hefir »leitt mig á rétta
veginn.« (1. Mós. 24, 48.)
Hvernig kemur þá svarið?
Ekki eins og tákn á sól og tungli eða
auka-hraðboði frá himni. En það, sem
vér getum með réttu búist við, er það,
að svarið frá drotni sé skýrt. Jafnvel
þótt drottinn svari nú ekki eins skýit og
skýlaust cins og forðum (2. Mós. 19, 19),
þá mun hann þó alla daga svara skýrt,
þegar hans tími er kominn.
Þegar drottinn bauð Móse að ritaallar
sínar lagagreinar á tvo stóra steina, brædda
utan með kalki, þá sagði hann: »Ritaðu
öll þessi lagaboð greinilega og læsilega.«
(5. Mós. 27, 8). Drottinn vildi, að vilji
hans væri ritaður svo, að enginn Israels-
maður gæti mislesið það. Mundi drott-