Frækorn - 27.10.1905, Blaðsíða 7

Frækorn - 27.10.1905, Blaðsíða 7
FRÆKORN 159 Fjallkonan og; spíritisminn. Fjallkonan skýrir frá því í síðasta tölu- blaði, að einhver lögfræðingur í Kristj- aníu hafi hvatt menn að rannsaka bók Meyers um »persónuleika mannsinns.« Bók þessi kvað vera höfð í hávegum við tvo háskóla, í Dublin og Madras, hjá írum og Indverjum. Öllu þessu verður herra E. H. mjög feginn, já, hann gerir sér jafnvel von um að spíritistar hér á landi verði þar af leiðandi ekki lengur taldir vitfirringar né trúgirnisheimskingjar. Oss er reyndar ekki kunnugt um að hingað til hafi verið kastað eins þung- um steini á þá eins og E. H. gefur í skyn. Veit hann sjálfsagt betur í þessu efni. - Þótt vér séum spíritismanum andstæðir óskum vér að herra E. H., og trúbræður hans, njóti sama trúfrelsis, sem vér álít- um rétt og sanngjarnt að hver maður eigi heimting á. Vel svarað. j>Eg get ekki skilið«, sagði stúlka nokk- ur er talað var um andlega hluti, hvers- vegna sá, sem lifir vel í siðferðislegu til- liti skuli ekki standa nær því að komast í himnaríki en sá óguðlegi.« »Blátt áfram af þeirri ástæðu«, svaraði annar: »Setjum svo, að þér og eg ósk- uðum að fara á samsöng, þar sem bílæti kostuðu 5 krónur, þér ættuð til 2 krónur en eg enga. Hvort okkar stæði þá nær því að fá aðganginn?« »Hvorugt«. »Einmitt það, og þessvegna stendur hinn siðláti ekkert nær, en hinn mesti syndari. En setjum nú svo, að einhver vingjarnlegur maður sæi vandræði vor og gæfi oss aðgöngubílæti á sinn eigin kostn- að, hvað þá?« »Jú, þá kæmumst við bæði inn!« öleði. Stundum geng eg um göturnar til þess að sjá, hve mörg andlit bera vott um inni- lega hjartans gleði. Eg sé samt langflest andlit, sem bera vott um hugsun og um- hyggju, sorg og ótta, ákafa elsku til auðæfa og metorða. En ó, hve fá andlit, sem bera merki friðar og farsældar! Eg hefi sannfærst um, að það er mjög sjaldgæft að sjá hið yndisfagra Ijós heilagrar gleði, sem skín frá elskandi sál yfir mannlega ásjónu. Beecher. Qjör hið sama. Hinn alþekti general Oordon, sem starfaði í Afríku, segir: »Eg bið ætíð fyrir þeim, sem eg kem til, það færir mér styrk og hefir undur- samleg áhrif á mig. Regar eg í fyrsta skifti fer til einhvers höfðingja, sem eg hefi áður beðið fyrir, er það sem þegar sé fest samband mill- um okkar«. Lesari, far þú og gjör hið sama, ef þú ert biðjandi maður. Kraftur bænarinnar er leyndardómsfull- ur kraftur, sigrandi kraftur. Hann opnar einnig lokuð hjörtu. Ef þú ert móðir eða faðir, verður þú að biðja yðuglega fyrir börnunum þínum. Talaðu svo vingjarnlega við þau um frelsarann og kærleika hans, þá vinnur þú aldrei til ónýtis. Fréttir. Noregur og Sviþjóð. í síðasta tölublaði »Fræk.« var skýrt frá samningi þeim um aðskilnað ríkjanna er saminn var í Karlstad 23. f. m. af fulltrúum beggja ríkjanna. Ríkisþing Svía virðist fallast á tillögur nefndarinnar og enginn ágreiningur er í nefndinni sjálfri. Stórþing Norðmanna vísaði málinu til 18 manna nefndar. Tveir þriðju hlutar nefndarinnar leggja til að Stórþingið sam- þykki Karlstads samninginn, en einn þriðji hafnar honum. Síðustu fregnir bera það með sér, að stórþing Norðmanna hafi samþykt Karlstaðs-samninginn með 101 atkv. gegn 16.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.