Frækorn - 30.11.1905, Page 3

Frækorn - 30.11.1905, Page 3
FRÆKORN 179 Hann roðnaði við þessa hugsun um hans góðu og ástúðlegu móður. Hann vissi líka, að Jenny litla var ekki vel frísk, og að hann hafði lofað því fastlega, að koma heim klukkan sjö. F*að varð hann að efna. Klukkuna vantaði að eins tíu mínútur í sjö. Hinrik fór skyndilega af stað og hljóp heimleiðis. Móðir hans mætti honum í dyrunum. »Það er verra með Jenny,« sagði hún í lágum róm. »Pað er kíghósti. Hlauptu nú eftir lækninum, og reyndu að koma svo fljótt með liann, sem mögulegt er.« Drengurinn hljóp þegar af stað, og með miklu meiri flýtir en nokkru sinni áður. Gamli læknirinn hafði orð á sér fyrir alt annað en »flýti í snúningum,« en nú hafði drengurinn þau áhrif á hann. að hann varð engu tniður ákafur að komast af stað, og nú hraðaði hann svo ferð sinni, að fólkið rak höfuðin út um glugg- ana af forvitni 'og sagði: »Hvaða kona ætli sé nú í barnsnauð?« Hinn gamli reyndi læknir framkvæmdi undir eins handlækningu, sem hepnaðist svo vel, að Jenny var brátt úr allri hættu. Hann leit á móðurina með ánægjusvip og sagði: »Leyfið mér að segja yður, hvað það var heppilegt að þér senduð undir eins eftir mér, því hefði það dregist tíu mín- útum lengur, mundi enginn iæknir hafa getað neitt aðgjört. Hinrik hlýddi hljóður og undrandi á þessi orð, og þegar læknirinn var farinn, sagði hann móður sinni frá þeirri freisting sem hefði ásótt sig, og endaði með því að segja: »Eg er svo glaður yfir því að geta sigrað freistinguna til að vera kyrr við leikinn, og að geta haldið loforð mitt. Annars hefði eg óviljandi getað orðið orsök í dauða litlu systur minnar.« »Já, eg ber fullkomið traust til þín, elsku drengurinn minn,« sagði móðirin, og lét vel að honum, en hann hallaði öruggur höfði sínu, með ljósu lokkunum upp að brjósti hennar. (L. J. E.) Hjálp við biblíurannsókn. Heilög ritning. 1) Ritninguna á að rannsaka og þekkja, bæði gamla og nýja testamentið. Jóh. 5, 39. Lúk. 16, 29. 31. Pgb. 17, 11. 1. Pét. 4, 11. Es. 8, 20. 2) Ritningin er opinberun til mannanna; hún er skiljanleg. 5. Mós. 29, 29. Matt. 4,4; 24, 15- Róm. 10, 17.; 15, 4. 2.Tím. 3, 13 — 17. 2. Pét. 1, 19. Opinb. 1, 3. 3) Ágæti og máttur guðs orðs. Sálm. 12, 6; 119, 103—105. 130. Efes. 6,17. Hebr. 4, 12. Jer. 23, 29. Endurkoma Krists. 1) Kristur mun koma aftur. Jóh. 14, 3. 1. Jóh. 3, 2. Pgb. 1, 9-11. Tít. 2, 13. Hebr. 9, 28. Opinb. 1, 7.; 22, 20. 2) Endurkoma Krists mun verða persónú- leg og sýnileg. Matt. 24, 30. Mark. 13, 26.; 14, 62. Pgb. 1, 9 11. 1. Tess. 4, 16. Opinb. b 7- 3) Við endurkomu Krists munu allir óguð- legtr, sem þá lifa, verða eyðilagðir. Matt. 13, 24 - 30 og 37 — 43. Lúk. 17, 26 -30. 2. Tess. 2, 7. 8. Opinb. 19, 18-21. 4) Þegar frelsarinn kemur munu þeir upp- rísa, sem í Kristi eru dánir, og hinir lifandi heilögu umbreytast. 1. Kor. 15,51.52. 1. Tess. 4, 16. 17. i.Jóh. 3, 2. Svo munu ailir hinir heilögu fara upp til himins með herra sínum til húss föðursins, hinnar nýju Jerúsalem. Jóh. 13, 36.; 19, i-3 i- Pét. 1, 3-5. Filipp- 3, 20. 5) Legar Kristur kemur, mun jörðin verða gjörð að auðn. Es. 13, 6-9.; 24, 1—6. Hinir fáu, sem ekki verða fyrir eyðileggingunni, eru guðs börn, sem fylgja Jesú til himins. i.Tess. 4,15 — 17. Matt 24, 31. Jóh. 14, 1 3. Upprisan. 1) Upprisa dauðra er kend í gamla testa- mentinu. Sálm. 17, 15.; 49, 15. Es. 25, 8.; 26, 19. Jer. 31, 15. 16. Ez. 37, 1 — 13. Dan. 12, 2. 2) í nýja testamentinu. Matt. 22, 31. 32. Róm 4, 17. Jóh. 6, 39. 40.44. 54,; 11, 24.25. Pgb. 4, 2.; 17, 31. 32.; 23, 7.; 26, 8. 22. 23. Róm. 8, 11. 1 Kor. 6,14; 15, 12 — 18.51 — 55. 2 Kor. 4, 14. Filipp. 3, 10. 11. 1. Tess. 4, i3~*7-

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.