Frækorn - 30.11.1905, Page 5

Frækorn - 30.11.1905, Page 5
FRÆKORN „Framför' - ? Maðurinn er æðsta skepna jarðar- innar; svo hefir lengi verið sagt og það með réttu. Hann er af skaparan- um hafinn langt yfir dýrin, einkum að því, er andann snertir. Vér vitum, ef til vill, íítið um vit sumra dýra. Sum þeirra hafa afar-mikla slægð, en önnur vit í ýmsum greinum o. s. frv. En það eru þá vissir flokkar dýra, en þau standa í stað. Seinni kyn- slóðin er eigi vitrari, og ekki heldur óvitrari, en hin fyrri. En manninum getur ávalt farið fram, bæði hverjum einstökum manni og líka mannkyn- inu í heild sinni. Andi mannsins, hinn tigni andi hans, neniur eigi staðar við hið sýnilega. Hann leitar þang- að og grenslast eftir því, sem augu iíkamans eigi ná tii. Honum nægir eigi, að hafa fnndið upp allskonar listir; hann hefir einnig uppgötvað hina afar-sterku sjónauka, bæði til að skoða með hið smæsta í jörð og á sem og hinn ótölulega stjörnugrúa, langt úti í hinum ómælandi himingeim. Og þó er hið niesta enn ekki talið. Jafnvel þótt hann sé bundinn við jörð- ina með böndum holdsins, svít’ur hann á engilvængjum sínum að hástóli hins æðsta, konungs konunganna. Og þótt eigi geti hann eygt til fulls guðs dýrð- arljóma, þar guð býr í því Ijósi, er engin dauðlegur fær að komist, getur hann þó sameinast honum og tengst óslftandi ástarböndum. Kœrleikanum, hinum mikla kærleika, sem er mest- ur í heimi, honum er andi manns- ins gæddur at' skaparanum. Einnig er hann gæddur frjálsrœðinu, svo hon- um er unt, með guðs fulltingi, að ráða stefnu kærleikans. Og hann veit, að hann á að elska hinn mikia al- heims föður yfir alla hluti fram, og meðbræður sína sem sjálían sig; því þessi góði alheims faðir hefir séð svo um, að andi mannsins er eigi látinn án leiðbeiningar. Hann hefir gefið honum opinberunina, þenna heilaga, ótæmandi vísdómsbrunn, sem öllum er unt að bergja af, sem vilja. Pví 181 mætti ætla, að bróðurást, friður og eindrægm ríkti hvervetna meðal mann- anna og stjórnaði öllum þeirra órð- um og athöfnum. Væri svo, myndi jörðin vera sælustaður og yndi á henni að lifa. En hvað sjáum vér? Hvað ber helzt fyrir augun á vorri jörð? — Hvort sem vér lesum sögu mannkyns- ins eður sögur af einstökum mönn- um, eður þá sögur biblíunnar — á hverju ber þá mest? Eg svara: »Á heift og harðýðgi, bardögum og blóðs- útheliingum, ágirnd og drambsemi, hræsni og svikum. Sagan er því að miklu leyti saga vonsku mannanna. Sá, sem er meiri máttar, beitir ofbeldi við þann, sem honum er minni, kúgar hannogundir- okar á allar lundir, og oft verða þau leikslokin, að annarhvor veitir hinum bana. Voldugri þjóðirnar ráðast að hinum, strádrepa bræður sína, úthella blóði þeirra í straumum, fara illa og ómannúðlega með tangana, eða leiða þá á höggstokkinn, sem sauði til slátrunar. Hve margar þúsundir mannagetur eigi sagan um, er píndir hafa verið ölíum hugsanlegum kvölum! Já, hinn mikli andi mannsins reynir afl sitt á þvf, að hugsa upp allskonar píslar- færi og kvala-aðferðir, til að geta, á sem grirnmilegastan hátt, pínt bræður sína. Ó hvílí'c skelfing! Ó hve öf- uga stefnu tekur þá manns-andinn! Hinn meiri og öfiugri dregur undir sig með öllum mögulegum hætti fjár- muni hinna, sem minni máttar eru, jafnvel hinn síðasta málsverð frá hin- um hungraða fátækling, til að geta danzað innanum hrúgur gulls og silf- urs, og alið kropp sinn, sem svín til slátrunar. Auðmennirnir halda óhófs- veizlur með allskonar viðhöfn og skrauti, en »fátækir falla af hungri«, sem þó, ef til vill, hafa aflað þeim auðs- ins. Nirfiliinn lætur heldur gull sitt, sern hann trúir á, vera lokað inni í járnvörðum geymslu-klefum, en hann tími að verja því til hjálpar nauðstödd- um bróður sínum.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.