Frækorn - 30.11.1905, Side 7

Frækorn - 30.11.1905, Side 7
FRÆKORN 183 Bækur og rit. Mannkynssaga handa imglingum, Snið- in eftir söguágripi Jóhanns Otte- sens. Eftir Rorleif H. Bjarnsson. Kenslubækur Jóhans Ottesens hafa náð almennri hylli í Danmörku, og því mjög vel til fallið að velja einmitt eina af bókum hans til þýðingar á íslenzku. Herra Þorleifur H. Bjarna- son hefir aukið bókina eitthvao, og er líklegt, að hún hafi ekki versnað við það. F*að var þörf á slíkri skóla- bók, og bæði þýðandi og útgefandi (Guðm. Gamalíelsson) eiga þakkir skilið fyrir það að hafa komið henni út á íslenzku. Maltdrykkir fyrir bindindismenn. Rær eru farnar að tíðkast allmikið hér á landi, hinar svo nefndu »óá- fengu öltegundir«, »Mörk Carlsberg«, »Lys Carlsberg« og »Kronöl«. En þessir drykkir eiga það sam- merkt, að þeir innihalda allir meira eða minna af alkoholi, alt að því 21/g°/o. Slíkir drykkir eru að sjálfsögðu ekki bindindismanna-drykkir, enda gerði stærsta bindindisfélag landsins, good- templarareglan, þá ákvörðun í sumar er leið, að útrýma skuli þessum öl- tegundum sem templaradrykkjum. Hins vegar er engin þörf að halda áfram nautn þeirra, með því að nú hefir nýlega flutst hingað til Reykja- víkur ágætur maltdrykkur án alkohols (áfengis) og er hann bæði mjög nær- andi og bragðgóður. Ressi drykkur er norskur, heitir „Vörterölf og not- ast alment meðal norskra bindindis- manna. . Herra kaupmaður/ Gísli Helgason, Austurstræti 10, /Reykjavík, selur öl þetta. Vér viljum sérstaklega mæla með því fyrir/hin mörgu kaffi- og matsöluhús Reykjavíkur. Retta alveg alkohól-lausa öl ætti skilið að verða notað alstaðar í stað allra annara pl- tegunda. Fréttir. Noregskonungurinn nýi ætlar ekki að skifta nafni og kalla sig Hákon 7., heldur halda sínu nafni og kalla sig Karl 5. Atkvæðagreiðslan fór svo, að síðast, er fréttist (20. þ. m.), var atkvæðatala komin frá 418 kjörstöðum, en ókom- in frá 18. Af 418 kjördæmum eða kosningaumdæmum greiddu ein 48 atkv. gegn konungsefninu. — 29 stór- þingsmenn höfðu greitt atkv. móti því, að bjóða Karli konungdóm, ert við atkvæðagreiðsluna urðu þeir allir í minnihluta í sínum kjördæmum. Atkæðin, sem kunn voru orðin, voru 253,936 já, en 67,554 nei. 7. des. ætlar Karl konungur að koma til Kristjaníu. Friðþjófur Nansen er orðinn sendi- herra Noregs í Bretlandi, Hauge í Bandaríkjunum, Gude, sem áður var sendiherra Norv. og Svíþj. í Höfn, er nú sendiherra Noregs í Berlín. Rússland. Rar versnar aftur útlitið. Witte hefir neitað Pólverjum um sjálfs- forræði, en við það sögðu sig úr ráða- neyti hans hinir frjálslyndu menn; en alþýða tók að gera verkföll á ný af samhug við Pólverja. Öll lög Alþingis eru staðfest af konungi. Höfn tyrir Reykjavík eru nokkrir menn að hugsa um að gera við Skerja- fjörð, í Skildinganess landi innarlega. Mun hugmyndin vera að leggja það- an járnbraut norður með Gskjuhlíð og við Rauðarárlæk yfir á Hverfisgötu. Hugsa þeir sér að flytja varning úr skipunum til kaupmanna hér fyrir mun lægra verð, en nú er. Hinsvegar hefir kaupmannnaráðið í Reykjavíkskor- að á bæjarstjórnina að veita nú fé (4000 kr.) til þess að fá næsta ár norskan eða skozkan hafnarverkfræðing til að gera áætlun um, hvar og hversu og með hverjum kostnaði minst megi gera höfn fyrir bæinn. Bæjarstjórnin hefir tekið vel í það og mun vafalaust veita féð á næsta fundi, — (Rvk.)

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.