Frækorn


Frækorn - 25.04.1906, Blaðsíða 2

Frækorn - 25.04.1906, Blaðsíða 2
130 FRÆKORN ari en fríkirkja samkvæmt eðli sínu myndi verða. Fríkirkja gæti skapað trúarbragðalegt ófrjálslyndi, sem líka næð'útí veraldlega lífið. Pess vegna hafa þeir af umhugsun fyrir frelsinu viljað halda ríkiskirkjunni. En þessi skoðun hefir ekki marga fylgismenn nú á dögum. Aðskilnað- ur ríkis og kirkju er svo algjörlega samofin eðli frelsisins. að enginn, sem í raun og veru elskarfrelsi í and- legum efnum, getur því annað en stutt »kirkjufólkið«, er með alvöru gerir þessa kröfu. j upphafi. Eftir W. R. Braðlaugh. (Sbr. „Sex daga sköpunarinnar./‘) Milli opinberunar guðs fyrir mann- kyninu og hverrar sannrar og áreið- anlegrar niðurstöðu, sem vísindin hafa komist að, getur engin mótsögn átt sér stað; en röng útlegging ritning- arinnar á eina hönd og óþroskaðar getgátur vísindamannanna á aðra hönd geta komist í mótsögn og bága hvað við annað, og hljóta að gjöra það, af því að hvortveggja víkur jafnt frá sannleikanum. Biblían er fyrir marga innsigluð bók, læst og hjúpuð myrkviðar blæju leyndardómsins, beint fyrir þá sök, að þeir vilja eigi leita hjálpar heilags anda, til þess að opna lásinn með lykli sannleikans. Sannindi geta aldrei ver- ið ósamhljóða, hvort sein þau eru guðleg eða vísindaleg, af þeirri ástæðu, að hin sama hönd — hönd hins mikla byggingarmeislara alheimsins — hefir teiknað og bygt forgarð nátt- úrunnar og helgidóm opinberunarinn- ar. Fyrsti kapítulinn í fyrstu bók Móse er dyrnar að þekkingar-forðabúri guðs — það er inngangurinn að bókasal konungsins, og verður honum eigi lokið upp, nema með lykli sannleik- ans. Oamla testamentið hefir heppi- lega verið kallað læsingin, og nýja testamentið lykillinn. Rað er því mjög áríðandi og nauðsynlegt, að sérhvað það, er kann að virðast leyndardóm- ur, er hjúpar aðganginn að orði guðs, verði burtu numið, því að undir ör- uggleik grundvaliarins er komin stöð- ugleiki byggingarinnar, sem á honum er reist. Grandgæfileg rannsókn fyrsta kapí- tula fyrstu bókar Móse varpar miklu Ijósi yfir erfiða staði og torskilin efni í biblíunni, sem Fétur postuli segir, að »fáfróðir og staðfestulausir rang- snúa, eins og öðru í ritningunum, þeiin sjálfum til glötunar.* Hin mikla sönnun vor fyrir vísinda- legri nákvæmni sköpunarsögu Móse er eigi bygð á hinni nákvæmu vit- neskju, sem hún gefur, heldur á þvf, hve einkennilega fáorð hún er, og hefir getað lagað sig eftir hinum sí- breytilegu lærdómskerfum og hug- myndum margra kynslóða. Fað, sem menn í dag kalla áreiðanleg, vísinda- leg sannindi, myndi fyrir fáum árum hafa verið fyrirlitið sem sérvizka og draumórar. En þrátt fyrir allar þessar breytingar á hugmynduih vísinda- mannanna, þá hefir fyrsta bók Móse verið prófuð í þrjú þúsund ár, og allar þessar þrjátíu aldir hefir hún staðið óhrakin. Menn kvarta um það, að ritningin ! kennir eigi nákvæmlega það, sem er tízka á þeirri öld, er þeir lifa á; en i hve óskynsamlegt er þetta. Enginn j maður með heilbrigðri skynsemi getur I búist við, að sannleikurinn sjálfur

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.