Frækorn


Frækorn - 25.04.1906, Side 5

Frækorn - 25.04.1906, Side 5
FRÆKORN 133 vitnar með oss, þegar vér gjörum gott, að það si þóknanlegt fyrir guði, og ásakar oss, þegar vér gjörum ilt. Þetta getur ekki átt sér stað hjá ung- barni, meðan það hefir hvorki gjört gott né ilt. Fyrirheitið um guðsríki heyrir ung- börnunum til án skírnar. Mark. 10, 13—16. Kristur skírði ekki ungbörn- in, en hann lagði hendur yfir þau og blessaði þau. Skírnin merkir, að vér deyjum frá syndinni og upp frá því viljum lifa í hlýðni við guðs boðorð. Vér erum greftraðir með Kristi í skírninni, þegar oss er dyft niður í vatnið. Vér stígum upp úr vatninu í líkingu við upprisu hans. Róm. 6, 3 — 7. Ef vér svo stöndum stöðugir alt til enda í Krists kærleika og hlýðni, þá munum vér verða honum líkir í dýrð, þegar hann birtist. 1. Jóh. 3, 2 »Sá, sem hefir mín boðorð og held- ur þau hann elskar mig.«Jóh. 14, 21. Biblíuskýring. (Dr. Torrey.) Eg man eftir því, að á samkomu einni í Ameríku fyrir nokkrum árum stóð ungur, eldheitur kristinn maður upp og vitnaði í hin síðustu vers í Róm. 8. kap.: »Hver mun skiija oss við kærleika Krists« o. s. frv. og kvað þessi orð eiga við alla menn. En hann fór villur vegar. Hann hefði átt að gæta að sambandinu. Stafa ekki mjög margar guðfræðinga-staðleysur frá því, að menn gera ekki greinarmun á milli þeirra hluta, sem biblían sjálf greinir sundur, og t. d. taka staði, er samkvæmt sambandinu gilda aðeins fyrir guðs börn, og láta þau gilda upp á menn alment? Eg trúi þv, að þetta sé það, sem eiginlega er orsök- in til unitara-villunnar, sem gengur út á það, að þar eð guðs börn glatast ekki, þá verði allir hólpnir, því guð er faðir allra. En guð er því miður ekki faðir allra. »Svo mörgum, sem hann með- tóku, gaf hann kost á að verða guðs börn« — þannig lesum vér í Jóh. 1, 12. Eg las einu sinni ræðu út af textan- um: aPangað til hann finnur hann.« í þessari ræðu var það kent, að guð leitar að sérhverjum manni, þangað til hann finnur hann, og því á hver maður loksins að verða hólpinn. En ekkert slíkt er kent í þessum ritningarstað. Rað, sem er sagt, er það, að hann leitar að sauðum sínum, þangað til hann finnur þá. Og guði sé lof, enginn, sem er af sauðum hans til enda, mun glatast. Ouð gefi að allir mættu verða sauðir hans. Rú getur orðið einn þeirra, en það er greinilega sagt, að hann að lokum muni aðskilja sauðina frá höfrunum. Ef menn að eins vildu lesa biblíur sínar með eftirtekt, í stað þess að rífa ritningargreinarnar út úr samband- inu, þá mundu þeir komast hjá mik- illi villu. En það er ekki hægt að komast hjá villu, ef maður gætir ekki að, í hvaða sambandi hinar ýmsu greinar standa. Lykill hins ágjarna. í amerísku blaði segir frá manni einum í Durham, Maine, sem var mjög ágjarn ,og nískur. Hann varð háaldraður. A banasænginni hélt hann stöðugt hönd sinni kreptri, og þegar hann dró síðasta andardráttinn, krept- ist hönd hans enn fastar saman. All- ir nærstaddir vissu, hverju hann hélt

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.