Frækorn


Frækorn - 25.04.1906, Page 6

Frækorn - 25.04.1906, Page 6
134 FRÆKORN í hönd sinni. Það var lykillínn að aura- kistu þeirri, sem gull hins látna mann- púka var geymt í. Eftir dauða hans réttist höndin upp, og lykiilinn féli úr hendi hans, en þá kom það í ljós, að nirfillinn hafði látið festa lykiiinn með sterkri festi við armlegg sinn, svo hann þyrfti ekki að skilja sig við lykilinn í dauðanum. Hann gat ekki tekið gull sitt og sílfur með sér í gröfina, en lyklinum gat hann haldið. Ættingjar hans grófu hann því með lyklinum föstum við hönd hans. Hvað varð þá af öllum auðæfunum hans? Erfingjarnir hafa slegið hendi sinni yfir þau. F*eir brutu sundur peningaskrínið með öxi, og skiftu auðæfunum milli sín, en nirfilíinn fékk að halda lyklinum. Nú roínar hann í jörðunni með lykilinu við hiið sér. Allslausir komum vér í þenna heim, og allslausir skulum vér aftur héðan fara, og: »hvað hjálpaði það mann- inum, þótt hann eignaðist ailan heim- inn, ef hann liði tjón á sálu sinni ?« , ---(frg) -- Saurug biaðamenska. »Niðvisur lætur blaðið »Reykjavík« sér sæma að flytja um ýmsa andlegrar-stéttar menn bæjarins. Ekki svo að skilja, að menn þeir séu í nöp við ritstjór- ann, eða hafi átt nokkuð í höggi við í hann, sem reyndar væri lítil málsbót. Petta á víst að vera til að skemta fólki, en vonandi eru þeir miklu fleiri, sem óbeit hafa á slíku. þessa strákskapar væri alls eigi get- ið, ef eigi stæði svo á, að blaðið er »Berlingur» íslands. Hvenær segir ráðherrann sér af- hendis slíku blaði ?« spyr »Nýtt kirkju- blað« 18. þ. m. Almenningur getur þó sagt sér at hendis slíku blaði, þegar vill, hvað sem ráðherranum líður, enda þótt vér efumst ekki um, að hann hljóti að sjá sér vanvirðu í því að eiga slíka málpípu, og að því dragi, að hann segi skilið við það. Blaðið »lætur sér sæma* hvað eftir annað að flytja lesendum sínum sví- virðilegar brennivínsauglýsingar, þar sem nafn drottins er bersýnilega lagt í við hégóma, og ýmsan ruddaskap, ! svo sem uppnefni á heiðarlegum mönnum og léttúðugt háð um al- varleg málefni. Ritháttur blaðsins er mjög oft ósamboðinn hverjum heiðar- legum og göfuglyndum manni. Dæm- in eru svo almenn, að ekki þarf á þau j aðbenda,en næst erað nefna síðasta bl. Þetta er þeim mun sorglegra, sem allir vita, að ritstjórinn er mikill gáfu- maður, manna bezt að sér í mörgum málum, og getur skrifað mjög vel og skemtilega, þegar það, sem gott er ! hjá honum, fær að njóta sín. Vér höfum viljað segja hreinan sannleika í þessu máli án alls kala til ritstjórans; vér berum ekkert hatur til hans, en oss er svo illa við það, sem er þjóðspillandi í blaðinu, að að vér þorum að segja það, sem svo margir bera í brjósti sér, og vér von- Lim, að það muni bera einhvern árang- ur til batnaðar. ©)s síq) ©v Síðustu árin«. Ymsar rangfærslur og staðleysur um mig og starf mitt eru í »Fjailkon- unni« í næst síðasta tbl., í grein með fyrirsögn eins og hér að framan. En þar eð »Fjallkonan« hefir farið með álit sitt eins og hún hefir gert að undanförnu, bæði í andatrúar-hégiljum sínum og ýmsu fleiru, álít eg óþarft að hrekja grein þessa. Á henni verð- ur ekki tekið svo mikið mark af nein- um manni, að hún sé svara verð í þessu efni, og þar að auki eru >Fræ- korn« lang-útbreiddasta blað landsins, svo menn eru farnir að þekkja af eigin viðkynningu, hver er stefna þeirra og mín. David Östlund.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.