Frækorn - 14.06.1906, Blaðsíða 1
VII. ÁRG. REYKJAVÍK 14. JÚNÍ 1906. 24. TBL.
Kærleiki Krists til föðursins.
Eftir dr. Torrey.
Framh.
Að líkjast Kristi.
Er það takmark lífs þíns? Er það
þetta, sem þú biður um? Er það hugs-
un þín í smáu og stóru í lífinu: hvern-
ig get eg bezt vegsamað guð. Sumt
fólk hyggur sig að gjöra það með því
að bera lítið í klæðnaðinn, og álíta að
allir eigi að gjöra eins og þeir, en það
er einfaldari aðferð til. Hvernig húsi á
eg að búa í? í þess háttar húsi, sem
guðs andi sýnir þér, að þú undir þínum
kringumstæðum getir bezt gjört guð dýrð-
legan. Hvers á eg að neyta ? Sumir
munu vilja gefa þér margar reglur og
segja: »Ressa mátt þú neyta — en ekki
hins o. s. frv. Hið kristilega líf er miklu
einfaldara. Eg vil í öllu sem eg gjöri,
— hvort heldur eg vel mér fatnað, hús,
fæðu eða hvað annað, — velja það, sem
eg get bezt gjört guð dýrðlegan með.
Hvað á að vera tilgangurinn með bænir
mínar ? Að það sé guði til dýrðar að
bænheyra mig, og ef krossinn miðar til
þess að gjöra hann dýrðlegan, þá vil eg
gjöra hann dýrðlegan með því að deyja
á krossinum. Þetta er kærleikur. Pegar
Jesús stóð við gröf Lazarusar, grét hann,
og vinirnir, sem stóðu umhverfis, sögðu.
»Sjáið hversu hann hefir elskað hann,«
— elskað Lazarus. Vér lítum á krossinn
og sjáum hvernig hann elskaði hann.
Elskaði hvern? Elskaði guð. Vér segj-
um að krossinn á Golgata sé hin hæsta
opinberun á kærleika Krists til mannanna
og það er rétt. En það var þó enn
fremur hin hæsta opinberun á kærleika
hans til guðs. Til að enda á því, sem
byrjað var, getum vér sagt, að allur leynd-
ardómurinn við líf Jesú var það, að hann
elskaði föðurinn. Gjörir þú það? Jesús
sagði: »Petta er hið æðsta og helzta
boðorð, að þú skalt elska drottinn guð
þinn af öllu hjarta, allri sálu og öllum
huga. Kærleiki Krists var vottur um
hiýðni hans við þetta boðorð.« Er það
eins með þig? Reynir þú til að líkjast
Kristi ?
Er líf þitt í samræmi við líf Krists ?
Sé svo, þá hlýtur alt líf þitt að leiða að
einni hugsun: elskunni til guðs. Starfs-
líf þitt, heimilislíf og félagslíf, skerotanir
þínar, alt, sem þú aðhefst verður að
stjórnast af kærleikanum til guðs.
Persónuteg sameining.
Vér hljótum fyrst að taka eftir því, að
Jesús elskar söfnuðinn, eins og maður-
inn elskar konu sína, en þar er sá mun-
ur, að jafnvel í fyrirmyndarhjónabandi á
jörðunni hefir hugsjónin um samband-
ið milli manns og konu ekki náð full-
komnun. En í Kristi er hún fullkomn-
uð. Rað sýnir oss samband hans við
söfnuðinn. Sjá Efes. 5, 2. Framgangið
í elskunni eins og Kristur elskaði oss, og
gaf sig sjálfan út fyrir oss.« Til hverra