Frækorn


Frækorn - 11.07.1906, Síða 2

Frækorn - 11.07.1906, Síða 2
218 FRÆKORN Kœrlciki Krists til föðursins. Eftir Torrey. Niðurlag. Kœrleikur til syndara. Lesum að endingu nokkra ritningar- staði. Matt. 9, 13: Æarið og nemið hvað það þýðir: miskunsemi þókn- ast mér en ekki fórnir, því eg er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur synduga til iðrunar.« Jesús elskar syndara. Hjá Lúk. 19, 10. er þetta tekið enn skýrar tram: »Mannsins sonur er kominn til þess að leita hins glataóa og frelsa það.« Hann elskar hið glataða. Lengst erfariðíRóm. 5,6 — 8: »Pví þegar vér ennþá vorum breyzkir, hef- ir Kristur á íilteknum tíma dáið fyrir rangláta, því að fyrir réttlátan mun varla nokkur deyja, en fyrir góðan vogaði kannske einhver að deyja. En guð sýnir kærleika sinn til vor í því, að þegar vér ennþá voruin synd- arar, er Kristur dáinn fyrir oss.« Kristur elskar syndarann, hinn glat- aða, hinn óguðlega, Jesús elskar hinn óguðlegasta mann, sem er í Lundún- um. Hann elskar á sama hátt hina óguðlegustu konu sem finst. Seint að kvöldinu sjást í þessum stað konur, sem skortir alla sómatil- finning, með málaðar augabrýr, al- skreyttar, og með andlit sem bera vott um þjónustu syndarinnar, þær ganga fram og aftur og auglýsa sína skömm. Hugsið yður, Jesús elskar einnig slíka! Á einni af hinum síðustu samkom- um mínum sat maður, sem var svo drukkinn, að eg held þó hann vildi, að hann hefði ekki getað setið kyr, synd hans var mönnum augljós. Jesús sá hann líka, og þó elskaði Jesús hann. í Chicago situr morðingi í gæzlu- varðhaldi og bíður aftökunnar. Hann hefir myrt að minsta kosti 5 konur, að menn halda, sem hann hefir gift sig hverri eftir aðra — einhver mesta ófreskja, sem hefir óvirt jörðina með tilveru sinni, þó elskar Jesús hann líka. Rað finst ekki nokkur glötuð kona á götunum í Lundúnum,án þess Jes- ús elski hana. Enginn maður svo fyrirlitlegur eða djúpt fallinn í lesti, að Jesús ekki elski hann. En sá kærleiki, sem Jesús hefir til þessara manna, er ekki samskonar og sá, sem hann ber til sinna hlýðnu lærisveina. Gagnvart lærisveininum er það kærleiki með velþóknun, en gagn- vart syndaranum er það kærleiki með- aumkunarinnar. í báðum tilíellum er það eitthvað, sem dregur Jesúm að manninum. Ef þú ert hlýðinn Kristi, laðar þú hann að þér með eiginleg- leikum þínum, en ef þú fellur í synd, þá laðast hann að þér vegna þess, að neyð þín hrærir hann til meðaumk- unar. Pað er aðdáanlegt, að neyðin virðist hafa meira aðdráttarafl fyrir hann, en dygðirnar, því hann segir í dæmisög- unni u.n hina hundrað sauði, þó 99 væru vísir, en aðeins einn hefði vilst, þá fer hann að leita hins týnda og finnur hann, og að það er meiri gleði á himnum yfir einum syndara, sem iðrun gjörir, heldur en yfir níutíu og níu réttlátum, sem ekki þurfa yíirbót- ar við. í sínum óviðjafnanlega kær- leika lítur Jesús á lærisveina sína með hjartað fylt af gleði, snýr svo augum sínum frá þeim, sem hann hefir þókn- un á, en til þeirra, sem eru afhrak heimsins — sem fyrir honum eru langt um viðbjóðslegri heldur en fyr- ir beztu mönnum — og felur þeim,

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.