Frækorn


Frækorn - 11.07.1906, Síða 4

Frækorn - 11.07.1906, Síða 4
220 FRÆKORN heiðarlegur maður, þá ætti eg að minsta kosti að vera viljugur til að hugsa um þetta, eða finst yður það ekki ?■« »Jú«. »Viljið þér útskýra þetta fyrir mig?« Og hinn frægi læknir varð nú sálna- læknir, sat í nokkra daga saman með manninum og sýndi honum í biblíunni guðs veg til frelsunar. Hann sá Krist sem sinn frelsara, fór að treysta honum, og fór heim, frískur á sál og líkama, og svaf framvegis vel, það sem eftir var æfinnar. ----------------- „K 'fi lclar clag ur i i m, Hallelúja, heilsum glaðir hvíldardagsins morgunstund. Daginn gaf oss guð vor faðir, göngum árla hans á fund. Syngjum heilög lofsöngs-ljóð. Lofum guð með hjaríans óð. Hallelúja, heilsum glaðir hvíldardagsins morgunstund. Helgi dagur! Helgist drotni hver þín stund í anda hans. Aldrei herrans heiður þrotni, hljómi vítt um bygðir lands. Syngjum heilög lofsöngs-ljóð. Lofum guð með hjartans óð. Helgi dagur! Helgist drotni hver þín stund í anda hans. D. 0. ------*♦♦#>------ Hjálp við biblíurannsókn. I. Guðs heilagi andi. 1. Hverju lofaði Jesús lærisvein- um sínum, áður en hann fórtil himna? Postgj. 1. 5. 2. Hvernig er uppfylling þessa fyrirheitis lýst? Postgj. 2, 4. 3. Hvernig er er fyrirheitið nefnt í Lúk. 24, 49? Sbr. Postgj. 1, 4. 4. Geta menn vitað, hvort þeir séu skírðir með heilögum anda eða eigi ? Lúk. 24, 49 Postgj. 19, 2. 6. 5. Er skírn heilags anda og end- urtæðing eitt og hið sama? Lúk. 24, 49. Sbr. Jóh. 13, 10. Jak. 1, 18. 6. Hver er tilgangurinn með skírn heilags anda? Postgj. 4, 31. 33. 7. Hvað fylgir ætíð skírn andans? Postgj. 1, 8. Spurningar og svör. Sp. Hvernig á að skilja það, sem sagt eríbiblíunni á ýmsum stöðum (Jónas- arbók 3, 10. o. fl. st.), að >guð reiðist« ? H. Pess er fyrst að gæta, að guð er óumbreytanlegur. Hjáhonumer»hvorki umbreyting né umbreytingarskuggi.« (Jak. 1, 17.) Vér mennirnir erum þar á móti háðir valdi umbreytinganna, og afstaða vor gagnvart guði breyt- ist að því leyti, sem vér sjálfir breyt- umst; þegar vér þjónum honum í trú og hlýðni, þá hlýtur guð að sýna oss blessun og velþóknun, en þegar vér snúum frá honum með óhlýðni og synd, hlýtur guðs framkoma gagn- vart oss að verða önnur, ekki af því að guð breytist, heldur af því að hann í eðli sínu er hinn óumbreyt- anlegi og heilagi guð, sem launar hið góða, en hegnir hinu illa. Orðið »iðrast« er auðvitað ófull- komlegt eins og alt mannlegt mál — til þess að lýsa eiginleikum guðs, enda segir orðið: »Guð er ekki eins og mannsins barn, að hann sjái sig um hönd.« 4. Mós. 23, 19. »Ekki lýgur heldur ísraels athvarf og iðrast ekki, því hann erekki maður, að hann iðr- ist.« 1. Sam. 15, 29.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.