Frækorn - 25.07.1906, Qupperneq 1
TVEIR HEIMAR.
Hver maður er sem ögnin smá
í ómælandi geim,
en þó í sjálfum sér hann á
einn sjónum dulinn heim.
Pótt skúradimmu skýin hér
oft skyggi bjartan geim,
hvað sakar það, ef sólskin er
í sálarinnar heim?
Rótt ofsastormur sveiíli sér
um sæ og foldarhjúp,
hvað sakar það, ef alkyrt er
vort insta sálardjúp ?
Pótt kuldinn ríki harður hér
um haf, og land og sveit,
hvað sakar það, ef önd vor er
af eldi kærleiks heit ?
Sigurbjörn Sveinsson.
SÁÐ OG UPPSKERA.
Getum vér uppskorið annað?
en það, er höfum vér sáð?
Eilífðin ein fær það sannað. —
Er ei til réttur, sem náð?
Styðjum að hreyfingu hverri,
himins er ávinnur náð;
ei verður uppskeran verri,
ef hinu góða er sáð.
Sigurbjörn Sveinson.
Mcrkir píslarvottar.
r **- •..
*.vr-T
VII.
John Brddford var fæddur snemma
á stjórnarárum Hinriks 8. Hann var
brátt mjög námfús, og byrjaði að
nema lögfræði, en af því honum geðj-
aðist betur að guðfræðinni, flutti
hann á háskólann í Cambridge, og
vegna ráðvendni sinnar og frábærra
hæfileika fékk hann meistara nafnbót,
áður en hann var búinn að vera þar
árlangt. Litlu síðar varð hann hirð-
prestur Játvarðar 6. og varð einn hinna
þjóðkunnustu mótmælenda-prédikara
í ríkinu. En eftir að María, sem var
ramm-kaþólsk, komst til valda, var
hann ásakaður fyrir villutrú, og sett-