Frækorn


Frækorn - 25.07.1906, Page 3

Frækorn - 25.07.1906, Page 3
FRÆKORN 239 alt fullkomnað. Enn fremur stendur að hann hafi síðan tekið í hönd hon- um og reist hann á fætur. Og hann spratt upp og gekk um kring og lof- aði guð. Regar fólkið kom saman, sagði Pétur við það: »Jesús er sá, sem hefir heilan gjört þenna, trúin á hans nafn og trúin fyrir hann er það, sem gaf hinum halta slíkan albata fyr- ir allra yðar augum.« Rað eru eins og tvö atriði í heilsugjöf þessari. Fyrst gefur Pétur honum nafn Jesú, og með því að veita því móttöku fær hann kraft. Styrkleiki er honurn veitt- ur, en hann hefir enn ekki notað sér hann. Pegar Pétur tekur í hönd hans, fær hann fulla heilsu, svo að hann getur gengið og stokkið; en ef hann hefði ekki tekið móti þeim styrkleika, sem var honum heitinn fyrir Jesú nafn, þá hefði hann aldrei komið hon- um að neinum notum. Skilur þú nú það, sem guðs orð kennir oss, að þar sem vér séum komnir að Jesú krossi, beri oss með þeirri athöfn, sem oss er sjálfráð, að helga oss því líferni, sem oss er boðið í upprisu hans? Fyrir skírnina, til hans dauða, skuld- bindum vér oss að lifa í hlýðni við guðs orð fyrir þann kraft, sem guð uppvakti Jesúm með frá dauðum. »Eða vitið þér ekki, að vér, svo marg- ir, sem skírðir erum til Jesú Krists, vér erum skírðir til hans dauða? Vér erum því greftraðir með honum fyrir skírnina til dauðans, svo að eins og Kristur uppreis frá dauðum fyrir dýrð föðursins, svo eigum vér að ganga í endurnýungu lífsins.« Skírnin er liins fríviljuga manns hátíðlega vígsla til Jesú, til aðdeyja liinu gamla fyrir hans dauða, og fyrir hans upprisu að lifa nýju lífi. Fyrir skírnina höfum vér verið greftr- aðir, til þess að vér mættum ganga fram fyrir guð með hreinum samvizk- um, til þess að vér skulum ekki einu sinni vilja framar þekkja Krist eítir holdinu, heldur Iifa nýju líferni, þjón- andi guði í anda og sannleika, því faðirinn leitar þeirra, sem þannig til- biðja hann. Jóh. 4, 23. í skírninni afhendi eg guði sjálfan mig, til þess að fá í staðinn þann kraft, sem veitti hinum halta manni styrkleika til að ganga og stökkva. En þegar Pétur segir: »Stattu upp« þá tekur hinn halti á móti styrkleik- anum og hann verður honum að notum. Vér höfum fyrir skírnina ver- ið greftraðir með Kristi. Engum er meinað þetta sæla hlutskifti, heldur er það réttur vor allra, að þar seni hans nafni er úthelt yfir oss, eins og ilmandi olíu, að skuldbinda oss til nýs lífernis í hlýðni við guð. A hvíta- sunnuhátíðinni segir Pétur við söfn- uðinn: »Hver af yður láti skíra sig til nafns Jesú Krists, til fyrirgefningar syndanna. Pgb. 2, 38. Sjáið hér hina sjálfráðu athöfn. Hve nær hefir þú látið skíra þig til fyrirgefningar synda þinna, sem þú öðlast við Jesú Kross? Enn fremur stendur skrifað: »Pví svo margir af yður, sem eruð skírðir til Krists, þér hat'ið íklæðst Kristi.« Qal. 3, 27. Hve nær hefir þú íklætt þig Kristi fyrir skírnina? Enn heyrum vér: »Fyrir hann eruð þér og um- skornir þeirri umskurn, sem ekki er með höndum gjörð, heldur. innifalin í afleggingu syndum spiltrar náttúru, það er, þér eruð umskornir með um- skurn Krists, með því að þer eruð með honum greftraðir í skírninni; í honum, og með honum eruð þér og upprisnir fyrir trúna á mátt guðs, er uppvakti hann frá dauðum.« Kol. 2, 11 — 12. Mun nokkur geta orðið um- skorinn áður en hann er í heiminn

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.