Frækorn - 18.01.1907, Blaðsíða 4
I ö
fRÆXÖRN
fiana, en hann var huglaus maður og
hafði ekki þrek til að standa fast vio j
Sannfæringu sína Hahn óttaðist fé-
íaga sína, stéttarbræður og vini, og
kom aldrei fram opinberlega til að'
viðurkenna Krist fyrir mönnum, en
hann hugsaði, að af því hann hafði
hið ytra haft samband við söfnuð
Krists á jörðunni, þá mundi hann j
geta fylgst með þeim einnig hinum-
megin. Jesús snýr sér nú til hans
og segir — eg held ekki svo mjög
í reiði sem í ósegjanlegri meðaumk-
un: — »Far burt, far burt! Rú við-
urkendir mig ekki á jörðunni fyrir
mönnunum, svo eg get ekki kannast
við þig fyrir föður mínum á himnum.«
Menn og konur, þetta er hvað það
kostar að vera ekki kristinn, ekki op- j
inber játandi og eftirfylgjandi Knsts.
Niðurl. næst.
Bœkur og rit.
Hallgr. /ónson: Bláklukkur. Nokkur
kvæði. 1. hefíi, Reykjavík 1900.
Petta er harla einkennilegt kver; I
sjálfsagt algerlega óiíkt öllum öðrum
kvæðakverum í heimi. Rað er 5 arkir
að stærð í litlu 8-b!.-broti, inniheldur
26 smákvæði, er hæglega hefðu kom-
ist á 2 arkir, og með hægu móti á
3; en af einhverjum ásíæðum fer útg.
(líklega höfundurinn) að setja inn
fjölda af al-c.uðum bls. í bókina, svo
hún lítur út að vera hálfu efnisríkari,
en hún er. Maður gæti freistast til
að ráðleggja útg. að hafa nú eintóm-
an hvítan,- óprentaðan pappír í næsta
hefti, svo mönnum gæfist kosturáað
»skálda i eyðurnar« almennilega. Rað
hefði nú að minsta kosti það gott í
för með sér, að öllum ritdómurum
og*íslenzku-haukum væri gert ómögu-
legt að fjnna neitt að innihaldinu.
En til þess að sleppa gamninu,
skulum vér segja það um þetta 1.
hefti af :Bláklukkum«, að það af því,
sem er prentmál, er nfjög eigulegf.
Hallgr. Jónsson hefir næma fegurðar-
tiffinningu og mörg. af kvæðunum
eru einkárfögur. Eigi fá af þeim hafa
birst í »Frækornum«, svosem: >dsiand«,'
»Hver liefir málað?« »Breiðafjarðar-
dalir«, »Svása tár«, »Cæsar> o. fb
Skólablaðið.
Svo nefnist nýtt blað, sem kenn-
arar Flensborgarskólans eru farnir að
gefa út frá byrjun þessa árs. Helgi
kennari Valtýsson er ráðinn ritstjóri
þess, og er hann efalaust einhver hinn
heppilegasti maður til þess. Hann
hefir ágæta kennara mentun, og brenn-
andi áhuga á þvr, sem kann aðverða
íslenzkum mentamálum að gagni.
Blaðið er þartlegt, og vér óskum
því góðs gengis.
Hitt og þetta um tóbak
Eitt pund a/ tóbaki getur drepið 300
manns.
Eitur það, sem er í einu einasta
pundi af tóbaki, er nóg til að drepa
300 manns, ef það er tekið á þann
hátt, að það liafi full áhrif. í einum
vindli er nóg eitur til að drepa tvo
menn, ef það er tekið í einu.
Hottentottarnir brúka tóbaksolíuna
tii að drepa höggorma. Einn dropi
hefir dauðann jafnskjótt í för með
sér, eins og þó höggormurinn hefði
orðið fyrir eldingu. Garðyrkjumenn
brúka líka þenna vökva til að drepa
orma og skaðieg skorkvikindi.
Sagan getur um mörg atvik, er börn
hafa samstundis dáið, þegar olía þessi
hefir komið í sár á andliti þeirra eða
höfði.
Eitrun gegnum húðina.
Tóbakseitur er svo sterkt og á-
hrifamikið, að þegar menn leggja
óþurkuð tóbaksbiöð á húðina, þá