Frækorn - 22.07.1909, Síða 5

Frækorn - 22.07.1909, Síða 5
FRÆKOKN Hcgðun einstaklingsins. (Úr Fjallkonunni.) Eg sé að brennivínsfélagið, sem svo er kallað (ekki að ástæðulausu) segir í þessu ávarpi, sem það hefir gefið út: »Vér teljum það skerðingu á persónulegu frelsi manna, að setja lagabann um það, er aðeins varðar hegðun einstaklingsins«. Eg kannast við að þess orð séu í sjálfu sér sönn; en aftur á móti verð eg að mótmæla því harðlega, að þau geti átt við aðflutnings- bannið. Eg viðurkermi það aldrei, að það varði að eins hegðun ein- staklingsins, hvort menn drekki vín eða ekki. Eg hefi svo oft og átakanlega séð það og reynt, að það varðar líka heilsu og líf og velferð fjölda margra sem aldrei drekka vín. Og eg skal sanna mál mitt, þó að hamingjan megi nú vita, hvort eg get gert það tneð þeirri stillingu sem eg vildi, af því að mér er svo gramt í geði við þessar brennvínsvambir, sem nú æila að eyðileggja vonir mínar um endalok áfengisbölvunarinnar á Islandi, og mér ofbýður svo hræsnin og öfug- mælin í ávarpi þeirra, þó að enginn þurfi nú raunar að koma það á óvart úr þeirri átt. Eg átti fyrir mörgum árum heima uppi í sveit. F*á var það einu sinni um hávetur f verstu harðindunum, að elsti drengurinn minn veiktist hættulega. Við sendum viunumann- inn eftir lækninum, sem átti lieima hálfa dagleið frá okkur. Hann var ekki heima þegar maðurinn kom; var í heimboði hjá sýslumannin- um. Maðurinn fór þangað og bar upp erindið. Sýslumaður og læknir sátu við spil óg púnsdrykkju. Lækn- irinn afsagði að fara eitt fet, og sýslumaðurinnafsagði að sleppa hon- um. Sendimaðurinn lenti í orða- kasti við þá og dró víst ekki af sér. Sýslumaðurinn rak hann út og settist við spilin aftur með lækninum. Rá gerði sendimaðurinn það, sem margur hefði látið ógert í hans spor- um. Hann brá sér á næsta bæ og fékk þar með sér tvo menn heim til sýslumannsinns, gekk til stofu með þá og bað þá vera votta að því, sem þar færi fram. Síðan spurði hann læknirinn, hvort hann kannaðist við að hafa neitað að koma með sér til sjúklings Honum varð ógreitt um svarið. Sýslumaðurinn ætlaði að fara að hreyta ónotum í sendimann, en hann spurði þá yfir- valdið, hvort hann kannaðist ekki við að hafa hvatt læknirinn til að hafa gert skyldu og rekið sig út fyrir það eitt að hann var að vitja læknis í lífsnauðsyn. Það stóð á svarinu hjá sýslunranni líka. En eftir þetta fór að losna um læknirinn. Að skilnaði stakk sýslumaður flösku í vasa hans og sagði að honum veitti víst ekki af að Inta sér á henni á leiðinni; he .............. »pakkið« ætti ekki að geta fagnað yfir því, að hann# dræpist úti í kuldar.um. Undir háttatíma um kvöldið eftir komu þeir. F’á var búið úr flösk- unni og nieira til; læknirinn varð að koma við á öðrum hverjum bæ seinni hluta dagsins til þess að biðja um hressingu til að halda á sér liita. F*að varð að leiða hann inn, þegar hann kom loksins; og þó að drengurinn væri kominn í andlátið, að því er virtist, þá gat eg ómögu- lega þolað að læknirinn kæmi nálægt honum, svona á sig kominn. Eg lokaði herberginu okkar svoað hann léti drenginn í friði; lét síðan flóa nýmjólk ofan í læknirinn; maðurinn minn afklæddi hann, eins og barn, 121 og svo létum við hann sofna. — Eg vakti yfir drengnum mínm þá nótt — það var þriðja nóttin sem eg gerði það. Mig syfjaði ekki þessa nótt; kvalir barnsins míns Vi.ru sárari en svo, að mig hefði getað syfjað, þó ekkert hefði bæzt við til að halda mér vakandi. Hefði drengur- inn dáið þá, eins og eg bjóst við á hverju augnabliki, þá veit eg ekki hvað eg hefði gert. Eg veit aðeins það, áð lækuirinn hefði þá ekki sofið í mínum húsum það sem eftir var næturinnar, hefði eg fengið að ráða nokkru. — Við vöktum hann með morgninum, og gekk það ekki þrautalaust. F’egar hann var búinn að líta á drenginn, með stírurnar í augunum, sagði hann ekki annað én þetta: »Eg hefi ekkert hér að gera, eins og eg vissi. F*að er uní seinan. F’ið hafið trassað að sækja mig þangað tii það var orðið of seint.« Eg liirði ekki um að skýra frá öllu því, sem eg sagði á eftir. Eg veit að eg lét tilfinningarnar hiaupa með mig í gönur þá. Eg atyrti læknirinn fyrir drykkjuskap og em- bætíisvanrækslu. Hann sagði það kæmi sér við, en engum öðrum, hvað hann létiofanísig. (F*að »varðar að eins hegðun einstaklingsins«, mundi hann segja núna). Og þá orgaði eg inn í eyrað á honum, að þetta gæti engion sagt í alvöru, nema sá sem væri mannhundur og úrþvætti. F*au orð hefi eg ekki afturkaliað enn, og býst ekki við að gera það hér eftir. Drengnum nu'num batnaði; en það var ekki lækninum að þakka. Það \ar kominn annar læknir í héraðið tólf árum seinna .Honum þótti líka góður sopinn. Hann var sóttur á tvö heimili í nágrenni við okkur þá um Jónsmessuna; það hafði

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.