Frækorn - 31.07.1910, Síða 7

Frækorn - 31.07.1910, Síða 7
F R Æ K O R N 95 Hvort Nero hafi iðrast eftir þetta morð, er ekkert sagt um ísögunni; en því meira er talað um liið voða- lega líf hans; altaf var hann að sökkva dýpra og dýpra, og loks drap hann sína eigin móður. Og aftur var það ósiðsemi hans, sem leiddi hann svo langt. Á 5. stjórnarári sínu kyntist hann konu einni, sem var gift Otho, vini hans. Otho var fljótt sendur sem embætt- ismaður til Portugal og kona hans Poppea Sabina, varð frilla Neros. En hún varð ekki ánægð með það vildi fá að verða keisarinna, og fá Nero til að skilja við konu sína Oktaviu. Samt sá hún það, að hún gat ekki komið þessu áformi áfram, svo lengi sem Agrippina móðir hans lifði. Því fór hún að eggja soninn upp móti móðurinni. Og hún hafði svo mikil áhrif á Nero, að hann ákvað að myrða móður sína. En það var um að gjöra að fara þannnig að því, að enginn myndi hugsa að tiann hefði gjört það. Þá gaf þræll nokkur lausgefinn, að nafni Anicetus, það ráð að láta Agrippinu drukna á sjóferð; láta byggja skip, sem var þannig út- búið að hægt væri að fá það til að sökkva; því þá mundi enginn hugsa um neitt. Þetta líkaði Nero. Hann fór til þess staðar, sem Bajæ nefuist og bauð móður sinni að heimsækja sig. Þegar hún kom, var hann henni hinn bezti. Og þegar hún var að fara heim, kvaddi liann liana innilega og kysti hana. Hvort hann hafi gjört þetta alt af eintómri hræsni, er auðvitað bágt að segja; en það er líklegt að hann hafi ekki eiginlega með glöðum huga viljað móður sinni bana, heldur hefir hann verið hálfneyddur til þess af frillu sinni Poppeu, og að hann hafi getað haft mannlegar tilfinningar á sama tíma, sem hann var harðari en dýr. — Hann kvaddi móður sína í þeirri hugsun, að hún skyldi drukna á leiðinni með hinu svikula skipi. Skipið gliðnaði í sundur ekki langt frá landi, og Agrippina synti í land. Frh. ¥ýr íslenzkur banniaga- maðnr. — Hefirðu heyrt það, að hann Magnús Einarsson, dýralæknir, er orðinn bannaður? - Nei það er ómögulegt. Hann er æstur með innflutn- ingsbanni á útlendu kynbótafé. —- Af hvaða ástæðu? -- Af því að það sé svo hætt við að einhverjir misbrúki það, ef innflutningur er leyfður ogþaðgeti stafað af því sýkingarhætta og því orðið til skaða. — Það er nú rétt. En þá hlýt- ur hann að vera með innflutnings- banni á áfengi, því það ersamskon- ar hætta sem þar liggur til grund- vallar; það eru svo margir sem mis- brúka áfengið og það veldur svo nnklum skaða. — Ertu frá þér? Nei, hann er jafnstækur á móti aðflutningsbanni á áfengi og áður. — Hvernig getur það att sér stað? — Jú. Hann er með innflutn- ingsbanni á sauðfé af því að þá losnar hann við alla örðugleikana, sem af því siafa að liafa eftirlitmeð og koma í veg fyrir sýkinguna og iækna hana. Og hann er á móti aðflutnmgsbarmi áfengis af því að þá getur hann ekki glatt sig á því í góðra vina hóp. — Nú skil eg. Það er bara sjálfs- elska. Templar. HeilMgðisreglur. 1. Anda aðeins að þér hreint loft. 2. Neyttu aðeins hoflrar fæðu. 3. Klæddu þig samkvæmt reglum heilbrigðinnar. 4. Vertu oft í sólskininu. 5. Taktu þér næga hreyfingu. 6. Fáðu þér næga hvíld. 7. Haltu líkamanum hreinum. 8. Stjórna öllum ílöngunum þínum. 9. Vertu attíð glaður. 10. Vertu óeigingjarn. Hitt og þetta. Mestur stórbóndi í helmi. Mesti stórbóndinn á hnetti vorum á heíma í Mexico-lýðveldinu í Mið- Anieríku. Bóndi þessi heitir Don Lois Terrasas, og er landareign hans 150 enskar mílur frá norðri til suðurs, en 200 enskar mílur frá austri til vesturs. Hann er taiinn eiga eina millíón nautgripa, sjö hundruð þúsundir sauðfjár, og þrjú hundruð þúsundir hesta, og slátraði hann síðastliðið ár til sölu: tvö hundruð þúsund nautgripum, eitt hundrað og fimmtíu þúsundum sauðfjár, og seldi lifandi eitt lnmdrað þúsund hesta. Tvö hundruð sel hefir liann alls á jörð sinni, og heyskapur hans varð síðastliðið ár 600 þúsund tonn (eitt tonn frek 200 pd.), og korn- uppskeran 200 þúsund bushel. Vinnufólk hans er alls tiu þús- undir manns. Ibúðarhús bygði hann sér nýskeð, er kostaði 1 millíón 600 þúsund dollara, og getur hann hýst fimm hundruð gesta í einu. Fjöldi merkra manna heimsækja Don Lois árlega, til að skoða »8 milíón ekra kotið -. - Árið 1906 ferðaðist t. d. þýzkur prins 5000 rnílur til þess að heimsækja hann. Don Lois er kvæntur laglegri konu, og eiga þau tólf efnileg börn, og una, sem líklegt er, mæta vel hag sínum, og vilja eigi skifta á stöðu sinni við stöðu eða tign nokkurs annars. Fijótir hraðritarar. Hraðritar héldu nýskeð fund í New-York, til þess að reyna, hver mestu gæti afkastað á skömtnum tíma, að því er til hraðskriftar kemur. Afkastamestur varð mr. E. L. Johnson frá New-York, er ritaði 173 orð á mínútunni. - Næst honum gekk 17 ára gömul stúlka frá New Jersey, er ritaði '64 orð á mínútunni, og þriðji í röðinni 16 ára piltur frá Washington, er ritaði 159 orð á sama tíma. Pjv.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.