Frækorn - 16.09.1910, Side 5
F R Æ K O R N
125
Moisant.
Loftferðir.
Um fátt annað er nú meiratalað
í heimi. Nýskeð fór loftfari að nafni
Moisant frá Frakklandi yfir um haf
til Dover á Englandi og þótti það
mikið glæfraverk. Emn farþega hafði
hann með.
Norðurheimsskautsferðir.
Ekki minkar áhuginn hjá mönn-
um fyrir Norðurheimsskautsferöum.
Nyskeð hafa lagt á stað í könnun-
arferðir Róald Amundsem fráNoregi
og Zeppelín greifi frá Þýzkalandi.
Ekki eru þær ferðir svipaðar hvor
annari, því að Amundsen fer í venju-
legu skipi, sjóleiðina, en Zeppelín í
loftskipi eins og fuglinn fljúgandi.
Af mönnunum, sem farnir eru út í
þessar svaðilferðir, flytjum vér hér
myndir. '
Myndin af Amundsen og félög-
um hans er tekin á »Fram«, skip-
inu, sem Nansen notaði í sinni för
fyrir nokkrum árum. Það er Amund-
sen, sem nierkið x er sett við.
Hin myndin er tekin *um borð«
áloftskipi Zeppelíns. Aðalmennirnir
eru merktir á myndinni með töl-
um: 1. er Prins Heinrich, 2. er
dr. Hergeaell, en 3. Zeppelín sjálfur.