Frækorn - 22.12.1910, Síða 5

Frækorn - 22.12.1910, Síða 5
F R Æ K O R N 181 En þessar umbætur stafa þaðan, að mikilmensku og samkepnishugur er vaknaður hjá pjóðinni. Þeir sjá það t. d., að þjóðin nýtur sín ekki að veg og völdum, meðan ópíums- reykingarnar, drepa dug og dáð úr landsins börnum. Svo er varið þess- um umbótarhug. En þessar umbætur, sem verið er með, duga þjóðinni ekki nema á hálfa leið. Það er lifandi trú sem mest og sárast vantar þar í landi. Og það er trúin, sem Jesús Kristur kendi. Skurðgoðadyrkunernú orðið frem- ur í rénun hjá almenningi, og heldur er hjátrúarvillan að eyðast fyrir áhrif- um fagnaðarerindisins. En svo fram- arlega sem Kínverjar eiga að verða voldug og göfug þjóð, þá þarf trúarlífið að komast inn í hjartað með sínum hreinsandi og helgandi krafti frá himni. Skurðgoðadýrkunin á engan þann kraft í sér, að mannslundin betrist og helgist. Því er það, að Kínaveldi getur eigi náð neinum verulegum framförum og sannarlegum þjóðþrifT um með öðru móti en því, að trúar- lífið í landinu gjörbreytist. Kristindómurinn er eina vonin fyrir Kínaveldi, fagnaðarerindið umJesúm Krist. Við, sem erum hér í kristniboðs- starfinu, horfum daglega upp á svo mikinn sjúkdóm, sjáum svo mikla eymu, heyrum svo mörg hörnning- aróp. Og hjartanlega lofum við þá guð fyrir það,að við hlýddum köll- un hans, og tókum handleiðslu hans, að verja lífi voru í drottins þjónustu í Kína. Og við hugsum til þess, hvað verkefnið er hér rnikið fyrir kristni- boðana. Hvtö við gætum komið mörgum skólurn á laggirnar! Hvað mörgum sjúkrahúsum við gætum komið á fót! Hvað margar og margar þúsundir vildu með fögnuði heyra boðskapinn! Bara, bara, að það væru fleiri kristniboðar! — Og svo að hugsa sér, hvað margar mil- jónir manna það eru, sem aldrei hafa heyrt eitt orð um Jesúm Krist! Og þá hryggjumst við í okkar hjört- um yfir því, að í alkristnum löndum skuli vera menn þúsundum, þúsund- um saman, er lifa lífi sínu án þess að hafa nokkuð æðra takmark fram undan, hugsa bara um munn og maga, og láta lífið hossa sér,en hirða eigi um heill og þarfir heiðingjanna. Ogá hverju ári deyja miljónir manna, er þekkja ekkert til Jesú Krists, og að hann er alheimsfrelsarinn. Og þessar miljónir verðaað lifa og deyja vonarlausu lífi, Og enn verð eg að minna á hrópið sem kemur frá Kína. Land- ið hrópar á Krist og hans fagnaðar- boðskap. Það er hróp frá ógur- legum manngrúa. Og þetta fólk, sem enginn fær tölu á komið, lific í óumræðanlegri neyð. Það er sennilega ekki nokkur þjóð í heimi sem jafnmikið verður að kveljast í höndum hinna fáránlegustu skottulækna og vesalings Kínverjar. Fjórði hluti alls uiannkynsins á ekki annað framundan sér en grafar myrkrið, því að ekki hafa þeir menn heyrt um hann getið, sem einn getur brotið brodd dauðans. Fjórði hluti mannkynsins bíður og bíður. Kínverjar bíða frelsarans Jesú Krisls. Og hann hefir svo lengi biðið eftir þeim. Verkefnið er mikið, ogfyrir miklu er að gangast. Það er svo sem ekki í kot vísað fyrir kristniboðana í Kína. Þjóðin á yfirburða merka sögu. Hún er grónust allra þjóða Austurlanda. Sannarlega má því mikið í sölurnar leggja til þess að vísa þeirri þióð veginn til Krisls. En svo er það önnur hrópandi rödd, sem nær eyrum vorum. Henn- ar gætir enn meir en neyðarópsins frá manngrúanum ótölulega. Og þeirri ísropandi rödd verður enn síður staoið á móti. Það er hin hrópandi rödd Krists sjálfs til allra sinna játenda. »Opnu dyrnar« inn til heiðnu þjóðanna Um víða veröld hljóta að vera stórt og alvaríegt íhugunarefni fyrir hvern kristinn mann. Hrópandi röddin sú kallar á hjálp og hluttöku allra þeirra, sem bera kristið nafn. Við biðjum og grátbænum í Krists nafni alla játendur hans, að beina nú augum sinum til Áusturlanda, og horfa fastlega og með innilegri bæn á akrana sem eru »hvítir ti uppskeru* í hinu inikla Kínaveldi, með hjartað í algerðri undirgeftii, svo sem hjá hinum forna spámanni er mælti: Drottinn, hér er eg, send þú mig! Jes.6,8. N. K Davíðs sálmar. Hvern sálminn ætti maður að lesa f þrumuveðri? Þann 18. Hvern sálminn skyldi lesaá bjartri ög heiðskýrri vetrar-nóttu? Hinn 8. Hvern sálminn á vel við að lesa eftir endurnærandi regn á eftir lang- varandi þurrviðri? Þann 65. Hverjir sálmarnir eru lofsöngs- sálmar? Sá 113. og hinír fimm næstu. Hvenær voru þeir sungnir? Á hinum miklu hátíðum Gyðinganna, einkum eftir páskahátíðina. Hvern sálminn hyggja menn að vera sunginn við vígslu sfðara must- érisins? Hinn 48. I hverjum sálminum er talað um miskunnsemi guðs, með sömu orð- um 26 sinnum? í þeím 136. Hvern sálminn vitum vér, aö satan þekíi? Hinn 91; því hann tilfærðj orð úr honum við freistinguna á musterisbustinni. Hvaða sálmar voru sungnir á laufskálahátíðinm? Hinn 65. og 67. Hvernig lýkur sálma-bókinni? Með alsherjar samsöng allra radda og öllum hljóðfærum. Hvað er heilagleiki? Oft er þetta orð misskilið og ranglega notað, Heilagleiki keínuraf orðinu »heill« (»allur), og þýðir líka í anglosax- nesku málunum heilbrigði, og eins er í norðurlandamálunum, því að vera »heilbrigður« þýðir að vera »heill« heilsu. Heilagur maður er sá, sem er orðinn heilhjartaður og andlega heilbrigður. Guðs orð áminnir oss um að sækjast eftir heilagleika, án hvers enginn kann drottin að sjá.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.