Frækorn - 22.12.1910, Side 7

Frækorn - 22.12.1910, Side 7
F R Æ K O R N 181 Mundu ávalt, að það að tala er ósegjanlega dýrmætt, en þögnin hefir þó oft enn þá meiri þýðingu. Vonastu ekki eftir of miklu af öðrum, en mundu að allir menn eru að náttúrunni vondir, og vér verð- um að fyrirgefa og hafa umburðar- lyndi, þar eð vér sjálfir oft þörfn- umst fyrirgefningar. Ávíta ekki, þegar þú ert reiður, og vertu ekki hávær, þegar þú finn- ur að við einhvern. Vektu kærleika en ekki ótta, virðingu, en ekki hræðslu. Mundu að umgengis vin- ir þínir eiga sálir, sem þurfa að búast undir eilífa lífið. i ■ Gleymdu ekki að bera fram í bæn- um þínum alla liina mörgtf og lít- ilfjörlegu smámuni, sem mæta í daglega lífinu, og á einhvern hátt óróa og þréyta þig; það getur ver- ið óþægilegt tillit, óvingjarnlegt orð. — Tala við guð úm alt. Þú get- ur sagt guði alt, sem þú gætireng- um manni sagt frá. Hann er svo mikill og góður, að hann getur tek- ið jafnvel jDÍnar minstu sorgir, og það, sem meira er: hann getur og vill hjálpa þér að bera þær, ef hann sér þér hollara að frelsa þig frá þeim undir eins. Þú þarft aldrei að sjá eftir þeim tíma, sem þú hefir varið tll bæna. Uppreisn í Mexikó. Voðalegt ástand hefir verið í ' Mexíkó í seinni tíð. Uppreisn var gjörð gegn forsetanum Porfirio Diaz og haldið var um tíma, að hann væri myrtur. Foringi upp- reistarmanna Madero, lét hrópa sig forseta og gaf út auglýsingu um, að útlendingar skyldu njót vearndar, nýustu fregnir segja þó að Diaz hafi tekist að bæla byltinguna niður. Diaz er dugnaðarmaður og mik- ill stjórnvitringur. Hann hefir verið stjórnari Mexikó hin síðustu 30 ár. Tolstoy. Dánardagur Tolstoys var ekki 15. nóv., eins og skýrt var frá í fyrstu, heldur 20. nóv. Eins og menn vissu, fór Tolstoy að heiman nokrum dögum áður en hann dó. Menn hugðu, að hann færi til klausturs eins eigi allangt frá Jasnaja Poljana. En þetta reyndist rangt: Hann fór á leið til Kákasus, til trúbræðra sinna þar. En á þeirri leið varð hann veikur og varð að leggjast fýrir á járnbrautarstöð, sem Astapovo heitir. Hann hafði ofkælt sig og var hlaupin í hann lungna- bólga. Þangað sótti svo fjölskylda hans til þess að vera hjá honum í veikindum hans. Síðustu orð hans voru: »Þaðeru margar miljónir manna, sem þjást. Hvers vegna eru þá svona margir við rúmið mitt?« Fá orð lýsa betur hugarfari Tolstoys en þau orð gera. Alberti, fv. íslands-ráðherra, er dæmdur í undirrétti í 8 ára hegningarhúss- vinnu. Konungaskífti i Siam. Konungurinn í Síam, Chulalong- korn, er látinn. Hann hafði mikil mök við Evrópumenn og dvaldi um nokkurn tíma í Kaupmannahöfn. Hann var að ýtnsu letti góður kon- ungur. Hinn nýi konungur er sonur liins dána; hann heitir Wajiravudh og hefir fengið mentun sína á Englandi. Vatnsflóð áköf í Frakklandi. Signa og Rhón hafa vaxið stórkostlega og gjört afar- mikinn skaða. Löfl hefir norska stjórnin staðfest 2.

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.