Frækorn - 07.03.1911, Page 8
32
F R Æ K O R N
En nú er svo, að vísindin hafa
á síðustu tímum frætt okkur um það,
að vatn getur flutt ýmsar veikinda-
kveikjur, og að jafnvel þó að það
sé iagurt og tært að sjá, getur það
verið hættulegt fyrir heilsu okkar.
Yið eigum þá að læra, að verj-
ast þessum hættum með því, að fá
að vita, hvað það er, sem getur
gert drykkjarvatnið hæltulegt, ogmeð
hverjum ráðum við getum varizt
hættunum. Dr. X.
gmdvegis.
—- Margar hættulegar villur eru
til, en engin hættulegri en sú, að
hætta að sjá það skaðvænlega í
syndirini. Þó höfum vér ástæðu
til að óttast fyrir, að þessi villa nái
meiri útbreiðslu en vér getum feng-
ið okkur að trúa.
— Þegar þú biður, þá láttu held-
ur hjarta þitt vera án orða, cn orð
þín án hjarta.
— Einkenni hins þróttmikla anda
er, að hann eflist í mótlæti, eins
og fljótið við stíflurnar.
— Ekkert hugarfar er svo gott,
að það ekki geti orðið betra, ekkert
hugarfar svo ilt. að það ekki geti
umbreyst; engin synd er svo stór,
að hún geti ekki orðið fyrirgefin.
— Auðmýktin cr jarðvegur, þar
sem kristilegar dygðir vaxa bezt —
alveg eins og vorblómin fyrst gróa
í dalsdrögunum, sem eru í skjóli
fyrir stormunum, en opin fyrir sól-
unn .
Samkomur.
Sunnudaga kl. 6.,'iO síðd. i Sílóam.
HvUdardaga kl 11 f, h, Östlund.
31
=£Q=
------£)
SrÉTTI R - FRÓÐLEIKUR
CT\q) Q) |j
<3r
=05=
Loftför frá íslandi.
Nokkrir þýskir vísindamenn hafa
hugsað sjer að fara yfir Atlandshaf-
ið í loftfari sem stýra má. Þeir
ráðgera að leggja upp frá nágrenni
Reykjavíkur og lenda í Canada.
Þessir fara förina:
Joseph Briicker frá New York,
Doctor Hans Fabrice forstöðumað-
ur her-flugskólans í Múnchen,
Professor Halt við veðursansókna-
stöðina í Múnchen, verkfræðingur
M. Múller og ónafngreindur flota-
liðsforingi.
Aðalörðugleikinn við þessa Iöngu
ferð er að komast hjá of miklum
gas-missi, vegna sólaihita.
Professor Halt og Brúcker hugsa
sjer að ráða bót á þessum örðug-
leika, með því að væta yfirborð
loftfarsins með þar til gerðri dælu
sem dreifi vatninu yfir belginn.
Til þess að komast hjá slysum
verður farþegarúmið bátur, 10 stik-
ur að lengd og 3 að breidd, með
tveim bifvjelum, er hafa 100 hesta
afl.
Prinsessa Heinrich verður við-
stödd þá er þessi loftbátur *hleyp-
ur af stokkunum* í Kiel.
Það er stór þýsk cacaoverksmiðja,
sem ber allan kostnað við för þessa
og á loftfarið að heita eftir henni.
— Svarti dauðinn geysar í Kína
og í Rússlandi.
— Alþingi hefir lítið gert enn
annað en vantreysta ráðherra.
— Kvennaskólinn á Blönduósi
brann til kaldra kola 10. febr.
— Maður varð úti aðfaranóttsunnu-
dagsins á veginum til Hafnarfjarðar.
Fanst örendur á Kópavogshálsi á
sunnudaginn. Hann hét Einar Sig-
urðsson og var daglaunamaður hjeð-
ari úr bænum.
— ís mun nú fyrir öllu Vestur og
Norðurlandi. Frá Húsavík er sím-
að um mikinn ís þar fyrir landi
og Mjölnir sá mjög mikinn ís fyrir
Vestfjörðum og jafnvel allt suður að
Bjargtöngum, en þangað kemur mjög
sjaldan ís. Einn jakinn snart Mjölni
lítið eitt, og varð dæld eftir. Vísir.
— Ráðherra baðst lausnar 25.
febr. Var hún veitt.
— Konungur er á ferðalagi til
Svíþjóðar. Því verður enginn nýr
íslandsráðherra útnefndur fyr en kon-
ungur kemur heim til Kaupmanna-
hafnar aftur 11. þ. m.
Garborg og Strindberg.
í smágreininni um Strindberg í
síðasta tbl stóð í seinustu setning-
unni: »Garborg hefir orðið alvar-
legur trúniaður«. Hér á auðvitað
að standa: »Strindbcrg hefir orðið
alvarlegur trúmaður*. En annars
hafa á seinni árum lík býsn átt
sér stað í andlegum efnum með
þeim báðum.
Útsölumenn,
sem kynnu að hafa fengið of-
sent 1. tbl. af árg. 1910, eru beðnir
að endursenda það blað. Það er
þrotið á afgreiðslunni.
Þetta tölublað
kemur viku seinna en skyldi og
er afsökunar beðið á því. Annríki
i prentsmiðjunni veldur.
BEST OG ODYRAST PRENTAR
PRENTSMIÐJA D. ÖSTLUNDS
G
amlan eir, látún, kopar og
blý kaupir Vald. Poulsen,
Hverfisg. 6.