Gjallandi - 01.05.1907, Side 7

Gjallandi - 01.05.1907, Side 7
GJALLANDI 7 maður, er sýnir sinn hrósverða frœknleik, á þennan hátt, á ritstj. »Gjallanda« á næst guði sínum að þakka að honum er þyrmt, — En lögreglan? Hvernig á hún í slíkri stórborg, sem Rvík, að vera alstaðar, ætli að hún hafi eigi nóg að gera með að liugsa um útlendingana, (brjóta kylfu eins og nýtt spakmæli nefner), sem lcggj- ast til hvíldar eftir erfviði og þunga dagsins — þar sem hvíldin fæst — en að morgni, t. d. kl. 9 koma með »timburmenn«, með reifað höfuð fyrir almennings-sjón- ir. Það er nóg verk! Flagð undir fögru skinni er þessi svonefnda »Heilbrigðisnefnd Reykjavikur«, sem er ætluð til að vernda líf og heilsu bæjarbúa, gegn hinn skaðvæna lofti, er stafar að miklu leyti, af óþrifn- aði og hirðuleysi manna sjálfra, (þeir taki sneið sem eiga). Rergstaðastræti ber vott um samvizkusamlega starfsemi nefndar-nefnu þessarar. í jarðeplagarði, gagn- vart húsinu nr. 25 í Bergst.str., var í þrjá daga og þrjár nætur, að gufa upp í loftið, kjarninn úr 3—4 salerniskyrnum, er komið hafði verið í húsaskjól í garði þessum eina nóttina; eigi var við slíku hreift hið minsta, þar er marg reynt er, að »heilbrigðisnefnin« hefir góðan þokka, til slíkra dásemda, loks varð þó ein- hver af strætisbúum svo ónærgætinn að ausa auri yfir þetta ilmvatn »heilbrigðisnefndarinnar«, henni — auð- vitað til margfaldrar óánægju og skaprannar. Peir taki sneið, sem eiga. Slúðrið, sem er aðal-framfarasporið í Rvík, er nú að ná hylli í »kristilegum söfnuði« hér í Rvík. Yæri ekki betra að burtkasta illgresinu úr akri hveitisins, heldur en láta sliki vaða upp yfir höfuð sér, og gera það sem gott er áð illu. Betra væri slíkum kjaftabelg, er venur sig á þennan slúðurburð, að hengja stein um háls sér og sökkva sér í sjávardjúp. en bera slíka ill- kvitni og ranghermi á elliþjakaðan einstaling.

x

Gjallandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gjallandi
https://timarit.is/publication/185

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.