Gjallarhorn - 01.11.1902, Qupperneq 1
GJALLARHORJM.
1. ÁR. ^ Akureyri, 1. nóvember 1902. ^ >IR. 1.
Cil lesenda.
„Gjallarhorn“ þykist ekki þurfa að
biðja neinn mann afsökunar á því, að
það kemur fram á meðal manna. Ef það
á ekkert erindi hjer í heim, mun það að
sjálfsögðu detta bráðlega úr sögunni, eins
og allt, sem ónýtt er. En ef okkur útgef-
endunum tekst að gjöra það svo úr garði,
að menn þykist mega vel við una, þá
þykir okkur betur farið en heima setið.
Við viljum ekki smeygja »Gjallarhorni«
inn til manna með neinum fagurgala eða
„grallaralagi og háum klið" um ágæti
blaðsins og verðugleika. Enginn formáli
dugir til þess að sýna, hvernig blað muni
verða. Reynslan verður að sýna það, á
sínum tíma.
Blaðið á aðallega að ræða áhugamál
þessa bæjar og svo alls landsins. En sjer-
staklega munum við ljá rúm í því grein-
um um atvinnu- og verzlunarmál, og
flytja nýjustu og helztu frjettir utan úr
heimi og hjer af landi. Hafa vel ritfærir
menn þegar lofað okkur aðstoð sinni í
þessu efni. Er oss ljúft, að áhugamál manna
sjeu rædd frá fleiri en einni hlið og mun-
um fúslega veita viðtöku vel söindum
greinum, þó höfundarnir sjeu ekki á
sömu skoðun og við. > Gjallarhorn« á
einnig að flytja fróðlegar og skemmti-
legar sögur, eptir góða skáldsöguhöfunda.
í fyrstu ætlum við að láta blaðið koma
út 1. og 15. dag hvers mánaðar; en ef
viðtökurnar verða vel góðar, munum við
láta það koma oþtar út, án þess að hækka
verð þess.
Þökkum við svo öllum fyrirfram fyrir
góðar viðtökur.
Slitsfjórnin.
Hvernig eru birgðirnar?
Reynsla manna hjer norðan lands frá
síðasta vori ætti að hvetja menn til að
spyrja kaupmennina nú í haust, hvernig
þeir hafi búizt við vetrinum og vorinu.
Skipaferðirnar eru svo greiðar nú fram
eptir vetrinum, að þeir ættu að hafa dáð
í sjer til þess, að byrgja sig vel að nauð-
synjavöruin, ef óvinur vor, hafísinn, skyldi
leggjast að landinu með vorinu. Reynsla
undanfarinna ára bendir til þess, að eins
°g góð og íslaus ár fylgja opt hvert á
eptir öðru, eins koma og stundum inörg
ísa- og harðindaár saman, og öllum sjó-
mönnum, sem verið hafa í siglingum fyrir
Norðurlandi í sumar, ber saman um, að
óvenjulega rnikil ísalög hafi verið norður
í höfunum allt fram á haust. Allir Norð-
lendingar hafa því fullan rjett til þess, að
heimta af kaupmönnum, að þeir athugi
vel þessa spurningu: Hvernig eru birgð-
irnar? og sýna það í verkinu, að þeim
sje annt um heill viðskiptamanna sinna.
Úr heimahögum.
Sumarið er farið að bæta fyrir syndir
sínar. Ver nú vetrinum vasklega aðgöngu
og hefir ekkert annað á boðstólum en sunnan-
vind og blíðu. Veturinn brauzt þó inn í
bæjardyrnar síðastliðinn þriðjudag og hreytti
úr sjer norðankólgu, kulda og snjó í þrjá
daga, en þá tók sumarið aptur í öxlina á
honum og hratt honum all-óþyrmilega út
fyrir túngarð og sigaði eptir honum hvassri
sunnangolu, og gæðir nú aptur fólkinu á
bænum með hita og sól. Almanakið er sezt
út í horn og farið að reikna út, hvort þetta
geti verið einleikið.
Skólarnir, sem hjer hafa aðsetur, eru allir
teknir til starfa: barnaskóli, kvennaskóli og
gagnfræðaskóli. — Það er mein, að hjer er
ekki kominn kristilegur lýðháskóli; en margir
vona þó, að þess þurfi ekki lengi að bíða,
því flestir hljóti að sjá, að auk alls annars
er mun fínna að vera háskólagenginn, en
bara skólagenginn. Kristilegan unglingaskóla
er mælt að hr. Fred. Jones ætli að halda
í vetur; segja margir það lofsvert, því vafa-
laust mundi það hafa margt gott í för með
sjer. En þó mörgum þyki vænt um skólana
og fjölgun þeirra, sýnir eptirfylgjandi staka
eptir einn af hagyrðingum bæjarins, að ekki
eru allir á sama máli í því sem öðru:
Skólar fjölga, skrumið vex,
skuldakröfur hljóma.
Flestir geta fengið sex
fyrir heimsku tóma.
Fjelögin hjer í bænum eru nú að hafa
sig á kreik eptir sumarhvíldina: Taflfjelagið,
Verzlunarmannafjelagið, Vetrarbrautin o. fl.
Hvort þau hafa safnað miklum kröptum yfir
hvíldartímann, er ekki hægt að sjá enn þá,
þau eru svo nýbyrjuð að starfa. Einnig er
sagt að sje að lifna yfir Good-Templarafje-
laginu, þó það hafi ekki hvílt sig í sumar,
frekar en þess hefir verið siður að undan-
förnu. Það er gott fjelag, eins og kunnugt
er, og hefir enga fiðrildisnáttúru, en er sí-
starfandi og þreytist sjaldan eða aldrei.
Síðastliðinn sunnudag hjelt það tombólu,
mikla og vel sótta. Ágóði af henni hafði
orðið töluverður og er sagt, að hann verði
notaður til að skaprauna Bacchusi á ein-
hvern hátt.
Leikfjelagið ætlar að fara að hugsa fyrir
leikum fyrir bæjarbúa. Ætlast er til, að
byrjað verði á »Drengurinn minn*.
Húsabyggingar halda stöðugt áfram. 5
íbúðarhús eru nú í smíðum í Oddeyrarbót.
>Egil«, skipstjóri Haueland, kom hingað
síðasta sunnudag og fór aptur á fimmtudag-
inn. Með honum fór til Kaupmannahafnar
verzlunarmaður Hallgrímur Davíðsson.
>Vesta«, skipstjóri Godtfredsen, kom hing-
að frá útlöndum á þriðjudaginn og hjelt á-
leiðis suður um land á fimmtudaginn. Með
henni var sjóliðsforingi danskur, sem á að
verða skipstjóri næsta ár á »Ceres<.
Stöðugt er unnið að vatnsleiðslu í húsin
á Oddeyri og virðist hún vera á góðum
vegi. Búið er að grafa öll aðalræsin og
leggja vatnsleiðslupípurnar í þær og ( ein-
stöku stað byrjað að leiða vatnið inn (
húsin. — Uppi á brekkunni er búið að
fullgjöra stóran brunn; litlu neðar er stein-
l(md vatnsþró, sem safna á í vatninu og
vona þeir, sem fyrir verkinu standa, að
nægilegt vatn muni fást.
Verkstjóri við gröftinn er Hallgrímur bú-
fræðingur Jónasson en Sigurður blikksmiður
Einarsson leggur niður vatnspípurnar.
Reikningsfróðir menn áætla, að húsin, sem
byggð eru á Akureyri í sumar, muni verða
um 120— 140 þús. króna virði, þegar þau
eru fullgjörð.
Síldarafli er sem stendur mjög lítill í
lagnet. Snorri Jónsson kaupmaður ætlar að
senda skip sitt út á fjörðinn til að láta
stunda á því stldarveiðar. Þeir Bjarni Einars-
son og F. & M. Kristjánsson hafa sömu-
leiðis sent skip sitt »Fönix« af stað í sömu
erindum.
Ljóðmœli sjera Matthíasar. I. heftið kom
nú með »Agli« austan af Seyðisfirði og er
verið að binda það. Ljóðmælanna verður
getið nánar síðar.
Hafnarbryggjumálið er á dagskrá hjá öll-
um Akureyringum. í næsta blaði »Gjallar-
horns«, kemur grein um það, eptir mann,
sem hefir hugsað málið vandlega.
»Ingeborg«, seglskip Höepfners verzlunar
sigldi hjeðan síðastliðinn fimmtudag, hlaðið
vörum frá Joh. Christensen og Jóh. Vigfús-
syni.
Vindlaverksmiðjan á Oddeyri þrífst víst
ágætlega. í flestum húsum hjer í bæ eru
vindlar úr henni á boðstólum. Nú, sem
stendur, vinna 10, og ætla eigendurnir að
fjölga lærlingum að mun enn þá.
6 4 o 9 6