Gjallarhorn - 27.10.1910, Side 3
IV.
OJALLARHORN.
[51
• • • • • • •• • • • • • • •-•■-•■• • • •••••••••• •• • • • • • • ••••••••• •••••••••••••••••••••••••••••
Biblíumálið.
Undarlegar eru siðferðishugmyndir
þessara »nýju guðfræðinga* ! Þeir leita
hjálpar brezka biblíufélagsins til að
gefa út biblíu. Þar sem þeir eru, að
nafninu til, lúterskir og evangeliskir,
verður biblíufélagið við bón þeirra, og
eys út fénu. Enginn í félaginu skilur
íslenzku, og því verður það að hafa
blinda trú á þýðendunum. En loksins
er félaginu veittur kostur á að dæma
um þýðinguna sjálft. En þá fellur þýð-
endunum allur ketill í eld! Þeir þola
ekki að kostnaðarmennirnir skuli hafa
nokkurt eftirlit með verki þeirra. »Sá,
sem sannleikann gerir, hann kemur til
ljóssins, svo verk hans verði opinber,€
sagði Kristur, en þessir þýðendur »koma
ekki til ljóssins, svo verk þeirra verði
ekki uppvís.«
En þegar búið er að draga þá í
ljósið, verða þeir svo önugir, að þeir
viija ekki í meira en átta mán-
UÖÍ gefa brezka biblíufélaginu neitt
svar upp á hinar kurteisu og sanngjörnu
spurningar þess. (Eg get hæglega sann-
að þessa staðhæfingu).
Það kemur okkur trúboðunum ekki
svo mikið við, þó »nýju guðfræðing-
arnir< fari að gefa út hlutdræga bib-
líuþýðingu, ef að þeir borga sjálfir
allan kostnaðinn, en það sem vekur
vandlætingu hjá hverjum siðuðum manni,
er, að þeir reyna að gera það á kost-
nað þeirra manna, — og að þeim ó-
afvitandi, — sem þeir mótmæla í öll-
um höfuðatriðum trúar þeirra!
Greinin eftir »Emeritus« í síðasta
tölublaði »Gjallarhorns«, er í nákvæmu
samræmi við þessa grunsömu framkomu.
Það er vitanlegt að síra Haraldur Ní-
elsson fór utan í sumar til að leita
sér lækninga, enda las eg það í þrem
opinberum blöðum, en »Emeritus« heid-
ur því fram, að hann eigi að grípa
tækifærið til þess »að hafa eitthvað
upp úr því«, og láta kostnaðinn koma
niður á andstæðingum sínum í þessu
bibh'umáli. Trúlegast er, að slfk sví-
virðing hafi aldrei komið síra Haraldi
til hugar, en að hún eigi upptök sfn
í hinu spilta hjarta »Emeritus«, —
hver sem hann kann að vera. Þó er
það merkilegt, að »andarnir« gátu ekki
læknað síra Harald, sjálfan fyrverandi
gjaldkera (andatrúar)tilraunafélagsins!
Eg finn enga ástæðu til að skamm-
ast mín fyrir þann þátt sem eg hefi
tekið í því, að láta brezka biblíufélag-
ið vita hverskonar þýðingu það var að
gefa út. Mér fanst það sjálfsagt að
gera það. Eg hefi nýlega skrifað grein
í »ísafold« (65. tölublað) til að gera
grein fyrir afskiftum mínum af þessu
máli, og bið eg alla hugsandi menn,
sem vilja dæma óhlutdrægt, að lesa
hana. En þar sem einni línu af hand-
riti mínu var slept úr, fyrir yfirsjón
prentaranna, kom ruglingur á eina út-
skýring mína. Leyfi eg mér því að
tilfæra kaflann úr greininni hér, þar
sem hann sýnir að dæmin sem eg hefi
tilfært, séu ekki öll »bein della og
hégómi«.
»Manni veitir ervitt með geta alveg
fallist á jþað, að það sé beinlínis sann-
leiksást, sem hefir knúð þýðendurna
til að gera þær breytingar sem deil-
unni valda. Nægilegt er að taka eitt
eitt dæmi; — þýðinguna í Matt. 28.
i9-> sem þeir þykjast vera »alsann-
ferðir um að sé rétt og frumtextan-
um samkvæm, en telja algerlega rangt
að láta trúfræðilegar athuganir ráða
þvf, hvernig þýða skuli«, (sbr. ísa-
fold, 43. tbl.). Nýja þýðingin er þann-
ig: »Farið því og gerið allar þjóðirn-
ar að lærisveinum, með því að skíra
þá til nafns föðursins og sonarins og
hins heilaga anda,« og er alt ná-
kvæmlega þýtt, nema orðin »með því
að skíra þá<. Grísku orðin »bapti-
zontes autous« þýða ótvírætt >skír■
andi þá«, en orðin »með því að«
hafa engin rök fyrir sér í textanum.
Það liggur í augum uppi að frumtext-
inn hefði verið »með því að skíra þær«,
ef að »þjóðirnar« hefðu átt að ger-
ast að »lærisveinum« fyrir skírnina.
Hvernig geta postularnir gert »þjóð-
irnar« að »lærisveinum« með því að
skíra >þá< (þ. e. lærisveinana)? Ef
að menn eru orðnir lærisveinar, þá
getur enginn gert þá að lœrisveinum.
En gríska orðið »autous« þýðir »þá«
(lærisveinana), og hefði verið »auta«
hefði það átt við »þjóðirnar«. Það er
því alveg skýlaust, að orðin »með
því að« eru skotin inn í textann, án
þegs að þýðandinn hafi minstu rök
fyrir þeim í frummálinu. Þetta er
málleysa, frá sjónarmiði fslenzkrar og
grískrar málfræði, en þess skal gætt,
að án hennar (málleysunnar) hefir ung-
barnaskírn alls engin rök í ritning-
unni. Því er það harla grunsamt, að
hún er látin standa, fyrst þýðendurnir
þykjast álíta það »algerlega rangt að
láta trúfræðilegar sérskoðanir ráða
því, hvernig þýða skuli.«
Eg vil aðeins leggja fram þrjár
spurningar:
1. Þekkja þýðendurnir íslenzka og
gríska málfræði?
2. Ef eigi, því setja þeir sig á
dómstól til að dæma og ónýta þýð-
ingu hinna mörgu færari þýðenda við
ensk-amerísku þýðinguna?
3. Ef þeir þekkja íslenzka og gríska
málfræði, því gera þeir vísvitandi ranga
þýðingu, og snúa orðum Krists til þess
að þau mæli með kreddu (þ. e. barna-
skírn) þess kirkjufélags, sem þeir þjóna?
Áður en vér förum að samhryggj-
ast um of þessum trúarhetjum, sem
ætla að »gefa út sinn sfðasta pening«
í þarfir sannleikans, látum oss hafa
fullnægjandi svar upp á þessar spurn-
ingar.«
»Emeritus segir, að það sé fjar-
stæða, að láta staðinn hjá Es. 7. 14
vera spádóm um fæðingu Jesú. Hvers-
vegna vitna þýðendurnir þá neðan-
máls á þessum stað, til frásagnarinn-
ar um fæðingu Krists bæði hjá Matt-
híasi og Lúkasi? Er þetta fjarstæða
hjá þýðendunum, eða hjá »Emeritus«,
eða hjá þeim báðum?
Hin óheiðarlega aðferð sein »Eme-
ritus« notar, að fela sig bak við
nafnleysi, til þess að sleppa fyrir á-
byrgð ósanninda sinna, er orðin hin
viðurkenda bardagaaðferð þýðendanna
og fylgifiska þeirra. Eg hefi lesið
þrjár skammagreinar á móti okkur
trúboðunum, sem langar í ófalsaða
biblfu, en í engri þeirra hefir höf-
undinum þótt það ráðlegt að koma
fram hreinskilnislega með sínu rétta
nafni. Þeir gera rétt að skammast
sín. Þeir »elska myrkrið meira en
ljósið, því þeirra verk eru vond.«
Skammir eru engin vörn, en þær
sanna þar á móti, að þýðendurnir
hafa ekkert betra að bera fyrir sig.
Loks skal bent á, að það er rangt
hjá »Emeritus«, að eg sé endurskír-
ari. Eg hefi aldrei skírt nokkra mann-
eskju, sem hefir móttekið kristilega
skírn. Það er rangt að við trúboðar
trúum á innblástur nokkurrar þýðingu
biblíunnar; þetta er tómur uppspuni
hjá »Emeritus«. Við trúum á innblást-
ur hins upphaflega handrits, og að
það sé köllun biblíufróðra manna að
komast altaf sem næst því, og að
kenna samkvæmt því. Þess vegna vilj-
um við hafa hreina þýðingu. Það er
rangt, að við höfum haft fyrir oss rang-
ar biblíuþýðingar, í kæru okkar. Við
höfum farið eftir hinum beztu þýðing-
um heimsins, gerðum af nefndum sem
voru kosnar úr öllum trúarflokkum (að
únítörum meðtöldum). Það er sjálfsagt,
að slíkar þýðingar séu óhlutdrægar,
en það getur maður ekki sagt um þessa
reykvísku þýðingu, sem er gerð af
lítilli »klíku«, með aðeins einum manni
sem er fær um að þýða úr hebresku.
Það er rangt, sem þýðendurnir hafa
endurtekið hvað eftir annað, að brezka
biblíufélagið hafi smám saman dregið
til sín meiri hlutann af upplagi nýju
þýðingarinnar í þeim tilgangi að gera
hana upptæka. Brezka biblíufélagið hef-
ir ekki fengið neinar biblíur aftur, nema
aðeins til þess að senda þær til út-
sölumanna í Vesturheimi. Mér er það
alveg óskiljanlegt, að þýðendurnir *kub
fara með þessi rakalausu ósannindi.
Ef nokkur skyldi efast um staðhæf-
ingar mínar f þessari grein, væri það
mér ánægja að veita nákvæmari upp-
lýsingar, og sýna heimildir mínar fyr-
ir beim’ Arthur Gook.
Tvœr andarnefjur rak á Brimnesfjöru í
Skagafirði í næstsíðustu viku. - Var önnur
13 al. en hin 7 al. að lengd.
Brúðkaup. Guðmundur T. Hallgrímsson
héraðslæknir Höfðhverfinga og ungfrú Kam-
illa Jensen dóttir Thor Jensens kaupmanns
í Reykjavík, héldu brúðkaup sitt á heim-
ili brúðarinnar 14. þ. m. — »Gjh.« óskar
þeim til hamingju.
Rjúpur
kaupir
Gránufélagsverzlun
fyrst utn sinn.
Verðið alt að 25 aurum
fyrir stykkið.
Konungleg hirð-verksmiðja.
Brœðurnir Cloeíía
mæla með sínum viðurkendu SÚKKULADE-TEGUNDUM, sem eingöngu eru
búnar til úr
fínasta kakaó, sykri og vanille
ennfremur kakaópúlver af beztu teg. Ágætir vitnisburðir frá efnarannsóknarstofum.
Altaf eitthvað nýtt í
,Edinborg‘.
AUar húsmæður þurfa að reyna hin ágætu
Glei -þvottabi etti
sem nú eru nýkomin í EdínbOfg. Þau gera verkið margfalt léttara en
gömlu tré- og blikkbrettin og eru ómissandi á hverju heimili.
•
Opinbert uppboð
verður haldið
mr miðvikudaginn 2. nóvember TW
næstk. kl. 11 f. h. við húsið í Hafnarstræti nr. 103 og þar eftir
beiðni kaupmanns Eggerts Laxdals selt hæstbjóðendum síidarnet ný
og brúkuð, kútar, kaðlar nýir og gamlir, dregg, búðarskápar,
skúffur og hillur, búshlutir, steinolíubrúsar, eldavél, tveir
fjórrónir bátar o. fl.
Bæjarfógetinn á Akureyri 26. okt. 1910.
GUÐL. G UÐM UNDSSON.
A tombólunni
á
LAUGARDAGINN 2Q. þ. m.
verða óvenjulega margir góðir hlutir t. d. l^lukka er kostar 50
l^r. og önnur klukka 24 kr., harmonika 28 kr., vasaúr 18. kr.,
stigvél 17 kr. og fjöldamargir aðrir góðir og eigulegir munir.