Gjallarhorn - 13.04.1911, Qupperneq 1
Gjallarhorn.
Ritstjóri: Jón Stefánsson.
V, 17. |
-• • • •
Akureyri 13. apríl.
1911.
Alþingi. Kirkjugaröar.
Eyrarlandstúnið.
Nokkurar dagsláttur úr því eru til sölu með
mjög góðum borgunarskilmálum. Listhafendur
semji við ritstjóra þessa blaðs.
»»»»»«♦«»»» »«« «• • ««*•♦« • •
Ávarp ráðherra,
Kr. Jónssonar.
Þegar Kr. Jónsson háyfirdómari tók
við ráðherraembættinu og lýsti yfir
því í efri deild alþingis, hélt hann
þar ræðu um fyrirætlanir sínar fram-
vegis, og sagði þar meðal annars, að
hann vildi stuðla að friði í landinu
og leggja alt kapp á, að gera fjár-
lögin sem bezt úr garði. Stórpólitík-
ina kvaðst hann vilja láta bíða um
nokkurt árabil. Kvaðst vilja koma
fram á þinginu breytingum á stjórn-
arskránni, en lýsti yfir, að þótt þær
ekki næðu samþykki, mundi hann
samt sem áður rjúfa þingið.
Hann taldi sig nú milliflokkamann
og kvaðst vænta góðrar samvinnu
við báða flokka.
Heimastjórnarmenn svara.
Lárus H. Bjarnason Ias upp svo-
hljóðandi svar við ávarpi ráðherra frá
Heimastjórnarmönnum:
»Fyrverandi stjórnarandstæðingum
er ánægja að sjá mannaskiftin, sem
orðin eru í ráðherrasætinu, jafnvel þó
að þar muni, því miður, ekki vera
orðin skoðanaskifti um það málið,
sem skilið hefir flokkana hingað til,
enda er afstaða vor gagnvart hæst-
virtum ráðherra frjáls og óbundin að
öðru leyti en því, að vér munum
ekki bregða fæti fyrir hann að á-
stæðulausu á þessu þingi.«
Opinberunarbók.
Páll V. Bjarnason sýslumaður á Sauðár-
króki og ungfrú Margrét Árnadóttir í Höfn-
um á Skaga.
Kristinn Briem (amtm. sál. P. Br.) verzl-
unarmaður í Englandi og ungfrú Kristín
Björnsdóttir óðalsbónda Péturssonar á Hofs-
stöðum í Skagafirði.
Jóhannes Björnsson búfræðingur á Hofs-
stöðum í Skagafirði og ungfrú Kristín Jós-
efsdóttir uppeldisdóttir Einars hreppstjóra
Jónssonar í Brimnesi.
Sigurður Björnsson búfræðingur áVeðra-
móti f Skagafirði og ungfrú Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir frá Holti í Svínadal.
Siarurður Elnarsson
dýralæknir kom heim úr fyrirlestraferð
sinni, er áður var getið hér í blaðinu, 10.
þ. m. Lætur hann vel yfir Skagfirðingum,
heim að sækja.
Jóhannes Jósefsson.
Frœgð hans i útlöndum vex.
Þýzka íþróttablaðið »Athletik«, sem
er aðal-málgagn fjöldamargra íþrótta-
félaga í Þýzkalandi og Austurríki, hef-
ir 23. febr. þ. á. flutt langa grein um
Jóhannes Jósefsson. Fyrirsögn grein-
arinnar er: »Aðdáunarverð íþróttasýn-
ing í Lundúnum. Hinn íslenzki glímu-
kappi Jóh. Jósefsson.« Greinin byrjar
á því, að glíma og sjálfsvörn Jóhann-
esar hafi vakið geysimikla eftirtekt í
Lundúnaborg; þurfi þó mikið þar til,
f föðurlandi fþróttanna. Nokkrir voru
þó, er héldu því fram, að glíman væri
stæling eftir japönsku glímunni Jiu
Jitsu; aðrir héldu fram því gagn-
stæða. Kusu nú íþróttafélög mann,
er skyldi skera úr þrætunni, en þá
tókst svo illa með valið, að prófessor
Garrud, kennari við Jiu Jitsuskólann í
Lundúnum, var valinn; sjá allir, að
hann mun ekki vera óhlutdrægur
dómari. Dómur hans var á þá leið,
að íslenzka og japanska glíman væru
eiginlega það sama, og ef ísl. og jap.
glímumenn glímdu saman, mundi sá
standa, er sterkari væri og liðugri.
Próf. Garrud endar þó með þessum
orðum: »Eg fór í leikhúsið með þeirri
sannfæringu, að eg mundi ekki sjá
þar nein brögð, er eg ekki þekti áð-
ur, — en það reyndist ekki á þann
veg. Eg sá mörg ný brögð og margt
undravert til Jóhannesar.«
Jóhannes ritaði þá grein gegn þess-
um dómi próf. Garruds og sýndi Ijós-
lega fram á, að fslenzka glíman og
Jiu Jitsu væru sitt hvað, og færði að
því mörg rök. Urðu nærfelt allir sér-
fræðingar íþróttamanna á hans máli
þar.
Þá er lýst sjálfsvörn Jóhannesar og
fluttar margar myndir af honum í
þeim bardaga. Er undravert að sjá
hann — segir blaðið — verjast í einu
þrem vopnuðum mönnum. Hér er
ekki rúm til að skýra nákvæmar frá
þessari grein í »Athletik«, en getið
skal þess, að blaðið er mjög hrifið
af íþróttum Jóhannesar.
Tímaritið »Strand Magasine« flutti
nýlega ritgerð um íslenzku glímuna
eftir Jóh. Jósefsson, með mörgum
myndum.
Rvík í gær.
Háskólinn. Fjárveiting til hans
var feld á aðalfjárlögunum í neðri
deild, og voru helztu forgöngumenn
þess þeir dr. Jón Þorkelsson og Bjarni
frá Vogi. Verður því að hætta við
háskólahaldið um nýjárið í vetur,
ef hann verður settur á laggirnar
17. júni, eins og áður var ráðgert,
og tekur til starfa 1. október, eins
og fé var veitt til á fjárlögunum.
Hún er sjálfri sér samkvæm, neðri
deild þingsins.
Stúdentafélagið hélt mótmæla-
fund út af þessari samþykt deildar-
innar í gærkvöld.
Drepsótt í sauðfé.
Iskyggileg fjárpest.
í síðustu viku kom upp mjög ein-
kennileg veiki á sauðum hjá Birni
hreppstjóra Jónssyni í Sandfellshaga.
Varð hennar fyrst vart á þann hátt,
að bólga kom á háls sauðanna, er
síðan færðist upp á höfuðið; leit svo
út, sem þeir hefðu miklar kvalir. Síð-
an duttu af þeim eyrun og augun úr
augnatóftunum, og drápust þannig 6
sauðir á fyrsta degi. Ennfremur sáu
menn bólgu vera byrjaða á 90 sauð-
um. Sendi nú Björn þegar til Húsa-
víkur, að síma til Sigurðar dýralækn-
is og leita ráða. Sigurður var þá eigi
heima. Var þá leitað ráða til Magn-
úsar dýralæknis Einarssonar, en eftir
þeim lýsingum, sem hægt var að gefa
af veikinni, sáu þeir læknarnir fá ráð.
Strax og Sigurður Einarsson kom
heim, símaði hann til stjórnarráðsins
þá skoðun sína, að nauðsynlegt mundi
að hann færi norður að skoða féð.
Kom svo í gærdag skipun stjórnar-
ráðsins um að hann skyldi tafarlaust
fara norður að Sandfellshaga, og borg-
ar landssjóður kostnað við ferðina. —
Davíð Jónsson hreppstjóri á Kroppi
er fylgdarmaður Sigurðar.
Skipaferðir.
„Helgi kóngur" fór héðan til útlanda 9.
þ. m. Með honum fór til Kaupmannahafnar
Ásgeir kaupmaður Pétursson. Til Húsavíkur
fór Júlíus Sigurðsson bankastjóri.
»Ingólfur" kom hingað í gærmorgun. —
Farþegar: Júlíus Sigurðsson bankastjóri,
Hallgr. Einarsson myndasmiður og Karl
Guðnason verzlunarmaður.
Klæðaverksmiðian.
Þar er ráðinn bókari fvar Helgason áður
verzlunarstjóri Edinborgarverzlunar hér í
bænum.
Hrosnkelsi
aflast í góðu meðallagi, út með firðinum.
Jón Þorláksson verkfræðingur hefir,
að tilhlutun Þórhalls biskups, ritað í
»N. Kbl.« ítarlega leiðbeiningu um
byggingu á steinstypu-kirkjugörðum.
Væri óskandi, að það bæri þann á-
rangur, sem til er ætlast. Og þjóðin
getur naumast heldur lengur látið
kirkjugarðana »drasla«, eins og við-
gengist hefir til margra ára. Það er
henni til stór-minkunar. — Garðarnir
verða heldur eigi dýrir eftir fyrirsögn
Jóns, og varanlegir eru þeir þá fyrst.
ReyBarfjarOarverzlun
O. Wathnes erfingja, hús, bryggjur o. s.
frv. hefir Rolf Johansen kaupmaður á Reyð-
arfirði keypt fyrir 22 þús. kr., að sögn, og
er það talið gjafverð.
Landsyfirdómurinn.
Jón Jensson yfirdómari er settur dóm-
stjóri, en þriðji dómari Eggert Briem skrif-
stofustjóri.
Árni Vænl
segir að varla muni bregðast, að síldar-
afli verði hér á Pollinum nú um páskana.
MinnisvarOi Jóns SizurOssonar.
í Hofsós var haldin kvöldskemtun 1. þ. m.
til ágóða fyrir minnisvarða J. S. — Þar hélt
síra Pálmi Þóroddsson langan og ítarlegan
fyrirlestur um J. S., Anton Proppé verzlun-
arstjóri sýndi leikfimi, Jón Árnason búfr. á
Vatni söng lag Jóns Laxdals við kvæði
Guðm. Guðmundssonar um J. S., og enn-
fremur söng þar söngflokkur nokkur lög.
Kvöldskemtunin var vel sótt, því Höfð-
strendingar láta sér mjög ant um minnis-
varðamál J. S.
Velklndi
eru talsverð víðsvegar í Skagafirði. Tauga-
veiki, lungnabólga og illkynjuð kvefveiki
stingur sér þar niður hér og þar.
Mannslát.
Jón Hannesson á Daufá i Skágafirði and-
aðist í f. m. „Vandaður maður og vel lát-
inn í Skagafirði."
..Heim aO Hólum."
Námspiltar á Hólum í Hjaltadal buðu
nýlega öllum bændum í Lýtingsstaðahreppi
„heim að Hólum". Þeir dvöldu þar tvo
daga og þrjár nætur í bezta yfirlæti, hlýddu
þar á fyrirlestra og ýmislegt til skemtunar
og fróðleiks. - í fyrra þáðu bændur Akra-
hrepps samskonar heimboð að Hólum, og
ráðgerir skólinn að gera jafnan bændum
eins hrepps í sýslunni slíkt heimboð á hver-
jum vetri eftirleiðis.
Tvíritunarbœkur
af ýmsum tegundum
fást í
bókaverzlun
Odds Björnssonar.