Gjallarhorn - 06.07.1911, Blaðsíða 3
V.
GJALLARHORN.
97
» 4 « • • ♦ • •
Prestafundurinn.
Fundargerð.
Priðjudaginn 27. júní 1911 komu
prestar í félagi þessu saman til fund-
arhalds á Akureyri.
Ressir mættu á fundinum:
Síra Geir Sæmundsson prófastur á
Akureyri, síra Jakob Björnsson, Saur-
bæ, síra Þorsteinn Briem, Grundarþing-
um, síraTheodór Jónsson, Bægisá, síra
Stefán Kristinsson, Völlum, síra Jónas
Jónasson kennari á Akureyri, síra Bjarni
Porsteinsson, Siglufirði, síra Helgi Árna-
son, Ólafsfirði, síra Kristján E. Þórar-
insson, Tjörn. Síra Árni Björnsson próf-
astur á Sauðárkrók, síra Björn Jónsson,
Miklabæ, síra Guðbrandur Björnsson,
Viðvík. Síra Árni Jónsson prófastur á
Skútustöðum, síra Árni Jóhannesson,
Grenivík, síra Ásmundur Gíslason, Hálsi,
síra Björn Björnsson, Laufási, sira Sig-
urður Guðmundsson, Ljósavatni, síra
Jón Arason, Húsavík, síra Helgi P.
Hjálmarsson, Grenjaðarstað. Síra Sig-
urður P. Sívertsen, Hofi, síra Jón Jóns-
son, prófastur, Stafafelli.
Fundurinn byrjaði með guðsþjón-
ustu í kirkjunni og prédikaði for-
maður fjelagsins, vígslubiskup Geir
Sæmundsson á Akureyri.
Pá var gengið til fundar í Good-
templarahúsinu, og setti formaður
fjelagsins fundinn og mintist í fund-
arsetningarræðu sinni sérstaklega
þeirra tveggja látnu prófasta, er
mestan þáttinn áttu í stofnun og
viðhaldi þessa félagsskapar, þeirra
síra Zofoníasar sál. Halldórssonar
og síra Hjörleifs sál. Einarssonar.
Pá var kosinn fundarstjóri í einu
hljóði síra Geir Sæmundsson. Til
skrifara á fundinum nefndi hann þá
síra Bjarna Rorsteinsson og síra
Stefán Kristinsson. í dagskrárnefnd
voru kosnir þeir síra Árni Jónsson,
síra S. P. Sívertsen og síra Björn
Jónsson.
Pessi mál voru tekin fyrir:
eflaust mundi verða fyrir kirkju-
líf vort, að fá bæði nýja sálma og
þá ekki, sfður ný lög við hlið hinna
eldri. Ýmsir fleiri tóku til rháls, og
hnigu ræður þeirra allra í sömu
átt og frummælanda. Síra Bjarni
Porsteinsson skýrði einnig frá starfi
nefndarinnar, einkum að því er
snertir upptöku hinna nýju sálma-
laga.
Eftir umræðurnar var í einu hljóði
samþykt svolátandi tillaga:
Fundurinn er eindregið þeirrar
skoðunar, að brýn þörf sé á því
að fá viðbæti við sálmabók vora
ásamt nýjum lögum, og felst fyrir
sitt leyti á sálmava! það og sálma-
lög, sem nefndin lagði fram á fund-
inum.
Fundurinn felur nefndinni að
greiða sem bezt fyrir útgáfunni í
samráði við biskup landsins og
koma henni í framkvæmd á þessu
ári ef unt er.
3. Síra Jónas Jónasson kennari á
Akureyri hélt fyrirlestur um kristin-
dómsfrœðslu barna. Lagði hann á
móti kverkenslu barna, einkum með-
an þau eru innan 12 ára, og sér-
staklega því að byrja á fræðunum;
færði hann mörg og skýr rök fyrir
því, hversu óheppileg sú aðferð
væri. Lagði hann það til í enda
fyrirlestrarins, að eftirfylgjandi breyt-
ingar væri sem fyrst gerðar á upp-
fræðingu barna í kristindómi:
1. Að börnum sé alls ekki kend
fræðin og kverið til þess að byr-
ja með, af því það er alls ofviða
hugsunarmagni þeirra óg deyfir
trúartilfinningu þeirra.
2. Að trúarkenslan byrji með biflíu-
sögunum og fyrst nærfelt ein-
göngu um Krist og ef til vill
nokkur fleiri atriði, og séu settar
í samband við það einstöku létt-
ar greinir úr fræðunum, ritning-
argreinar og sálmvers.
3. Að trúarkenslan verði látin halda
áfram með fullkomnari biflíusög-
um og lestri biflíukjarna eða skóla-
biflíu, sem lesin væri með skýr-
1. Síra Guðbrandur Björnsson í
Viðvík hóf umræður um húsvitjan-
ir. Hann taldi húsvitjanir ákaflega
nauðsynlegar og þýðingarmiklar.
Ekkert styrkir eins vel sameiningar-
bandið —kærleiksríkt og hlýlegt sam-
band —milli prests og safnaðar, eins
og rækilegar húsvitjanir, ekkert, sem
gefur prestinum eins gott tækifæri
til að kynnast verulega öllum með-
limum safnaðarins, eins þeim, sem
fjærst búa, eins þeim, sem sjaldan
eða aldrei koma til kirkju. Pessvegna
er mjög svo æskilegt, að prestar
ræki þetta starf betur en verið hef-
ir, og reyni að gera húsvitjanir sín-
ar sem uppbyggilegastar og setja á
þær meiri andlegan blæ en verið
hefir.
Fundarmenn þökkuðu fyrirlestur-
inn. Síra Sig. P. Sívertsen tók í
sama streng eins og málshefjandi.
Taldi þýðingu rækilegra húsvitjana
mjög mikla og skýrði frá tilraunum
sínum í þá átt, að reyna að gera
þær andlega uppbyggilegar. Margir
fleiri tóku til máls. Eftir langar og
fjörugar umræður samþykti fundur-
inn svo hljóðandi tillögu:
Fundurinn álítur nauðsynlegt, að
prestarnir leggi sem mesta rækt við
húsvitjanir á þann hátt, sem hver
prestur fyrir sig álítur farsælastan
og líklegastan til uppbyggingar safn-
aðanna.
2. Viðbœtir við sálmabók vora og
kirkjusöngsbœkur. Síra Sig. P. Sívert-
sen hóf umræður um það mál. Hafa
þrír nefndarmenn í því máli, þeir
síra Sig. P. Sívertsen, síra Geir Sæ-
mundsson og síra Bjarni Porsteins-
son, setið nokkra undanfarna daga
á fundi til þess að köma sjer sam-
an um ákveðnar tillögur um upp-
töku nýrra sálma og nýrra laga.
Talaði frummælandi um hina brýnu
þörf, sem væri á slíkum viðbæti,
og hve vekjandi og lífgandi það
ingum kennarans.
4. Að síðasta veturinn fyrir ferm-
inguna verði börnin látin læra
fræðin með stuttum skýringum,
og væri rétt að nokkrir sálmar,
léttir og vel valdir, væri látnir
fylgja því kveri. Alls ætti sú bók
að vera styttri en Klaveness-kver,
og ekki skylt, að hún væri lærð
utan að nema að nokkru leyti.
Síra Sig. P. Sívertsen flutti því
næst annað erindi um þetta sama
mál. Voru þétta aðaldrættirnir í er-
indi hans: 1. Hverjir eiga að kenna
kristindóminn? Foreldrarnir og heim-
ilin verða að leggja trúargrundvöll-
inn hjá börnunum, því aldrei verð-
ur kristindómskensla í góðu lagi
hjá nokkurri þjóð, nema foreldrar
og heimilin leggi þar góða og veru-
lega undirstöðu. En fæst heimili
eru einfær um þetta og hjálpin á
að sjálfsögðu að koma frá prestun-
um. Kristindómsfræðslan ætti að
halda áfram að vera sem áður fyr
eitt aðalstarf prestsins. 2. Hvernig
á að kenna kristindóminn? Eflaust
æskilegasta leiðin að kenna sem
mest munnlega, en naumast verður
hjá því komist að nota einnig bæk-
ur. Og á því ríður, að þær séu rétt
notaðar. Sagðar fyrst og skýrðar.
Kent í réttri röð. Biblíusögur fyrst.
Prestar kappkosti að gera kenslu
sína sem mest aðlaðanda. Bæn,
samtal, sálmasöngur og lestur í
biflíunni. Utanaðlærdómur þarf að
minka. 3. Hve mikið á að kenna í
kristnum fræðum? Sjálfsagt biflíu-
sögur; eigi minna úr nýja testa-
mentinu en hjá Klaveness. Biflíu-
skýringu dálitla og hið allra mark-
verðasta í kirkjusögu. Kverið þarf
að vera mjög stutt og einfalt. Uin-
fram alt meiri biflíulestur og meiri
sálmasöngur. 4. Hverjar breytingar
á að gera á núverandi kenslu í
kristnum fræðum? Leggja ekki að-
• •••••• -•••-♦-• •••••••••
aláhersluna á kunnáttuna eins og
verið hefir, heldur á skilninginn og
að hið góða orð komist til hjartn-
anna. Meira samtal og frásaga en
verið hefir. Fá aðrar og betri kenslu-
bækur en nú eru, sérstaklega styttra
og einfaldara kver. 5. Hverjir eiga
að koma breytingunum á? Auðvit-
að þurfa heimilin, prestarnir og
kennararnir að vera samtaka f því,
°g Þyrfti að gefa út einfaldar leið-
beiningar í því efni, einkum fyrir
heimilin. Prestar þurfa að láta þetta
mál verulega til sín taka og reyna
að hafa hönd í bagga með öllum
breytingum, sem í því efni eru gerðar.
Eftir að þessi erindi höfðu verið
flutt, hófust ítarlegar umræður um
málið. Stóðu þær yfir lengi dags,
og tóku flestir fundarmenn þátt í
þeim. Nefnd var sett í málið til
þess að semja tillögur til fundar-
ályktunar, þeir síra Sig. P. Sívert-
sen, síra Jónas og síra Árni Jóns-
son. Að loknum umræðum voru
svo hljóðandi tillögur samþyktar:
Fundurinn álítur:
1. Að kristindómsfræðsla barna ætti
aðallega að vera í.höndum heim-
ilanna og prestanna, en ekki sé
heppilegt að varpa henni að miklu
leyti upp á skólana.
2. Að ávalt eigi að byrja þá fræðslu
með því að segja börnunum frá
innihaldi þess, er læra á, en ekki
setja þeim fyrir að læra neitt fyr
en búið sé að kynna þeim og
skýra efnið.
3. Að ekki beri að leggja of mikla
áherslu á utanbókarlærdóm, en
þess meiri á hitt, að reyna að
ná tökum á tilfinninga- og vilja-
lífi barnanna.
4. Að semja þurfi og gefa út stutt-
ar og einfaldar leiðbeiningar fyr-
ir heimilin, er kenni hvernig þau
eigi að haga kristinsdómsfræðslu
sinni.
5. Að semja þurfi ennfremur tvær
nýjar kristindómskenslubækur til
notkunar við fermingarundirbún-
ing barnanna; sé í annari þeirra
ítarlegar biflíusögur og stutt á-
grip um helztu menn kirkjunnar,
en í hinni sé stutt yfirlit yfir
aðalatriði kristindómsins og auk
þess úrvals sálmavets og leið-
beiningar til biflíulesturs.
Fundurinn óskar, að biskup lands-
ins taki þetta mál að sér til fljótra
og heppilegra framkvæmda.
4. Pá flutti síra Árni prófastur
Björnsson erindi um líknarstarfsemi.
Slík starfsemi á sér að vísu stað
hjá þessari þjóð, en í of smáum
stíl, og sérstaklega á sér mjög lítið
stað sú líknarstarfsemi, sem hafin
sé og rekin af kirkjunni og kristn-
um söfnuðum sem slíkum.
Petta þarf að breytast. Vér þurf-
um að taka höndum saman allir,
prestar, sóknarnefndir og héraðs-
nefndir, og reyna að koma á kirk-
julegri, félagslegri líknarstarfsemi, t.
d. til líknar ekkjum, til líknar gam-
almennum, til að koma á fót barna-
hælum eða uppeidisstofnunum fyr-
ir fátæk börn. Margt fleira tók máls-
hefjandi fram; var gerður góður
rómur að máli hans, og allir þeir,
er tóku þátt í umræðunum á eftir,
síra Geir, síra S. P. Sívertsen o. fl.,
tóku í sama streng og mæltu hið
bezta fram með máli þessu. Aó
loknum umræðum var samþykt svo
hljóðandi ályktun:
Fundurinn skorar á sóknarpresta,
sóknarnefndir og héraðsnefndir í
Hólastifti, að stuðla sem bezt að
líknarstarfsemi miðaðri við fyrir-
liggjandi þarfir á hverjum stað og
beitast fyrir slíkri félagsstarfsemi
þar sem hún ekki er þegar til.
5. Hvað á að gera iil þess að
auka virðing og vinsœldir alþýðu
gagnvart kirkju og prestastétt? —
Um þetta efni flutti síra Sigurðar
Guðmundsson á Ljósavatni erindi
nokkurt. Taldi hann þetta hvort-
tveggja minna en æskilegt væri og
væri það illa farið. Urðu töluverðar
umræður út af þessu erindi, og
var það hið helzta innihald þeirra,
að hið bezta meðal til þess að
auka þessa virðingu og þessar vin-
sældir, væri það að öll framkoma
prestanna, bæði f kirkju og utan,
bæði f andlegum málum og verald-
legum, væri í einu orði sagt góð
og prestsembættinu og kristindóms-
málefninu sannarlega samboðin.
6. Pá hélt síra Björn Jónsson á
Miklabæ’ fyrirlestur um aðskilnað
ríkis og kirkju. Var hann haldinn
í hinum stóra sal Goodtemplara-
hússins og öllum gefinn kostur á
að heyra fyrirlesturinn og taka þátt
í umræðunum. Var þar margt manna
saman komið. Fyrirlesturinn var ít-
arlegur og efnismikill og verður
hér ekki greint nákvæmlega frá efni
hans, meðfram rúmsins vegna, með-
fram vegna þess, að mjög líklegt er,
að fyrirlesturinn komi bráðlega fyr-
ir almenningssjónir. Pess skal þó
getið, að fyrirlesturinn gekk allur
og eindregið í þá átt, að mæla á
móti aðskilnaði ríkis og kirkju, og
það af mörgum ástæðum, er tekn-
ar yoru greinilega fram.
Á eftir fyrirlestrinum urðu ítar-
legar umræður um málið eftir því
sem tíminn gat leyft, og tóku þátt
í þeim auk frummælanda þeir síra
Sig. P. Sívertsen, Guðlaugur sýslu-
maður Guðmundsson, Björn mála-
færslumaður Líndal, Bjarni Jónsson
bankastjóri og síra Guðbrandur
Björnsson.
Fundurinn stóð yfir frá kl. 9 um
kvöldið til kl. hálf eitt um nóttina.
Morguninn eftir ræddi prestafund-
urinn málið enn að nýju, og var í
umræðulok í einu hlióði samþykt
svo látandi fundarálylnun:
Fundurinn hallast að aðalstefnu
prestastefnunnar á Pingvöllum 1909
í aðskilnaðarmálinu.
7. Pá flutti síra Sig. P. Sívertsen
e/indi um breytt verksvið presta. —
Áður voru prestar svo að segja
algerlega neyddir til að hafa á hendi
mörg önnur annarleg störf í sveit-
arfjelagi sínu. Nú er þetta víða orð-
ið breytt, og slík störf eru víða
komin yfir á herðar annara. Út af
því hefir aftur bólað á þeirri skoð-
un, að prestarnir væri þjóðinni nú
ekki nærri eins þarfir og áður.
Prestar verða að gera alt sitt til
þess, að þessi skoðun þroskist ekki,
heldur hverfi. Vera samíaka í því
að vinna af alhuga að eflingu guðs-
ríkfs í landinu, vera auðmjúkir og
hógværir og sístarfandi, og umfram
alt að gleyma því ekki, að lyfta hug
og hjarta til himins og biðja guð
um blessun yfir alt þeirra starf fyr-
ir kirkjuna og landið.
Fundarmenn þökkuðu þessa á-
gætu hugvekju, og í umræðunum
á eftir lýsti sér hinn innilegasti sam-
hugur með öllu aðalefni hennar.
8. Rætt um fyrirkomulag og fram-
tið félagsskapar presta i hinu forna
Hólastifti. Síra Björn Jónsson inn-
leiddi umræður um það mál. Allir,
sem töluðu í því máli, voru sömu
skoðunar um það, að sjálfsagt væri
að halda þessum félagsskap áfram.
Nefnd var kosin til þess að semja
ný lög fyrir fjelagið: Síra Geir Sæ-
mundsson, síra Jónas Jónasson og
Síra Stefán Kristinsson. Næsti fund-
ur ákveðinn að ári á Hólum í Hjalta-
dal og byrji á sunnudegi með guðs-
þjónustu í Hóladómkirkju.
Áður en fundi var slitið ræddu
prestarnir ýms smærri málefni á
víð og dreif, þar á meðal sérstak-
lega um fermingarformála hinnar
nýju helgisiðabókar, er mönnum
þótti hvorki vel skýr né viðkunn-
anlegur, og var forseta félagsins fal-
ið að skrifa biskupi um það mál í
samræmi við það, hvernig umræð-
ur féilu á fundinum.
Pá var fundargerð lesin upp og
samþykt og fundi slitið síðdegis á
þriðja degi.