Gjallarhorn - 28.12.1912, Side 3

Gjallarhorn - 28.12.1912, Side 3
VII OJALLARHORN. 59 JMýárskorf smekklegust ódýrust, í bókaverzlun Kr. Guðmundssonar. helgivald; en hans verður að leita. Hann segir líka, að ótal margt hafi reynst rangt, sem lögboðið hafi verið, enda sé hans skylda, að láta aldrei undan þein', sem neiti breytiþróun í tróarskoðunuin mannkynsins. Því þrátt fyrir vöxt og víðgang skoðana vorra, halda hinir ráðandi og leiðandi ennþá fast i þá rammvitlausu skoðun að Irúarfrœdin (o: rétttrúunin'l eigi að standa í stað, því að »á henni hvíli kirkjan* ! * * * »Það er harla gleðilegtc, segir réttrúað kirkjublað á Englandi, »að vorir gömlu skynsemistrúmenn, Unít- ararnir, eru farnir að trúa á guðdóm frelsarans « Þá svarar Únítari einn í blaðinu K>'istið iíf: Vist* gerum við það, en við trúum líka á guðdóm í hverjum einasta manni, þótt neistinn kannske sjáist ekki, og þar greinir oss á og yður, og þessvegna erum við rétttrúaðir en þið Únítarar « Sigurjón Sumarliðason póstur. Póstferðír í 20 ár. Full 20 ár eru síðan Sigurjón póstur byrjaði póstíerðir milli Akureyrar og Staðar. Fyrst sem aðstoðarmaður föður síns, og síðan sem aðalpóstur. Ekki hafa ferðirnar ætíð verið sem þægi- legastar. Þegar við hefir verið að stríða, fannkyngi, ófær vatnsföll, og stór- viðri, en oftast naumur tími ætlaður póstinum. Hefir þá reynt á harðfylgi og framsýni mannsins. En jafnan hefir Sigurjón sigrað í þeirri viðureign. Enginn getur um það dæmt, hve örð- ug ferðalög, að vetrarlagi, eru á ís- landi nema reynt hafi. Hindranirnar örðugleikarnir eru óteljandi er yfir háfjöll skal íarið, og þó auðvitað sér- staklega þegar inikill flutningur er meðferðis. Sigurjón hefir leyst starfið mœtavel af hendi, í alla staði svo óskandi er, fyrir okkur Norðlendinga, að hann vilji halda starfinu sem lengst, en þá þarf líka að gera svo við hann að hann megi við una. Norðlendingur Vaskleikamenn. »Gjh.« hefir verið sagt um marga, er vel gengu fram við að slökkva, bjarga og verja við mikla brunan \m daginn, en sem ekki voru neíndir í síðasta blaði. Er það og vafalaust, að Ijöldi manna hefir starfað þá vel, sem að réttu lagi hefði átt að nefna, en því er um að kenna að blaðinu var ókunnugt um framgöngu þeirra. — Jóhann Havsteen verzlunarstjóri, Árni Væni, Jón Kristjánsson lögreglu- þjóns og Axel Ásgeirsson bakarasveinn stóðu óralengi út í sjó og söktu þar upp í vatnsfötunum — sumir fullyrða að Árni Væni hafi staðið þar allan tímann, meðan var að brenna, og á- valt fremstur (dýpst) í röðinni. Þá vofu og ýmsir mjög duglegir við björgunina t. d. Anton Jónsson timbur- meistari, A. J. Bertelsen verksmiðju- stjóri, Pétur Jónasson verzlunarmaður, Pálmi Jónsson oe Guðl. Pálsson snikk- ari, Kristján Jósefsson verzlunarmaður, Sigtr. Helgason. Ófriðurinn. Svohljóðandi símskeyti fékk »Qjh.'‘ rétt þegar það var að fara í press- una: Tyrkir neita að láta Adrian- opel af hendi. Litlar likur til að friðarsamningar takist. Eftirmæli. Rósa Jónsdóttir Thorarensen var fædd í Garðshorni á Þelamörk 22. okt. 1839. Foreldrar hennar voru Jón bóndi Bergs- son frá Rauðalæk og kona hans Þórunn Jónsdóttir bónda á Ási Þorsteinssonar. JÓn Bergsson (f. 1800) var framúrskar- andi ráðdeildarmaður, og græddist honum té svo vel, að hann eignaðist 20 jarðir. Hann varð fjörgamall og dó að íokum hjá Rósu dóttur sinni 1892. Hjá foreldrum sínum í Garðshorni ólst hún upp tii fermingaraldurs. Vorið 1854 fluttist hún með foreldrum sínum að Lönguhlíð 1' Hörgárdal; hafði faðir hennar þá keypt þá jörð að erfing- jum Guðmundar Þorsteinssonar, er þar hafði búið um langa hríð. Veturinn 1861 misti Rósa móður sína úr taugaveiki, er á þeim missirum gekk hér um sveitir og deyddi margt manna. Ettir lát móður sinn- ar fékk Rósa mest-alla Lönguhlíð í arf, ásamt nokkru lausafé, helt faðir hennar þar þó áfram búskapi að sinni, en Rósa fór til Akureyrar, og dvaldi þar 1 — 2 vet- ur sér til menningar. Brátt hvarf hún þó heim að Lönguhlíð aftur, og fór að búa á hálfri jörðinni móti föður sínum; þótti það sköruglega gert af henni »einni sínsliðs;« bjó hún með ráðdeild og dugnaði nokkra vetur. Á þeim árum tók hún stúlkubarn af bláfátækum foreldrum, ól hana upp að öllu leyti; uns hún gifti hana burt sem sína eigin dóttur. Árið 1868 giftist Rósa Stefáni timbur- meistara Thorarinsen Olafssyní læknis á Hofi, Stefánssonar amtmanns á Möðru- völlum. Tóku þau hjón þá alla jörðina til ábúðar, en Jón faðir hennar fór búferlum að einni jörð sinni Auðnum í Oxnadal og bjó þar mörg ár, eftir það, uns hann fór áftur til dóttur sinnar, eins og áður er sagt. í Lönguhlíð bjó Rósa síðan með manni sinum í 36 ár, með rausn og snyrtimensku, uns hún misti hann 13. okt. 1904;* eftir það bjó hún enn á nokktum hluta jarðar- innar, um átta ár, með tveim börnun sín- * í eftirmælum Stefáns heitins Thoraren- sens, í »Norðurlandi« þ. á., er nokk- uð skýrt frá æfi hans og manndóms- verkum, svo og frá börnum þeirra hjóna. um, sem þá voru ógift, hafði hún þá bú- ið á erfðajörð sinni um hálfa öld, og á- valt verið fyrirmyndarkona í hverri stöðu, sem hún var. Með manni sínum eignaðist hún 7 börn, dóu 2 þeirra í æsku, en 5 eru enn á lífi; eru þau öll sérlega háttprúð og mætasta fólk. Auk barna sinna ólu þau hjón upp 2 fóstursyni. Rósa andaðist í örmum barna sinna 15. nóv. s. 1. Banamein hennnr var illkyn- jaður þrymill í hálsi. Hún hafði óskerta rænu til síðustu stundar, og bar ógnir, dauðans með hugprýði og trúarstyrk. Hið fagra og dáðríka líf sitt hafði hún um fram alt helgað skyldunni sem móðir, eiginkona og húsfreyja. Mæla það allir á einn veg, að eigi verði þar lengra gengið; hún var að öllu hin mesta sómakona, prúð- mannleg og alúðleg í umgengni, gjöful við fátæka og gestrisin við alla, er til hennar komu. Við fráfall hennar hefir Hörgárdal- ur á bak að sjá einni hinni ágætustu dætra sinna. G. G. Sölubúð Gránufélagsins verður lokuð frá 29. desemb. til 11. janúar næstk. Pétur Péturssoij. Sökum vörukönnunar verður sölubúð Kaup- félags Eyfirðinga lokuð 1. iil 13. jan. næst- komandi og Kjötbúðinni 1. til 6. janúar. Félagsstjórnin. Konungleg hirðverksmiðja. Bræðurnir Cloeífa mæla með sfnum viðurkendu SÚKKULADETEGUNDUM, sem eingöngu eru búnar til úr finasta kakao, sykri og Vanille. Ennfremur kakaópúlver af beztu teg. Ágætis vitnisburðir fráefnarannsóknarstofum. Reykið alt af undantekningarlaust reykfóbak <* virjdla C. W. Obel í Aalborg Vindlarnir eru búnir til eingöngu úr hreinu og ósviknu tobak og verðið svarar að öllu leyti til gæðanna. Vörur frá Obel eru hollar og góðar. Kaupmenn og kaupfélög m-u-n-i-ð e-f-t-i-r að umboðsverzlunin AÍS JMorsk- Islandsk^HandelskompaijF utvegar með lægsta verði og beztum borgunarskilmálum, allskonar vörur - sl"; r neínaStMSérStaklega; Sa,t> SÍId»«-t«"nur. Tlmbur, Velbarterl sesti og Kaðla. Kornvorur, Marscarlne, Þurmiólk og margt tieira. Telegr. Adr: ,Kompaniet‘ Stavanger. ISTEDf , dansfca smjöriiki erbest. Biöjii iMn \e$urvl\mar ,Sólcy" .ingólftir" „Hehia~cða /sflfokf SmjóHikið fœ^t einungi^ fra'j Ofto tAönsted tyr. * s Kaupmannahöfn oa/lrosum ^ i Danmörhu. 1

x

Gjallarhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gjallarhorn
https://timarit.is/publication/186

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.