Huginn - 10.10.1907, Page 1

Huginn - 10.10.1907, Page 1
I. árg 8. tl>l Reykjavík ÍO. okt. 1907. yiitarisgangan. Niðurlag. Nú var gengið til svefns á prestssetrinu, og öllum altarisgöngu undirbúningi var lokið. Prestinum var þungt í skapi þegar hann gekk til hvílu. Hann hafði ekki haft tíma til bænahalds þenna dag, — og ekki einu sinni seinni partinn. — En fyrir því þurfti hann ekki að vera verri en Sankti Páll: »Það góða, sem eg vil, það geri eg ekki; en það vonda, sem eg vil ekfei, það geri eg«. Já, svona gengur það, — hugsaði prestur jafnvel fyrir guðsmönnunum. Svo lagði hann aftur augun og sofnaði rótt. — — Sunnudagurinn kom, hlíður og fagur. Loftið var heiðríkt og kyrt, og sólargeislarnir vermdu og tystu alt og alla. Alstaðar drotnaði há- tign og friður í náttúrunnar volduga ríki. — Par var líka sunnudagur, og musteri hennar var óvenju- lega hátíðlega skreytt. Yeggirnir voru tjaldaðir glansandi léttri ljósblæju, og lagðir með óteljandi silfurþráðum, og prýddir með skínandi marglitum málverkum. Gólíið var hulið með grænleitum dúk, og í hann voru ofin yndisleg blóm, af öllum tegundum. Hingað og þangað gljáði á hina stór- fenglegu spegla, sem endursýndu skraut hliðanna og hvelfingarinnar, — ómælilega háu, bláu hvelf- ingarinnar — með afarstóra ljósahjálminum. Altari og stólar voru þaktír drifhvítu klæði, með allavega litu og löguðu kögri og margskonar rósum og legg- ingum. Alvaldur sté í stólinn og prédikaði um hvíld, frið og fögnuð fyrir alt og alla. — En frá öllum hliðum musterisins ómaði söngurinn, svo unaðslega samstiltur, svo ósegjanlega vekjandi og hugfangandi, að hann hlaut að hrífa tilheyrandann. Ljúfir og töfrandi hljómuðu tónarnir í eyrum hans, og snertu instu og næmustu strengi í hans eigin brjósti. Þar vöknuðu til lifs raddir, hugsjónir og tilfinningar, sem áður voru óþektar að mestu, en voru þó svo hugðnæmar, fagrar og ólíkar öllu hversdagslegu. Hér urðu þær skýrar. Hér sá augað svo langt. Hér heyrði eyrað svo vel. Hér var tilfinningin svo næm, og skilningurinn svo skarpur. — Hér, og hvergi betur, gat maður þekt sjálfan sig og guð. Én þeir voru fáir i N.þingum sem höfðu tíma til að sitja í þessu musteri. — Þeir ætluðu, allir sem gátu, til litlu, svartbikuðu timbur-kirkjunnar, þar sem síra H. messaði. Þar var nú kveikt á kertum og farið að hringja. Fólkið þusti að úr öllum áttum, og fjálgleikinn breiddist eins og blæja yfir andlit hinna trúuðu.. Ilún var þykkri og þykkri, þyngri og þyngri, eftir því sem nær kirkj- unni kom. Látbragð og göngulag fólksins var hægt og sett og höfuðin niðurlút. Söngmennirnir byrj- uðu að syngja, hægt og svæfandi. — En prestur- inn hrökk upp á réttum tíma og tók til að lesa og tóna, tóna og lesa, þangað til hann hitti það amen, sem hann ætlaði að stoppast við. Þá sté hann úr stólnum — og samstundis ómaði frá söng- flokknum: »Hér kem eg seki syndarinn« o. s. frv. Allarisgangan byrjaði. — Hjörtur hafði tekið sér sæti frammi í krók- bekknum, eins og hann var vanur. Hann sat þar einn, en annarsstaðar var kirkjan troðfull. Hann grufði höfði ofan í hendur sínar og bað guð fyrir sér, heitt og hjartanlega. Aldrei hafði hann verið eins snortinn af innilegri trúarhreyfmgu, eins og einmitt á þessari stundu. Hann táraðist, en var þó svo innilega glaður og sæll. Hann vissi vel, að hann var aumingi, erfiði og þunga hlaðinn, — en nú vonaði hann að fá hvíld, sanna og örugga hvíld í liknarfaðmi frelsarans. — Ó, hvað það yrði sætt tyrir hann svo þreyttan, — svo ósegjanlega dauð- þreyttann, — af sífeldu mótlæti og bágindum, alt frá þeirri stundu að hann mundi til sín fyrst. — Hvað honum fanst það sæluríkt, — óviðjafnanlega fagnaðarríkt, — að eiga nú von á að komast í sátt við guðl Almáttuga og algóða föðurinn, sem bráð- um tæki hann heim til sín. Heim þangað, sem engar þjáningar gátu pínt liann lengur. Hvað hún var styrkjandi og hugsvalandi þessi von um full- vissu á fyrirgefningu syndanna. — Þá yrði biðin hér svo léttbær. Þá gæti hann rólegur mætt síð- ustu og þyngstu þjáningunum, og fagnandi og glað- ur tekið dauðanum, sem þeim vini, er létti af honum hinni þungu byrði: lífinu, — og flytti hann í föðurfáðminn. Hér átti hann engan föður og ekkert heimili. En hvað gat það hér eftir gert honum til? Hvað gat það gert honum, þótt hann væri einskisvirtur hér, ætti ekkert hér, og vænti einskis hér? — þegar hann þar, — hinu megin — átti að fá hvíld í faðmi föðurins mikla, milda og' elskulega, sem ekki mundi fyrirlíta hans sundur- kramda og sundurmarða hjarta, heldur að eilífu gera hann sælan, og —- jafnan hinum börnunum sínum! — — En alt í einu datt Hirti í hug, að þetta væri engin bœn, og það væri þó hún, sem mest riði á nú, svo sakramentið gæti orðið honum að tilætluðum notum, og svo hann gæti nú fengið á- JOHN D. ROCKF.FELLER. reiðanlega fullvissu um fyrirgefning syndanna. »Guð vertu mér svndugum líknsamur«, andvarpaði hann, hvað eftir annað. En eftir að altarisgangan byrj- aði bafði liann sifelt upp fyrir sér versið: »Hér kem eg seki syndarinn, af sálarþorsta neyddur, og flý í líknarfaðminn þinn, sem fyrir mig varst deyddur. O Jesú, tak á móti mér að máltið helgri þinni, og hvild mér bú við hjarta þér, að hjartasorg mín linni og hjartans frið eg finni«. Honum fanst hvert orð í þessu versi vera eftir sinu höfði, töluð írá sínu brjósti, þau væru sín orð, sín bæn. Hjörtur baðst fyrir heitt og innilega, eins og barnslega trúuðum aumingjum er svo eiginlegt. — Iíænin er þeirra aðalúrræði og athvarf. Og þeir biðja vanalega því betur, því nfinni sem bænheyrslan sýnist vera. , Þeir lita svo á, sem það sé vegna þess, að þeir liafi ekki gert bæn sína nógu vel. En bænir þeirra eru ekki gerðar á strætum og gatnamótum, lieldur oftast í afkymum og ein- veru, þar sem, — og um leið og þeir fela tár sín og andvörp. Og þegar þeir fara i kirkju, hafa þeir ekki svo mikið sem klút, til þess að sýna að þeir séu að gera bæn sína. — Ekki hafði Hjörtur peinn,— og hefir það þó sjálfsagt verið hlægilegt, þar sem hann ætlaði til altaris! — Presturinn hafði ekki farið þannig að ráði sínu. Fötin hans höfðu fengið sérstaklega vandað- an undirbúning, og hann hélt stöðugt silkiklút fyrir andliti sínu, þar sem hann í auðmýkt og fjálgleik kraup við gráturnar með »Familíu sinni«. Söfnuðurinn horfði Imfinn á prestinn sinn. Hon- um fór þetta svo vel, og hann var svo nettur og prúður. — Oblátan hlunkaðist ekki ofan í hann, eins og spaðbiti ofan í glorhungraðan smala. Nei, hún hvarf, án þess hann sæíst kingja. Og ekki svelgdi hann vínið eins og dauðþyrstur drykkju- svoli. — Hann aðeins drejrpti í það, og það hvarf einnig á sama hátt og oblátan. — Já, hann kunni sig nú ætíð dæmalaust vel. — Hefði Hjörtur verið þarna við hlið hans! Ó, þvílikur fádæma mannamunur! En vesalings Hjörtur var fram í krókbekkn- um. Hann hafði nú ákafan hjartslátt, af von og eftirvæntingu. Hann vissi að nú mundi stundin koma þá og þá, þegar hann skyldi ganga til guðs borðs. Og hann reyndi nú að taka eftir hvérri hreyfingu meðhjálparans, svo hann gæti komið strax með seinni hópnum, eftir bendingu hans. — En hvernig stóð á þessul? — Nú var sungið: »Ó, Jesú líf mitt lof sé þér«. Altarisgöngunni var lokið I Og Hjörtur var þarna kyr í krókbekknum. Hann skildi ekkert í þessu. — Hverju var þetta að kenna? Var það honum að kenna?, prestinum að kenna?, meðhjálparanum að kenna? — Eða var þetta guðs vilji? — Vildi guð ekki leyfa honum aðgang að sínu borði? Mátti hann ekki flýja i líknarfaðminn, eins og hin börnin? Var hann altaf og alstaðar ölnbogabarn?! Honum ílugu í hug ótal spurningar, en fann engin svör. Irúarhitinn og geðæsingin, vonin og fögnuðurinn skiftu svo snögglega um við efann og magnleysið, kviðann og sorgina, að hann var al- gerlega truflaður og ráðalaus. — Fólkið ruddist nú út úr kirkjunni hver sem betur gat. Hjörtur staulaðist einnig á fætur, og eigraði út með því, — Hann gat eiginlega ekki lnigsað neitt lengur, en honum fanst sem sér heíði verið kipt frá Ifiiði liimins, og niður í kvalastaðinn. Margt af kirkjufólkinu stanzaði fyrir framan kirkjuna, og' menn og konur heilsuðust þar vina- lega og brosandi. Fjálgleika-blæjan var horfin af hverju andliti, og allir voru glaðir og kátir. — Þess- um hóp var heldur starsýnt á Hjört, þar sem hann skjögraði frá kirkjunni. Nú skitti sér samt enginn neitt af honum. Nú var hann.— hágrátandi. Björn Sigurðsson. Smápistlar jrá yímeríku eftir A. J. Johnson (organista í Winnipeg). Inngrangsorð. Þegar eg fór frá íslandi fyrir tveim árum, þá man eg það, að eg lofaði kunningjum mínum og vinum því, að skrifa þeim héðan um hvernig mér hcfir komið þetta margumtalaða undraland (Ameríka) fyrir sjónir. Eg veit, að eg liefi ekki efnt þetta lof- orð, sem skyldi, og því ætla eg nú að skrifa þessa pistla, sem einskonar bréf, ekki að eins til kunningja minna, sem eg bafði lofað að skrifa, heldur til allra þeirra íslendinga, sem lesa þetta blað, sem eg bið að birta pistlana, og eitthvað langar til að frétta um þetta land, og líf og lifnaðarháttu landa sinna hér. Eg skal strax taka það fram, að eg ætla ekki að tala um alla Ameríku, það er mér ömögu- legt, og ekki heldur um líf allra íslendinga hér í landi, því að svo eru þeir dreifðir hér, að það væri of- verk fyrir nokkurn íslending að gera; en eg ætla

x

Huginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Huginn
https://timarit.is/publication/187

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.