Huginn - 10.10.1907, Page 3
H UJG I N N
31
Fréttir um tiðarfar, atvinnu m. fl. kemur í næsta
fréttabréfi í september.
(Skýring: Minnesotarikið, sem bærinn Minneota er
í, og bréf þetta er skrifað úr, er eitt af ríkjum Banda-
ríkjanna, og liggur beint austur af Norður-Dakota og nær
norður áð merkjalínunni milli Canada og Bandaríkjanna.
Ríkin Minnesota og Norður-Dakota eru nálægt pví i miðju
landinu (Norður-Ameriku. A. J. J.l.
Fréttabréf frá fréttaritara i Blaine Wash. U. S. A. (10. sept.).
Tíðarfar liefir verið hér gott og liagslætt síðastl.
mánuð eins og venja er til. Sólskin og hreinviðri
með litlum vindblæ dag eftir dag, að eins fáar regn-
skúrir komið. Heilsufar fólksins yfir höfuð gott, og
fjárhagsleg líðan sömuleiðis. Atvinna hefir verið hér
á ströndinni yfirleitt mjög góð í sumar, og þar af
leiðandi hátt kaup borgað. Hér í Blain var mjög
góð átvinna næstl. mánuð á laxveiða-niðursuðuliús-
unurn. Laxveiði var óvenjulega mikil. Fjöldi af
fóllci hefir stundað þá atvinnu með miklum hagnaði.
í bænum Blaine og nágrenninu eru margar þakspóns-
verksmiðjur sem veita mikla atvinnu. Einnig hefir
verið hér talsverð vinna við að höggva málþráðar-
staura. Nokkrir skipsfarmar af þeim hafa verið
sendir héðan til San Francisko í Californiu. Upp-
skcra af heyi og liöfrum var dálítið minni en venju-
lega, sem orsakaðist af of miklum þurkum næstl.
vor. Garðávextir verða dálítið minni en vanal., en
aldinauppskera liygg eg að verði í góðu lagi. ís-
lendingmn sem hér búa líður flestum vel, eignir
þeirra eru að vaxa, og margir eru að ná eignarhaldi
á landblettum, því að þeir sjá að framtíðarvelgengnin
byggist að miklu leyti á landbúnaðinum. Skógur
gengur til þurðar eftir tiltölulega fá ár, og þar af
leiðandi aðalvinnan sem nú er — mylluvinnan —
líður undir lok. 2. ágúst var haldinn hátíðlegur hér
í Blaine. Skemtanir fóru vel fram. Nýja íslen/.ka
flaggið og Bandaríkjaflaggið voru hátt upp hafin við
þá athöfn.
(Skýring: Bærinn Blaine er í Washington ríkinu í
Bandaríkjuniim, sem er norðasta ríki Bandankjanna vestur
við Kyrrahaílð. Allmargir íslendingar eiga heima víðsveg-
ar í rikinu, en langfjölmennastir eru þeir í bænum Blaine,
scm framanritað fréttabréf er skrifað úr. A. J. J.).
Frá fréttaritara í Markerville Alberta. (1. sept.).
Héðan er nú ilt eitt að segja um tíðina, með
öllum sínum illu afleiðingunt. Hér var alment byrjað
að heyja síðustu dagana af júlí, að eins fáeinir sem
byrjuðu nokkru fyr. Grasvöxtur óvíða í meðallagi,
og tíðin í ágúst óslilt og votviðrasöm, svo útlitið með
heyskapinn er alt annað en glæsilegt, því að fæstir rnunu
vera búnir að heyja helming þeirra heyja sem þeir
þurfa. Svo hætist það á, að öll heylönd, sem lág
eru, eru rneira og minna undir vatni. sem ekki þorn-
ar til gagns þetta sumar. Litlu betur áhorfist með
akuryrkju í þetta sinn. Að vísu hafa akrar hér aldrei
sprottið eins vel yíirleitt sem nú, en svo kom hér
hörkufrost aðfaranótt 19. ág. (9 stig) sem stórskemdi
og eyðilagði hér yfir alt. Sumir akrar eru gersam-
lega ónýtir, og það er enn ómögulegt að segja hvað
að gagni verður af ökrunum, hvort það verður nokk-
uð cða ekki neitt, því að útlitið er mjög ískyggilegt. —
Komi góð tíð -svo sem 2—3 vikur munu þeir akrar
sem nú eru grænir verða að gagni, en um slíkt er
tæpast að ræða, lteynist nokkur uppskera að gagni
liér á næsta bausti, þá er það fram yfir allar vonir,
því að eg J)ori að fullyrða að austur í Manitoba og
Dakota hefðu akrar dauðfrosið undir sama gráðu-
tali af frosti. Þetta munu þykja öfgar, cn eg ætla það
muni alveg rétt. Eg álit, að við Albertabúar séum
betur af með tíðina, þó vond hafi verið, en ýms
héruð önnur, þar sem þúsundir akra hafa á svip-
stundu eyðilagst með öllu, en heylöndin undir djúpu
vatni. Það er sjálfum okkur að kenna ef við höfum
ekki gott skepnufóður af ökrunum, og er það mikils
virði. Vonandi að þessi mánuður verði þurrari og
og hagstæðari veðurátta. Heilsufar gott fyrir lengri
tíma hér um slóðir. íslendingadagur var haldinn liér
2. ágúst og þótti takast vel. Einn meðal ræðumann-
anna var skáldið Stephán G. Stephánsson.
(Skýring: Alberta-fylkið er næsla fylki fyrir austan
Klettaijöllin Canada megin. Suðurtakmörk þess er línan
milli Canada og Bándárikjanna. Framan ritað bréf er úr
bygð Isl., hinni einu sem er í þessu fylki. Sú bygð er það
austarlefea, að að eins sést otan á fjöllin (sem þó eru afar-
há) úr henni i björtu og heiðskíru veðri. A. J. J.)
ökrum bænda og á nýslegnu heyi. Á stöku stöðum
kveiktu eldingar í húsum og öðrum byggingum og
hlauzt af því eignatjón. Einnig veittu eldingar 3
mönnum bana, og nokkrum áverka þar að auki.
Uppskera stendur nú sem hæzt, og er talin að vera
góð. Sykurrófur eru með langbezta móti. Uppskera
á þeim byrjar um miðjan sept. Jarðepli eru með
rýrara móti og afar dýr 2^2 c. pd. (nál. 10 a.) og
ávextir af trjám eru því nær engir, vegna frosta, sem
komu hér í maímán. og eyðilögðu þá á einni nóttu.
Heilsufar ágætt í alt sumar. Engir nafnkunnir ísl.
hafa dáið. Löndurn líður hér öllum bærilega, og
una vel hag sínum. Við erum ekki neinir hávaða-
rnenn, og þar af leiðandi kveður ekki mikið að okk-
ur í félagsskap, þó eigum við hér menn sem eigi
gefa eftir annarar þjóðar mönnum. Atvinna hefir
verið með bezta móti hér í sumar og kaupgjald gott.
Stjórn Bandaríkjanna er að gera hér þrekvirki, sem
er að veita vatni á eina miljón ekrur af þurru landi,
sem ekki hefir áður verið hægt að stunda jarðyrkju
á vegna þurka. Vatnið er leitt langar leiðir að í
pípum. í aðalskurðinum sem vatnspípurnar liggja
eftir, verður útbúin foss —þar sem þær liggja niður
fjöllin — til að knýja áfram rafvélar, og raflýsa með
þeim bæ okkar (Spanish Fork).
(Skýring: Framan ritað fréttabréf er úr langsyðstu
bygð Isl. í þessu landi. Bærinn Spanish Fork er i Utalp
ríkinu sem er vestan til í miðjum Bandarikjunum. Annað
ríki austar, California, veðursælasta ríki Norður-Ameríku.
___________ A. J. J.).
Borgarfirði 8. okt.
Barn á Sámsstöðum 1 Hvítársíðu féll ofan í
pott og brann til bana.
Mjög mikill snjór fallinn í Borgai'firði. Fenti
alt fé í Sveinalungu, margt fundið.
Haglaust varð niður í sjó á laugardaginn (5.).
Fjárrekstramenn ýmsir komust í mikla mann-
raun. Rekstrarmenn úr Hvítársíðu sem lögðu upp
byldaginn suður Kaldadal á leið til Reykjavíkur kom-
ust með illan leik í Brunna. Stóðu þar úti alla nótt-
ina yfir fénu. Svo mikinn snjó gerði, að að eins
sáust hausarnir á fénu upp úr. Þeir komust þó
óskemdir loks til Reykjavíkur.
Akurcyri 9. okt. kl. 2. síðd.
Ótíð míkil hefir verið hér undanfarið. Síðastl.
laugardag (4.) og sunnudag (5.) snjóaði afar mikið
mikið og fenti fé, það er nú dregið úr fönn ýmist
dautt eða lifandi. Svo mjkill var snjórinn að til bar
að hestar köfnuðu. Ofsarok var á] Sigluíirði, fauk
þar þak af stóru húsi en veggirnir hrundu síðan.
Bátar brotnuðu og fleiri skaðar urðu.
Aflalaust á Eyjafirði með öllu enda litlar gæftir
og síld engin. Hér starfa engin frystihús.
Kartöfluuppskera með lang minsta móti sem
menn muna.
Síðan á mánud. (6.) heflr tiðin verið betri, sunn-
anátt og hláka á daginn en frost um nætur.
Nú er verið að koma á fót nýju leikfélagi, hefir
ekkert fast leikfélag starfað hér um tíma.
Þegar gagnfræðaskólinn var settur liér gat Hjalta-
lín þess, að hann mundi ekki verða lengur við Jiann
skóla en Jienna vetur. Halldór Briem kvaðst og
myndi liætta kenslu við þann skóla á næsta ári.
e/s »Reykjavíkin« misti skrúfuna og var lögð
inn í Grafarvog lil aðgerðar. Þar rak hana upp á
á kletta og kom á hana gat, og er ógert við hana
enn. Þó eru menn frá björgunarskipinu að gera
við liana.
Botnvörpuskipið »Marz« hefir farið 2 Borgar-
nesferðir hennar.
í verzlun
Frá fréttaritara í Spanish Fork Utah U. S. A. (1. sept.
Yíirleitt hcfir ágústmánuður liðið án stórtíðinda.
Fyrri parturinn af honum var þur og fjarska heitur,
100 stig í skugga á F. Urn og eftir þann 20. brá
til óþurka, ekki saint stöðugra rigninga, heldur
skarparegn, og haglskúrir við og við, með þrumum og
eldingum, sem gerðu talsverðan skaða bæði á korn-
Gunnars Einars^ouai
fæst:
K.JÖT af uxum, kvigum,
nautum og sauðum.
Nýreyktur I ^ - V X. Allskonar matvörur og
álnavöriu' m. m.
Klæðsölubúð
Guðm. Sigurðssonar
selur ódýrast
liér í hæ föt og fataefni, hálslín og
slaufur, vetrarhúfur o. 11. sem að fatnaði lítur.
rO
Bjarni Þ. Johnson yfirréttarmálaflutningsmaður Heima kl. 12—1. Pósthússtræti 14 (vestustu norðurdyr).
. r r| _
Sweinn Björnsson yfirréttarmálaflutningsmaður Kirlijustrœti ÍO. | Heima kl. ÍÖ‘/a—íí’/a og 4—5. || Talsími 53.
V «e-r-z-l-u-n
Mattiíasar MattMassoBar
♦ eina búðin milli bankanna +
aug'lýsir sig liezt með
yörng'æðum og verð-
gæðum.
--------%
Allskonar
sælgæti
fæst í
Söluturninum.
Sandpappír fínn
hjá
<§uðm. (Blsen.
Stór tombóla.
Lúðráfélag Reykjavíkur heldur tombólu laugard.
og sunnud. 12. og 13. okt. næstk. í Iðnaðarmanna-
húsinu. Samkvæmt samningi við bæjarstjórn Rvík-
ur hefir félagið tekið að sér að borga að hálfu lúðra
J)á er keyptir voru síðastl. vetur og á því væntanl.
arður af tombólunni að ganga til þess.
Eins og flestum er kunnugt er félagið félaust,
þar sem það vinnur vanalega án borgunar og treystir
það því bæjarbúum að hlaupa undir bagga og styrkja
áðurnefnda tombólu. — Gjöfum verður J)akksamlega
veitt móttaka af félagsmönnum.
Reykjavík 23. sept. 1907.
Stjórnin.
cTCálslín,
%3tataafni)
cTöi. — tJlíf vanóaé.
HAqderseq&Sörj.
Afgreiðsla Ing-ólfs
er flutt i vesturenda á Hótel ísland, í herbergið
gegnt skrifstofu Stórstúkunnar.
Ivaupendur blaðsins tilkynni þangað, ef van-
skil verða á því.
TOMBÓLU
heldur félagið »Aldan« 19. og 20. október
næstkomandi í Bárubúð, til ágóða fyrir
styrktarsjóð félagsins. Gjöfum frá félags-
mönnum og öðrum, er styrkja vilja þessa
tombólu, veitum við undirritaðir móttöku.
Kristinn Magnússon. Jóhannes Hjartarson.
Páll Matthíasson. Porsteinn Sveinsson.
Kristinn Brynjólfsson. Hannes Hafliðason.
Matthías Pórðarson. Hrómundur Jósepsson.
Magnús Magnússon.