Höfuðstaðurinn

Tölublað

Höfuðstaðurinn - 21.11.1916, Blaðsíða 3

Höfuðstaðurinn - 21.11.1916, Blaðsíða 3
HÖFUÐSTAÐURINN ;] Jbzz\. að augt^sa \ ^CoJuðs^a^uum. Nicolosi, sem er aðal áfangastað- ur ferðamanna þeirra sem leggja leið sína upp á hátind fjallsins. Frh. TJnnusta hermannsins. Norsk saga. — o — Frh. XV. Veitingahúsið Neapoli. María kunni ekki við sig á veit- ingahúsinu íyrst í stað. Henni fanst hreint óþolandi að hlýða á samræður gestanna. Henni geðj- aðist lítt að slæpingum þeim, er þangað vöndu komur sínar, þótt þeir létu rigna yfir hann skjalli og lofsyrðum. Hún var vön að hlýða á slíkar ræður með daufu brosi, en hugur hennar var annarssfaðar, langt í burtu. Þegar ekkert var að gera í veit- ingastofunni, tók hún skáldsögu þar úr skúffunni og las. Hún hugsaði alllajafna mikið um Kónráð, og hún gat ekki áttað sig enn á framkomu hans. Frú Larsen, veitingakonan, var ógiít og komin yfir þrítugt, Ijós- hærð, feitlagin og jafnan vingjarn- leg í viðmóti. Henni og Maríu kom mæta vel saman. Ekki leið á löngu þar til Stéin- eit skaut upp, þar á kránni. Jensen haföi gert honum að- vart. Steinert var vanur að fá sér sæti við lítið borö, þar í einu horninu, og átti þá oftast tal ‘ við Maríu. — Hann var ekkert nærgöngull við hena, en blátt áfram og hinn kur- teysastí. María furðaði sig á þessum hátt- um hans, og smámsaman fór henni að geðjast betur að hqpum, hann var svo laglegur maður. Bókbandsvmnustofa JónaSar og Björns er á Laugaveg 4. Hann var ætíð vingjarnlegur við hana og sagði henni margt af ferð- um sínum. Hafði hann víða farið og kunni frá mörgu að segja, og þóttí henní gott að hlýða á sögur hans; en annars var enginn hlý- leiki á milii þeirra. Yrði honum það á að gleyma sér og fara að skjalia hana, tók hún því jafnan kuldalega, svo hon- um leist vænlegast að hætta og hann gat ekki antiað en dáðst að festu hennar, en skildi þó ekki upp né niður í henní. Hún elskaöi Konráð enn og Steinert þóttist finna það að hér yrði að nota önnur ráð, ef duga skyldi, Dag einn, þegar veður var vont, sat Steinert þar í veitingastofunni j og dreypti á öli við og við. Hag- f aði bann þá svo tali sínu, að Stokk- \ hólm bar á góma. Sagði hann S Maríu margt þaðan og þótti henni gaman að. Alt í einu tók hún fram í fyrir j honum og spurði, hvort hann hefði ekki orðið var við varðliðssveitina norsku, sem nú dveldi í Stokk- hólmi. — Auðvitað, svaraði hann, varð eg hennar var. — Það eru fjör- ugir strákar. Enda iíst sænska kven- fólkinu heldur vel á þá. — Hvernig? spurði hún áköf. — Þeir eru naumast komnir á Iand, fyr en sænsku stúlkurnar eru komnar á hæla þeim og elta þá svo á röndum. Það eru ekki ein- asta vinnukonurnar, sem Iíst vel á varðliðana, heldur einnig heldri manna dætur, sem líta í náð til hinna ungu og efnilegu sona Nor- egs. Þessi orð snertu Maríu ónota- lega. Steinert sá að henni leið illa, ! en hlakkaði þó yfir, og vonaði að nú færi hann að þokast að mark- inu. María vissi ekkert um það, að Steinert væri alt kunnugt um hagi hennar. — Þeir trúlofa sig þó ekki allir þar, varðliðarnir, varð henni að orði. Sumir þeirra eru trúlofaðir Höfuðstaðurinn er bezta blaðið. Hvergi er betra að auglýsa en í íHöfuðstaðnum «. »Höfuðstaðurinn« flytur ails konar fróðleik, kvæöi og stökur, og tvær sögur, hvora annari betri. Kaupið því Höfuðstaðinn. hér beima, bætti hún við með á- kefð. — J®> °g hafa Þt fofað unnust- unum gulli og grænum skógum — hélt Steinert áfram brosandi — en hvað þér eruð saklaus. Oetið þér i raun og veru ímyndað yður að þeir haldi þau Ioforð ? — Það er líkt með varðliðana og sjómenn- na, sem eiga kærustu í hverri höfn. María laut yfir borðið til að eyna roðanum, sem þaut út í kinn- ar hennar. Orð Steinerts höfðu komið henni í ofsa geðshræringu. Þarna gat verið ráðning á gátunni á framferð Konráðs. Hvernig sem hún reyndi til að hrinda þessum grun úr huga sér, gat hún það ekki, grunurinn um trygðarof Konráðs, var búinn að esta rætur í hjarta hennar. Steinert borgaði ölið og fór. Hann kvaðst þurfa að skrifa nokkur bréf heima hjá sér. Frh. CN cd KO V m m cd E '35 to S 3 jO • c cd Qm Dýrlíngurinn, ] \ 4 ara í huga sér. Hann hafði reynt það hvað eftir annað að hann var hinn kænasti stjórnvitringur og þótti nú grunsamt, að hann neytti eigi þekkingar sinnar, heldur lét ofsækja sig sem hinir miklu postular hinnar fyrri kristni eða ofstækisfullur trúvillingur síðari tíma. Óljúgfróðir menn sögðu mér og eg taldi það rétt, eftir þekking minni á herra Thomasi, að hann hefði hald- ið málstað sinn heilagan og haldið höndum sínum hrein- um og engin drottinsvik haft í frammi við konung sinn, hafi eigi lagt að páfanum og einungis beðið Capelunginn um klausturklefa, þar sem hann gæii hulið höfuö sitt. Hinn heilagi faðir brást honum og hann foröaðist hirð Capetungsins og gekk nú allslaus við vonarvöl sinn frá klaustri til klausturs og týndist við og við. Lík.imj hans þvarr þar í Frakklandi, en að sama skapi óx and- legt veldi hans í Englandi og andleg návist hans og skein þar sera túngl í fyllingu yfir hinum sorgbitnu Söxum. Eöa, ef yður fellur það betur, herra Thomas bjó, sem Kristur í jötunni, skrautlaust en vel í hugum og kofum Engilsaxa. Þar drotnaði hann sem konungur og rak ótt- ann úr hugum manna. Eg hefi séð með eigin augum, að Saxar og þó frek- ar konur þeirra neituðu að sýna Hinriki konungi lotning og falla á kné fyrir honum, eftir það er hann gerði yfir- biskupinn útlægan, heldur sneru sér undan, þegar hann íeið fram hjá. Man eg enn eflir einu atviki. Konungur gekk einn dag sér til skemtunar í garði sínum, þar sem hann endaði við fljót og fagurlitna, og eg gekk sem vandi uv'nn var spölkoin á eftir honum. Þá kom þar fram úr blómlegum runni lítill saxneskur glóxoilur og Ienti milli 115 ó ta konungi. Þenna dag var konungur í góðu skapi tók sveininn upp og lét vel að honum og lét koma silf- urpening í smáan lófa hans. »Haltu nú fast, karl minn«j sagði hann. Móðir sveinsins hafði fyrst kent lotningar og titrings og falið sig bak við runninn, en nú hljóp hún fram og brann eldur úr augum hennar, þreif peningin0 af sveininum og þeytti honum með skelfing inn í skóg" arþykniö svo sem það væri einn hinna þrjátíu Júdasara peninga. Eg skundaði þangað og ætlaði að grípa hin- ósvífnu konu, er hljóp nú á brott með sveininn á hand legg sér. En Hinrik konungur mælti: »Láttu hana fara’ Hans«! Hann hélt áfram göngu sinni andvarpandi og þungt hugsandi, og var nú hið góða skap horfið. Daga og nætur hugsaði konungur um það eitt, hversu hann mætti svifta herra Thomas yfirbiskupstigninni á lög- legan hátt og að fullu og öllu, því að hann ímyndaði sér að tilbeiðsla Saxanna væri bundin við hana. Oft hefi eg séð hann styðja hönd undir enni og hugsa um þetta. Einn morgun kom hann með sigursvip út úr svefnher- bergi sínu. Hann þóttist hafa ráðið gátuna. Þetta var á uppstigningardag. Þá sat Hinrik kon- ungur á ráðstefnu meö bardnum sfnum og leiddi þeim fyrir sjónir, að víðlent ríki sitt þyrfti annan stjórnanda að auki og mundi hanti þvi láta nokkurn hluta ríkisins af hendi við elzta son sinn og létta sér með því erfiði og áhyggjur. Höfðingjar hans féllust á, í góðum eöa illum hug og fyrirætiunum, að Hinrik yrði krýndur við hlið föður síns, og hinn normenski biskup í Jórvík ktýndi hinn unga mann og smuröi. Síðan var veizla haldin samboðin við-

x

Höfuðstaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.