Höfuðstaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Höfuðstaðurinn - 28.11.1916, Qupperneq 1

Höfuðstaðurinn - 28.11.1916, Qupperneq 1
HÖFUÐSTAÐURINN 61. ibl. Þr iðjudaginn 2 8. nóvember. 1916 HÖFUBSTAÐimira | „ kemur íit daglega, ýmist heilt § blað árdegis eða hálft blað árdeg- j| m is og hálft síðdegis eftir því sem « ástæður eru með fréttir og mikils- jg verðandi nýjungar, tt » Símskeyti írá útlöndum. Frá fréttarítara Höfuðstaðarins. Höfuðstaðurinn er bezta blaðið. Hvergi er betra að auglýs* en í » Höfuðstaðnum «. »Höfuðstaðurinn« flytur alls konar fróðleik, kvæði og stökur, og tvær sögur, hvora annari betri. Kaupið því Höfuðstaðinn. HOFUÐSTAÐURMg Afmæli í dag. Nikulína Nikulásdóttir, húsfrú. | J tíuilfoss kom til Kirkwall á laugardaginn, átti að fara þaðan aftur síðd. á sunnud. áleiðis til Leith. Snjór féll í nótt, mestur á vetrinum, sem af er. Háskólinn í dag. Björn M. Olsen próf.: Bók- mentasaga íslendinga kl. 5—6. Jón Jónsson docent: Saga ís- lensku kirkjunar kl. 7—8. Alexander Jóhannesson dr. phil. Engilsaxneska kl. 7—8. Ókeypis lækningar Háskólans eru í dag kl. 12—1. Tannlækning kl. 2—3. Jóla- og nýárskortin, sero Friðfinnur Guðjórísson hefir gefið út, eru öllum kærkomin send- ing. Á þeim eru fjöldamörg ís- Jenzk erindi og heillaóskir. Kaupm.höfn 27. nóv. Stjórn Venizelosar hefir sagt Þjóðverjum og Búlgurum stríð á hendur. Ófriðurnn XVII. Liggja nú um lönd og höf líkin, eins’og veggur. Fram á yztu neyðar nöf nályktina leggur. S ó 1 o n. Símfrétt að vestan. Enskur botnvörpurgur kom til Englands með skipshafnir af þremur botnvörpungum brezkum, sem hann sagði að hefðu verið skotnir f kaf út af Dýra- firðl. ÁVEXTIR eru góðir og ódýrir frá Amerfku, en ódýrari frá ENOLANDI. Fást í % Verslun Asgríms Eyþórssonar. 30-40 tn. mótorbátur óskast til leigu nú þegar. ÍTánari upplýsiDgar í Bankastiæti 11 Maskínolía -- Lagerolia Cylinderolia Sýnishorn látin ef um er beðið. H. I. S, Gömul reiðhjól sem ný •f þau aru gljábrend (ofnlakkeruð) hjá reiðhjólaverksmiðjunni Fálkinn Laugaveg 24, 9tBT Fyrsta flokks vinna. a& au^sa \ Póliand sjálfstætt konungsríki. Póiskur her við hlið þýska óg austurríska hersins. Eins og menn muna hefir það borist hingað símleiðis, að Mið- veldin hefðu lýst Pólland sjálf- stœtt ríki. Hér fer á eftir ávarpið til Pólverja: »Til íbúanna f Lublin og War- schau 1 Drotnar hinna sameinuðu ríkja, Austurríkis-Ungv.lands og Þýska- lands, hafa gert kunnugt, að hin pólversku lönd, sem leyst hafa verið úr ánauðaroki Rússlands, skuli mynda nýtt, sjálfstœtt kon- ungsríki, Heitustu óskir yðar um meira en hundrað ára skeið, verða þá uppfyltar. Alvara og hætta hinna erfiðu ófriðartíma, og umhyggjan fyrir her vorum, sem nú stendur and- spænis óvinum vorum, neyðir oss til fyrst um sinn, að sleppa ekki yfirráðum hins nýja ríkis yðar úr vorum höndum, með öllu, en með hjálp yðar munum vér smátt og smátt koma á því stjórn- arskipunarlagi hjá yður, er tryggi yður traustan grundvöll, fram- þróun og öryggi. Pólskur her verður að vera aðalatriðið. Ófriðurinn við Rúss- land er ekki enn til lykta leiddur. Sé það ósk yðar að taka þátt í honum, þá berjist sjálfviljugir við hlið vora, til að flýta fyrir sigr- inum yfir kúgurum yðar. Brœð- ur yðar í pólsku herdeildinni hafa barist hraustlega við hlið vora. Gerið sem þeir, safnið nýjum herdeildum sem í sameiningu með hinum eldri, myndi hinn pólska her. Það mun gefa ríki yðar festu og tryggja það út á við. Undir litum og fánum heim- lands yðar, sem þér unnið öllu fremur, munuð þér vernda föð- urland yðar. Vér þekkjum hreysti yðra og og brennandi föðurlandsást og hetjudug, og vér heitum nú á yður: Frain í stríð við hlið vora. Safnið saman öllum vopnfærum mönnnm yðar, og fylgið dæmi hinna eldri, hraustu herdeilda yð- ar. Leggið f sameiningu við heri vora, grundvöllinn undir hið pólska ríki. Látið hinar dýrlegu endurminningu um forna hreysti og hetjudygðir kappa yðar lifa í yður enn á ný og þér munuð verða langlífir 1 landinu«.

x

Höfuðstaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.