Ingólfur

Útgáva

Ingólfur - 25.09.1904, Síða 1

Ingólfur - 25.09.1904, Síða 1
INGÓLFUR Keikjavík, suniiudagiiin 25. sept. 1904. 40. blað. II. ÁR. ÞÝZKAB BÆKUR OG BLÖÐ útvegar E. Gunnarsson, Laufásv. 6, Rvík i'ir,il>TJ.n inimiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiniiniiii i i i i i i i r i i i~i INGOLFUR. Níir knupeiulur að næsta, 3., árg. blaðsins geta fengið það sem eftir er af þessum árg. um 15 blöð firir aðeins kr. 0,50. ________ Útsölumenn, sem hafa fengið ofsent af blaðinu eru vinsamlegast beðnir að senda það hið firsta til baka. 1. árg. blaðsins fæst enn og kostar innheftur kr. 2,50. Yansklluni, sem kinnu að eiga sér stað eru viðkomendur vinsamlegast beð- nir að láta vita af í tíma, svo úr þeim verði hægt að bæta. Gjalddagl blaðsins var 1. júli og tek- ur gjaldkeri blaðsins Einar Gunnarsson cand. phil. móti andvirði. OOOOOOOOOOOOOO O O Q Q Mille gratias tibi ago!1 Þótt jeg liggi liðinn nár lifir andans kraptur; ef þú fellir tregatár til þín geng jeg aptur. Eftir liðinn Ijósan dag, er lauf af kvistum fjúka skal ég kveða Ijúflingslag og lokkana þina strjúka. Þegar síðast dagur dvín og deyja blómin gróin, geislum, stolta stjarnan mín, stafar þú á sjóinn! Geisli sá mun grafreit minn gylla dýr og fagur; flý jeg þá í faðminn þinn, fold er kveður dagur. Yertu sæl! — Mín sál er klökk, sýður í djúpi ylgja. — Mjer þín yndisiugun dökk eins og skugginn fylgja. * * * Blánar hlið, á sæ og sund sígur þögul móða, — einn í drauma yndis-lund uni’ eg hjá þjer, góða! Guðm. Guðmundsson. ') Ð. e. þúBUndfaldar þakkir. Langfrjálslindasta lífsábirgðarfélagið á Islandi er Umboðsmaður: Jens B. Waage, Landvarnarstefnan °g þingkosningar kaupstaðanna. i. Nú þegar kosningarnar í kaupstöðunum eru um garð gengnar, munu margir spyrja, hvert Landvarnarflokkurinn nú ætli sér að stefna, og sérstaklega hvernig bandalagi hans við Framsóknarmenn eigi framvegis að verða varið. Eins og kunnugt er, hefir meginþorri Eram- sóknarmanna gengið ásamt með Landvarnar- mönnnm að kosningafylgi við ifird. Jón Jensson og þingmannaefnin á Akureyri og ísafirði. En ástæðan til þess, að nokkrir af hinum fyr- nefnda flokki munu sjerstakl. hafa gefið Guðm. lækni Björnssyni atkvæði sitt, var ekki sú, að þeir væru ekki algerlega andvígir kenn- inguin og framkomu Heimastjórnarmanna við þessar kosningar, heldur sú, að G. B. lét uppi ýmsan lit við hina og þessa kjósendur, og reið það baggamuninn, að honum tókst í þetta sinn að vera beggja vinur. Hvort hann verður báðum trúr á eftir að sjást. Þegar stjórnarmenn (sem menn ættu að kalla svo; það er styttra og réttara en nafnið „Heima- stjórn“) eru sjerstakl. að hælast um sigur hér í Rvík yfir þingmannsefni sameinaðra Landvarn- ar- og Framsóknarkjósanda, þá gleymist þeim að geta þess, að hr. G. B. er bæði samkvæmt fortíð siuni, yfirlýsingum á kosningafundum og samkvæmt öllu því er ráða má af um skoðanir hans millimaður, að nokkru leyti óháður báðum þingflokkunum. En fyrir þá sök, að honum hefir með þessum hætti tekist að hindra kosningu á fulltrúa Landvarnar- manna hér i höfuðstaðnum, þá verður eins og þegar er sagt sjerstök ástæða til þess nú, að kveða upp úr um vilja og fyrirætlanir Land- varnarmanna til næstu kosninga. — Þegar Landvörn hófst og gerði þannig upp milli þáverandi þingflokka að Framsóknar- menn stæðu miklu nær til samvinnu og fylg- is í landsréttindamálinu, þá urðu stjórnar- mennirnir æíir af því, hve ranglega væri gerð- ur mannamunur og leituðust við að sýna fram á, að báðir flokkarnir væru jafnkomnir að ábyrgðinni fyrir samþykt stjórnarskrár- breytingarinnar. — Landv.menn sýndu nú strax fram á það þá, að stjórnarskrárfrv. það er Framsóknarmenn fluttu áður, var miklu aðgengilegra og hættuminna heldur en frv. það, sem stjórnarmönnum hefði tekist að gera að lögum. Lv.menn vildu heldur að þagað væri um ríkisráðssetu íslandsráðherra heldur en að hún væri með beinum orðum lög- leidd, og þeir sýndu einnig fram á það með ómótmæltum frásögum um afstöðu flokkanna innan þings, að Framsóknarmenn stóðu mjeg nærri þvi að taka til greina áskorun Rvík- urfundarins, þar sem Landv.stefnan stofn- aðist, og að einungis harðsnúin og vægðar- laus samtök stjórnarmannanna um það að berja frv. fram, hindruðu að lögfestingarákvæð- ið yrði numið burtu úr hinum nýiu stjórnar- skipunarlögum. Hugsandi menn í landinu hafa nú æfleiri og fleiri unnist með því, að það hafi verið rjett- látt strax í byrjun, er gjört var þannig upp á milli þingflokkanna; það sýnir og sannar vöxtur Landv.flokksins og útbreiðsla á kenn- ingum hans meðal landsmanna, frá Rvíkur- fundinum til þessa dags, og jafnframt stöð- uglega vaxandi óvild stjórnarklíkunnar gegn Landv. á eina hlið og betri samvinna við fjölda Framsóknarmanna á aðra hlið. Því hefði ekki verið byggt á rjettum grundvelli frá upphafi af hálfu Landv.manna i þessu atriði, þá hefði rás viðburðanna hlotið að verða alt önnur en nú er orðin. Eins og menn kunna að muna var það hið fyrsta endursvar, er stjórnarmennirnir greiddu stofnun laudvarnarflokksins og kröfu hans um afnám lögfestingarákvæðisins, að menn heíðu verið „fengnir til þess“ að kljúfa og veikja stjórnarliðið, og að þar hefðu Land- varnarmenn gjört sig að erindrekum vald- fíkinna Framsóknarmanna. Þetta brigsl og getsök stjórnarmannanna lifði nokkra stund í sorpgreinum helstu fyrir- liða þess flokks, en dofnaði æ meir og meir, og nú mun óhætt að fullyrða, að enginn ær- legur maður hjer á landi efast um að land- varnarmenn fylgja fram sannfæringu sinni einni, hvernig svo sem ýmsir utan þess flokks kunna að líta á málstað þeirra að öðru leyti. Og hafi nokkrir þeir fundist meðal lands- manna, er í vafa hafa verið til skamms tíma um það, hvort rjettlátt hafi verið í öndverðu að greina millum þiugflokkanna á þá leið sem áður var sagt, þá hefur afstaða þeirra til undirskriftarmálsins hlotið að taka af allan efa í því efni hjá öllum sannsýnum,hugsandi mönnum á íslandi. Stjórnarmenn róa að þvi öllum árum að gjöreyða einnig þýðing hins allra síðasta fyrirvara frá hálfu þingsins um skilning lögfestingarákvæðisins, frelsi ís- lands í vil. — Framsóknarmenn þar á móti halda því fast og eiudregið fram, að ekki beri að víkja i framkvæmd stjórnlaganna nýju frá þeim grundvelli, er síðasta þing vildi leggja í því máli með því að lýsa yfir hvað alþing — annar aðili löggjafarinnar — ætlaðist til að felast skyldi i ríkisráðsákvæð- inu. Með öðrum orðum: nú getur alþjóð á ís- landi sjeð án nokkurs skuggu afefa, hvernig þingflokkarnir fylkja sjer hvor öðrum and- vigur, hvor undir sínu raerki, Framsóknar- mennirnir allir með það stefnuákvæði í stjórnarmálinu, að halda uppi fyrirvara al- þingis ura lagalega sjerstöðu íslandsráðherra — og stjórnarmennirnir þar á móti undir fáua Nellemannskenninganna gömlu, um stjórn- skipulega nauðsyn algerðrar innlimunar á sjermálum íslands undir valdsvið og reglur

x

Ingólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.