Ingólfur

Tölublað

Ingólfur - 30.10.1904, Blaðsíða 2

Ingólfur - 30.10.1904, Blaðsíða 2
178 [30. okt. 1904.] mér sá ég að það var Sagax, vinur minn. Hann tók ekki eftir mér, og ætlaði að renna fram hjá mér. — En ég staldraði við, gekk í veg firir hann og leit upp í andlit honum. Hann var fölur, hárið hékk vott niður um andlitið á honum, augun störðu á mig stór og döpur. Hvað gengur að þér, vinur minn ? sagði ég. First horfði hann á mig þegjandi, svo brosti hann svo hriggðarlega og sagði: Eg þrífst ekki hérna. Svo ætlaði hann að fara frá mér, en ég tók um handlegg honum og spurði: „Hversvegna?" Hann svaraði mér ekki strax, en leit út ifir í tjörnina og inn til bæjarins. — „Finnst þér ekki þetta veður varpa sér- stökum blæá heiminn i kringum okkur? Eg hef nautn afað finna storminn ólm- ast um mig, anda að mér loftstraumum, sem eru komnir langar leiðir að, sem bera með sér nítt líf og þeita rætninni og heimskunni burt með sér. En þeir eru því miður ekki nógu sterkir. — Og mundu svo á hinn bóginn eftir því hvernig landið og bærinn er útlits, þegar allt er kirt og sól og túngl varpa ljósskrúði sínu til skiptis á alla hluti. Mér finnst ég einhvern tíma hafa heirt sögu um að landvættirnar hað engan stað getað fundið betri né fegurri til þess að vera miðstöð fagurs þjóðernis, góðr- ar þjóðar. — Þegar ég kom hingað og sá dírðina í kringum mig, varð ég glað- ur og vonir mínar risu hver af annari. — En svo hitti ég mennina og kinnt- ist þeim. Ég leitaði og leitaði. Að lok- um stóð ég einn úti á viðavangi og kall- aði út í geiminn: „Hvernig gat guð fegurðarinnar og gæðanna gefið svona vondum mönnum svona mikla fegurð; hversvegna bræddi hann ekki hraun og steifti hann ekki klungur i kringum þá, svo há og víð að enginn sæi ifir þau? Hversvegna lét hann þá ekki deija eða hversvegna rak hann þá ekki burt þessa menn, sem heimskan hafði blindað, og svift öllum skilningarvitum — nema þeim að finna bragðið að matnum, sem þeir úða í sig". — - En ég er einn, og þeir eru margir, þessvegna á ég mér nú engan griðastað“. Svo hló hann. Hann sleit sig af mér og gekk inn í bæinn. Ljóskerin gláftu svo drungalega og skiln- ingslaus á hann og mig. Svo mættum við ímsu fólki, sem við þekktum. Það var þennan dag alveg eins bæði í orð- um og gjörðum, eins og það hafði ver- ið daginn áður og daginn þar á undan. Yinur minn hló þegar við gengum fram hjá því. Rétt á eftir kvaddi hann mig. Ég fór heim til þess að lifa áfram með sambæjar mönnum mínum. — En öld- urnar tóku hann. Og nú minnast menn- imir aðeius hvernig hann hló að þeim, en það skildu þeir ekki. Tenax. I N G|0'LT"U R. Höfuðborgin. Hinn 21. oktober héldu skólapiltar Bjarna Jónssini frá Yogi skilnaðarveislu. Yoru þar töluð mörg hlí orð í hans garð, en til minjj, gáfu þeir honum staf for- kunnarfagran og gulli búinn, er Stefán Eiríksson hafði skorið af hagleik mikl- um. Veislan fór fram hið besta. Þetta kvæði var sungið ifir fulli hans: Þú kenndir oss að hugsa, rita’ og ræða svo rétt um það, er oss á hjarta lá; og b9st þú kunnir andans glóð að glæða og göfga vorra sálna dífstu þrá. Þú kenndir oss að virða vel hið rétta og varpa öllum hleipidómum brott; en ekki síst þó oss þú kenndir þetta: að elska það sem fagurt er og gott. Þú reindist æ sem bróðir oss að baki, er best það sást, hver hollur var i raun. Af vorri sök þú verður firir blaki, þvi vanþakklæti, það eru heimsins laun. Yér látum ósagt hverjum sárast sviði að sækja þenna vina kveðjufund; en bæri’ ei gremjan grátinn ofurliði vér grétum þig á sárri skilnaðsstund. En — hví þá skilja—bindumst handabandi og berjumst allir saman firir því, er best vér higgjum gagna líð og landi uns ljósið frelsis bríst í gegnum skí. Og er vér þökkum þessar liðnu stundir vér þráum níar stundir með þér enn; og sínt skal það, þótt fækki vorir fundir, þá fækka hvergi þínir vildarmenn. A. B. Leikfélag Reikjavíkur lék tvo gam- anleika siðastl. sunnudag og var húsfill- ir. Félaginu hafa bætst tveir níir menn, stúdentarnir Bogi Benediktsson og Jón Kristjánsson frá Víðidalstungu. — Ing- ólfur flitur ítarlegar fregnir af gerðum félagsins síðar. — Ritstjóraskifti hafa nilega orðið við Fjallkonuna. Er hr. Einar Hjörleifsson tekinn við af sr. Ólafi Óiafssini, en eigi eignast hann blaðið fir en um áramótin. Triggvi konuugur kom frá Yestfjörð- um 28. þ. m. Meðal farþega var Jón B. Jónsson stúdent frá ísafirði. Kveðju-samsæti héldu landvarnarmenn Einari Benidiktssini síslumanni að kveldi 27. þ. m. í húsi iðnaðarmanna. Jón Jensson ifirdómari mælti firir minni heiðursgestsins og var á eftir sungið kvæði til hans eftir Lárus Sigurjónsson. Ennfr. fluttu þeir tölur heiðursgesturinn Sig. Eggertz, Bjarni Jónsson frá Vogi, Ind- riði Einarsson, Pétur Jónsson og fleiri. - Veisluna sátu fimm tigir manna og var hún hin skemtilegasta og fór vel fram. Samsætinu var slitið um miðnætti. igúst Bjarnason heimspekingur flitur firirlestur um Zaraþústra á mánudag 31. þ. m. (ekJcik þriðjudaginn eins og áður varð ákveðið). Biijar kl. 81/, síðd. isgrímur Jónssou málari er nú kom- inn hingað til bæarins. Hefur hann farið víða í sumar og gert fjölda af fallegum mindum. Eru þær til sínis þessa daga í gamla Melsteðshúsinu við Lækjartorg. Koma þangað væntanlega margir til að sjá og kaupa. Jón Ólafsson vinur vor er þungt haldinn af timburmönnum síðan hann sleit vináttu við Benedikt Þórarinsson. Hann vandist þar á þetta ágæta brenni- vín, sem Benedikt verslar með. En síð- an hefur hann ekki fengið annað en þrælaromm. þaðan stafa timburmenn- irnir. En honum hefur nílega hugsast það snjallræði að kalla þá landvarnar- menn. Þetta þurfa menn að vita. Ella mundu þeir hugsa að máígagn sannsögl- innar væri að fara með ligasögur um oss, þegar það flitur harmagrát ritstjóra síns ifir hans eigin timburmönnum. En vonandi er að hærukollur hans verði laus við timburmennina, núna eftir mánaðarmótin. Þvi þá á hann að verða deildarstjóri í kjaliaradeildinni hjá Thom- sen. Mun hann þá eiga völ á betri drikk en þrælarommi. Því að sá er britinn verstur, er sjálfan sig tælir, og það veit Jón Ólafsson. Landvarnarmaður. Fyrir fáum dögum var maður inni í forstofunni á Alþingishúsinu að skoða útilegumanninn. Heirði hann þá til Hannesar Hafsteins inni í skrásetningar- klefa Jóns ólafssonar. Hafði hann leitað þar sannsöglis-véfréttar um ifirlísinga- undrin. En er hann hafði fengið hag- stætt svar, þá varð hann svo glaður að hann sagði við Jón: „Nú skal ég gefa þér 10 aura, ef þú getur sagt eitthvað svo findið að hver maður hlæi að því“. „Ilt er að verða af aurunum“, sagði Jón og hallaði undir flatt og þagði drikk- langa stund. „Ég held það sé gott“, sagði hann svo. „Eg ætla að skíra blaðið okkar málgagn sannsögl- innar“. Þá hló Hannes svo mikið, að hann náði ekki andanum í 5 mínútur. En hann gaf Jóni 20aura firir findnina og sagði: „Mikið guil ertu, Jón minn. Að þessu hlæa allir“. Hálgagn sannsöglinnar flutti geisi- mikil meðmæli með Jóni Ólafssini, Dit- lev Thomsen og Kína-lífselixír á laugar- daginn var. En langmest sannsögli var í þvi sem sagt var um elixírinn. Ekki er Jón Ólafsson enn hættur að taka fram hjá — sannsöglinni. Síðasta pútan, sem komist hefir upp á milli þeirra, heitir „Reikjavík" og hefir „stóri kaupmaðurinn“ útvegað honum hana, en Triggvi riddari á ítak i henni og borg- ar 1200 kr. firir afnotin. Pétur Pálsson skrautritari (sjá augl.) gerir mjög snotur minnisblöð um Jón Sigurðsson: mind í miðju, nafnið skraut- ritað firir ofan, og neðan visa um Jón eftir Stgr. Thorsteinason. — Er siíkt blað snotur vinagjöf.

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.