Ingólfur - 06.05.1906, Blaðsíða 3
6; mai l'JOii
INGÓLFUÉ.
8t
Faríavörur
mjög yandaðar selur
uoEi iiisfjáisi
T. <3L. Ul^UvitUí zíinlilivitu,
OlS.iX/Lir margskonar, 1Ö35.15L, femÍS,
terpentínu, pensla o fl
Beztu málarar bæjarins
mæla mjög með þessum farfavörum.
mmf
iitr„
ikósmiðaYerkstæði
nema gjörræðið. E»að er einkenni allrar
harðstjórnar.
Prófessor segir að nafnið „edda“ sé
rangt, eigi ekki við þetta safn. Það hygg
eg einginn viti með vissu. Það sannar
ekkert, þótt Snorri nefni það ekki, hann
þekti nöfnin á kviðunum. Þá get eg
með meira rétti sagt: að titillinn á „Bók-
mentasögu íslendinga" sé rangur, því
þegar prófessorinn frádæmir íslendingum
allai Eddukviðurnar, nema eitthvert lítið
og lélegt rusl, sem hann metur einskis, þá
á þetta ekki að standa í bókmenntasögu
vorri, það er þá eign Norðmanna og Græn-
lendinga (sem prófessor heíir fundið að
komu ekki til íslands á ferðum sínum,
þó það lægi beint við). Líklega er það
heldur ekki þýðingarlaust, að danskir „ís-
lendingar“ ekki vilja nefna „tsland“, —
„íslendingasaga,“ en ekki saga íslands
(allt annað er þótt einn hluti Sturlungu
fengi það nafn), og nú „Bókmenntasaga
íslendinga" — svo kemur líklega ein-
hverntíma „Bókmenntasaga Grænlend-
inga“, „Bókmenntasaga Færeyinga“.
(Niðurl.)
Landslíj ál fta-mælingar.
Síðan eldgosið mikla varð á Martinicey
í Vestindíum fyrir fjórum árum hefir óvenju-
mikið borið á eldsumbrotum, Iandskjálftum
og gosum á ýmsum stöðum hnattarins,.
þótt þeirra haíi lítt orðið vart hér á ís-
landi.
Einna mest hefir gengið á í vetur. Á
Suður-Ítalíu komu afarmiklir landskjálftar
áður en gosið mikla hófst úr Vesuvíus.
Á eynni Formósa, sem liggnr suðaustur
af Kína og Japanar eiga, kom ákafur
landskjálfti 17. marz og aftur rúmum
mánuði seinna og ollu þeir mörgum þúsund-
ummanna meiðslum og bana. — Landskjálf-
inn í San-Francisco var alls ekki svo
mikill sjálfur, sem margir ætla. Hans
gætir mest sökum þess að hanu varð á
þéttbygðu svæði, en það var eldurinn,
sem langmestan usla gerði þar. Ef slík-
ur skjálfti hefði orðið í strjálbygðu landi,
þá hefði hann alls ekki verið í hálfkvisti
við þá jarðskjálfta, sem menn vita mörg
dæmi til annars staðar. Oft koma t. d.
geysi-jarðskjálftar á mararbotni, sem menn
geta litla hugmynd gert sér um, „því að
ekki skrifa fiskarnir frásagnir um það 1
blöðin“, eins og merkur jarðfræðingur
enskur komst að orði nýlega.
Það þykir mjög líklegt, að umbrot
þessi standi í einhverju sambandi hvert
við annað. Er það og kunnugt, að land-
skjálfar eru miklu tíðari á sumum slóð-
um on öðrum. Svo var í San Francisco,
að þar hafði þeirra oft orðið vart og
stundum valdið skemdum, einkum haust-
ið 1868, en þó ekki likt því sem nú.
Aftur eru þess að vísu ýms dæmi að
ógurlegir landskjálftar dynja yfir þar sem
engar sögnr hafa farið af þeim áður. Má
þar til nefna landskjálftann í Lissabon 1755,
þegar 50 þús. manna týndust á fám and-
artogum.
Vísindunum hefir ekki tekist enn að
rekja samband þessara hreyfinga eða skýra
orsakir þeirra tll hlítar. Þó hafa ýmsar
merkilegar athuganir verið gerðar. Mest-
ur fræðimaður í þeim efnum er John
Milne, Englendingur. Hann hefir fundið upp
með hugviti miklu nákvæm verkfæri, sem
mæla sjálf og skrásetja sérhvern smáhrist-
ing sem í námunda verður og jafnvel í
fjarlægum löndum, ef kippirnir eru harð-
ir. Milne varð t. d. var við hristing í
tilraunastöð sinni á eynni Wight við
England í sama mund sem landskjálftinn
kom í San-Francisco um daginn.
Mælingastöðvar með áhöldum Milne’s
hafa nú verið settar á stofn í nærfelt öll-
um löndum hins siðaða heims. 1 Japans
ríki einu eru upp undir 1000 tilrauna-
stöðvar með nákvæmum áhöldum. Al-
þjóðlegt félag gengt nú fyrir sannsókn-
unum víðsvegar um heim. Höfuðsetur
þess er í Strassborg á Þýzkalandi og eru
allar athuganir frá stöðvunum sendar
þangað.
Danmörk (og þau lönd er til Dana-
veldis teljast) er eina ríkið í veröldinni,
sem engri rannsóknarstöð hefir komið á
fót. Nú er þó loks svo komið, að í sum-
ar verður sett á stofn stöð á Grænlandi,
þótt Danir eigi þar lítinn hlut að. Al-
þjóðafélagið hefir boðið að lána öll áhöld
ókeypis, ef Danir komi þeim fyrir, annist
gæzlu stöðvarinnar og sendi athuganir
sínar til félagsins. „Karlsbergs-sjóðurinn“
ætlar að hlaupa undir bagga að koma
upp áhöldunum á eynni Diskos og verður
þeirra gætt að starfsmönnum veðurfræði-
stöðvarinnar þar.
Það væri mjög æskilegt að sett yrði á
stofn mælingarstöð hér á eldafjallalandinu
og ætti ekki að dragast lengi. Er mjög
sennilegt að það gcti greitt fyrir vísind-
unum að kynnast sambandinu milli elds-
umbrota og landskjálfta hér . og annars
staðar í heiminum og gæti kannske kom-
ið að beinu gagni síðar. Dáðleysi Dana
ætti ekki að hamla íslendingum frá að
koma þessu til framkvæmda. Kostnaður-
inn er ekki mikiil við eina mælingastöð,
en stofnun hennar yrði landinu til gagns
og sóma.
Jóns J ónasson-
er var í Skólastræti 5
©r flutt á
Laugaveg 22.
Slys. Barn var nýlega að leika sér
kringum hafísjaka í fjörunni í Bolungar-
vík. Jakinn klofnaði og barnið varð
undir, meiddist mjög mikið og dó litlu
síðar. Barnið átti Elías formaður Magn-
ússon. („Yestri.“)
Skipströnd. í ofsaveðrinu laugard.
28. f. m. strandaði stórt kaupfar við
Stokkseyri. Yar nýkomið til lands með
fullfermi varnings. Festar skipsins slitn-
uðu og rak það á sker. Nokkuru af
vörunum var bjargað.
Annað skip strandaði við Búðir firntu-
dagskveldið 26. þ. m. Það hét „Agnes“
(rúmar 30 smálestir). Yar nýfarið héðan
frá Tomsens-magasíni hlaðið vörum vest-
ur þangað. Yarningur týndist allur en
menn komust af. Hvorttveggja var óvá-
tryggt, skip og farmur.
Fólksfjöldi á Færeyjuin er orðinn
16334. 1801 var fólkstalan þar 5265 en
1890: 12955.
Á íslandi var fólkstalan 1801: 47240,
1890: 70927 og 1901: 78470. Tiltölu-
lega fjöigar þá Færeyingum töluvert ör-
ara en oss.
Loftritun. Firðritarar á Coney Island
við New York hafa skýrt frá því, að nótt-
ina milli 27. og 28. marzmánaðar í vetur
hafi þeir sent loftskeyti sem var 572 orð,
yfir til írlands, og daginu eftir hefði þeim
verið símritað, að öll orðinhefði nákvæm-
lega komist til skila. Vegalengdin sem
þessi loftskeyti bárust eru um 3200 ensk-
ar mílur. Bendir það bæði á framför hjá
firðriturum og eigi síður á mikla framtíð
loftskeyta-aðferðarinnar, þegar svona mörg
orð, er öll eru sendí einu, komustóhagg-
að yflr Atlanzhafið. (Eftir nLögbergi“.)