Ingólfur

Issue

Ingólfur - 13.08.1906, Page 3

Ingólfur - 13.08.1906, Page 3
13. ágúgt 1906.] INGOLFUR 137 Minni sjómanna. Ágrip af ræðu Júlíusar J'drgensens ú þjóðhátíð Reykvíkinga 2. ágúst þ. á. Háttvirtu áheyreDdur! Eg vil ekki láta þennan dag líða svo, að ekki só að einhverju minst íslenzkra sjómanna, þeirrar stéttar, er þjóðinni er einna mestur hagur á, að hafinn sé til vegs og framfara. í dag er liðið ár síðan eg minntist þesar- ar stéttar hór á sama stað og beindi eg þ|i máli mínu einkum að bjargráðum*) og var því að engu sint. Nú er þó, því miður, fram- komið, að sú hugvekja var á réttum rökum bygð. „Sjón er sögu ríka.ri.“ Eg þarf ekki að minoa Reykvikinga á þá miklu sorgarsjón, sem bar fyrir augu allra vor á þessu ári, þegar menn sáu félaga sína og vini hníga i heljar greipar rétt fyrir augunum á sór, og gátu ekkert að hafst, af því að engin björg- unaráhöld voru til. Þarf nú meiri skaða og manntjón en þegar er orðið til þess að vekja menn til viður- kenningar á því, að hér þurfi að hefjast handa til þess að hrinda þessu máli til framkvæmda? Það er enginn vafi á þvi, að sjórinn kring- um ísland er »vo mikil auðsuppspretta, að vér sjálfir verðum að nota hann og hann er helzta gullnáma vor. — En þessi gullnáma er torsótt og hættuleg og verðwm vér að kosta alls kapps um að gera hana sem auð- unnasta og hættuminsta. Aðrar þjóðir leggja fram stórfé til allskonar bjargráða. Hví getum vér þá ekki einnig kostað nokkru til þess að tryggja lif þeirra manna, sem reka þessa atvinnu, vér, sem stöndum þó öðrum þjóðum betur að vígi að ýmsu leyti, til þess að nota auðæfí fiskimið- anna. Ef framtíð þessarar stéttar á að vera á föstum fótum, þá þarf meðal annars að byggja nýja vita og afla nýrra björgunaráhalda, eins og eg hefi áður vakið máls á. Vér getum á fegurstan og þarílegastan hátt minst þeirra góðra drengja, sem fósturjörðin hefir mist á þessu ári í sjóinn, með því að bindast nú samtökum um það að koma upp góðum björgnnaráhöldum, ekki einungis hér i Reykjavík, heldur og annarstaðar, þar sem nauðsyn krefur og menn ætla að þau geti helzt að gagni komið. — Vona eg, að á næstu þjóðhátíð verði þess getið, að á þessu ári, sem nú fer í hönd, hafi bjargráðum sjó- mannastéttarinnar verið hrundið verulega á- leiðis. — Sjómannastóttin lifi! Ceres strandar í Færeyjum. Ceres lagði frá Þórshöfn í Færeyjum 3. þ. m. í blíða logni en þokuveðri; en eftir litla stund rakst hún á land og vissu skip- verjar ekki, hvar þeir vóru. Var þeyttur lúður og svarað af öðru skipi, en það kom ekki til hjálpar, heldur hélt leið sína. Kölluðu þá skipverjar í gríð og ergi þang- að til Færeyingar komu á fjórum bátum til skipsins. Það kom þá úr kaflnu, að skipið hafði rekist á Nálarey (Nolsoy), sem *) Sú ræða var birt í Ægi í fyrra. er skamt frá mynni Þórshafnar-vogsins. Skipið losnaði eftir nokkra stuud og hélt inn á Þórshöfn; hafði brotnað gat á kinn- ung skipsins og var það ekki ferðafært lengra. Gad skipstjóri réð sjálfur förinni þegar skipið rakst á. Fór það þá nálega með fullum hraða, því að hann hugði komið út á rúmsjó. Færeyjar vóru nýkomnar í símasamband við Hjaltland og var send frétt um slysið til Khafnar. Var „Laura“ send þaðan til þess að taka að sér ferðina — og kom hún hingað með póst og farþegja á föstn- dagskveldið. Farþegjar á Lauru vóru allmargir hingað. Þar á meðal kand. Árni Pálsson og kona hans Kristín Benediktsdóttir, sr. Jón Helgason, ekkjufrú Álfheiður Briem, Gísli Jónsson (Ólafssonar), Magnús Thor- berg, Bartels úrsmiður, kand. Matthías Þórðarson og kona hans. — Á laugardags- kveldið fór Laura aftur héðan á leið um- hverfls land rangsælis. Héðan fóru kringum land Einar Gunnarsson og Magnús Ólafs- son, en til Seyðisfjarðar Lárus skáld Sig- urjónsson. Ofhermt var mjög í síðasta blaði um undirtektir Dana á málaleitan þingmanna, eins og sést af grein þeirri, sem hér stend- ur framar í blaðinu. Forngripamálið og margt fleira verður enn að bíða sakir rúmleysis. Höfuðborgin, Trúlofuð eru ungfrú Ásta Thorsteins- son frá Bíldudal og Jón Hermannsson sbrifstofustjóri. Hleypt á grunn. „Ánsgarius“, vöru- skip til „Edinborgar", fór frá Leith að kveldi 2. þ. m.; lenti í þobu við Færeyjar, ætlaði að stefna til Dyrhólma en kom upp aðjjSkeiðarársandi og festist þar á grynsium fram undan Thomsens- skála. Þar þrokaði skipið 8 klukku- stundir; vörpuðu skipverjar útbyrðis nokkru af járni og kolum og komust út um síðir. Veður var gott meðan sbipið stóð, en stórvíðri brast á þegar er skip- ið var laust og mátti því ekki tæpara standa. - Skipið bom hingað á mið.viku- dagsnóttina. Talið óskemt. „Helgi konungur“ bom hingað fyrra laugard. Kom að honum leki í hafi og kleypti til Eskifjarðar til viðgerðar. Hafði nagli losnað í botni skipsins og olli það lekanum. Páll Þorkelsson, bróðir dr Jóns skjala- varðar, hefir nýlega fluzt hingað búferl- um. Hann hefir dvalið um 17 ár erlend- is og eigi alls fyrir löngu hefir hann fundið ráð til þess aJ lita ýmsa málma með allskonar litum. Hefir hana sett verzlun á Laugavegi 2 og selur þar I silfnrgripi allavega lita. Má þar sjá ís- Senzk fjöll, fossa og bæi á silfurskjöld- um, marglít norðarljós, sólsetur, tungl- skin og fl. þess háttar. „Ingólfnr" sendi nýlega mann til við- tals við Pdl; sagði hann honum allt af lótta um nppfundning sína og verður skýrt frá þvi í næsta blaði. Vesta kom norðan um land í gær- kveldi með fjölda farþegja. Var margt útíendra ferðamanna. Meðal íslenzkra farþegja vóru: Helgi Valtýsson kennari frá Seyðisfirði, f'rú Unnur Banediktsdótt- ir, frú Valgerður Pétursdóttir og ungfrú Maren Pétursdóttir frá Húsavík, frá Ak- ureyri Jón Þórarins?on skólastjóri o. fl. Á sjó og landi. Sóttvarnarhús í Seyðlsfirði. Land- stjórnin hefir keypt „ Járnhúsið" á Fjarð- aröldu, sem Garðarsfólaðið Iét smíða, og er verið að breyta því í sóttvarnarhús; kaupverð 3500 kr. Talsímasamband Seyðfirðinga. Gizkað er á, að talsíma-samband milli 25 húsa 4 Fjarðaröldu og Búðareyri kosti 6800 kr. Fundur var nýlega haldinn í kaup- staðnum um þetta og var stofnað fólag til þess að koma fyrirtækinu til fram- kvæmda. Argjald hvers hluttakanda áætlað 36 krónur. Búist við að sam- bandið komist á um miðjan októbermán- uð. Skipstrðnd. Síldveiðaskip norskt, „Hirald“, strandaði við Rifstanga á Sléttu eftir miðan júlí. Var á leið til Siglufjarðar frá Noregi, hlaðið tunnum og salti. Nýlega strandaði vöruskip Ólafs kaupm. Árnasonar á Stobkseyri við Landeyja- sand, fermt bolum og steinolíu. Þýzkt vöruskip strandaði í Griuda- vík 27. f. m. á leið héðan. Treir Norðmenn hafa fundið upp vól til þess að kverka síld. Þarf þrjá drengi til þesí að tína síld í vélina og kverkar hún um 80 síldir á mínutu hverri, eða nær 150 tnnnur hafsíldar á 10 klukku- stundum. Ný fiskimið þykist vélarskúta norsk hafá fundið norðvestur af Horni miðja vega milli íslands og Grænlands. ' Afl- aði þar á mánað&rtíma á anaað hundrað skippunda af fiski. Norskir konsúlar eru þeir skipaðir hér álandi: Björn Guðmundsson kaupm í íteykjavík (höfuðkonsúll), Pétur Á Ólafson kaupm. á Vatneyri, Friðrik Krist- jánsson bankastjóri á Akureyri og Stef- án Th. Jónsson í Seyðisfirði vísibon- súlar.

x

Ingólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.