Ingólfur - 17.03.1907, Qupperneq 2
42
INGÓLFUR
50 kenslutíma í ensku
veitir Mr. Bogers fyrir lægra verð en fyrr.
Sérstakir kostir ef þrír eða fleiri eru saman. Þeir sem taka vilja
þessum boðum gefi sig fram fyrir 24. marz.
Fyrsti tími til reynslu ókeypis í Hótel ísland
gætum manni. En alþíða manna ætti
að hafa gát á slíku, því að þau tíðk-
ast nú hin breiðu spjótin, að traðka á
sínu eigin þjóðerni.
Hin stefnan er sú, sem iðnaðmenn
hafa. JÞeir eiga almannalof skilið firir
þá þjóðrækni, sem þeir sína með því,
að koma upp líkneski Ingólfs landnáms-
manns og firir höfðingsskap, rausn og
dugnað í framkvæmdinni. Og þakkir
eiga þeir sldldar firir það, er þeir
bj Upa Einari Jónssini á þann hátt, sem
honum má einn að haldi koma, með
því að gefa honum færi á að vinna í
þjónustu þeirrar li*tar, sem hann hefir
helgað líf sitt, löngun og vonir.
Eg efast ekki um að áheirendnr
mínir óski eins og ég að þessi stefnan
sigri.
Bjarni Jónsson frá Vogi.
Krafa um þiugrof.
Þar sem oss kjósendum í Staðarsveit
í Snæfellsnessýslu er af dagblöðum
landsins orðið fyllilega Ijóst, að mikill
hluti alþingismanna þeirra, er eftir
gíðustu kosningum eiga enn sæti á þingi
eru fráhverfir því að halda fram hin-
nm forna og nýja vilja þjóðarinnar í
landsréttindamáli íslands, og í annan
stað af þeirri ástæðu, að við síðustu
kosningar vóru eigi væntanlegir samn-
ingar þeir, er nú standa til milli þjóð-
anna Dana og íslendinga, þá leyfum
vér oss virðingarfylst að skora á yður,
hæstvirti ráðherra íslands, að þér hlut-
ist til um að þing verði rofið og nýjar
kosningar látnar fara fiam fyrir þing.
í sambandi við framanritaða áskor-
un leyfum vér oss ótvirætt og ein-
arðlega að láta í ijós þana vilja vorn,
að hið kæra fósturland vort, ísland,
verði frjálst sambandsland við Dan-
mörku og með s.imbandslögum er ís-
land taki óháðan þátt i, kveðið á um
það, hver málefni eftir ástæðum lands
vors hljóta að vera sameigi leg mál
þess og Danmerkur. í öllum öðrum
málum viljum vér að íslendingar verði
með konungi sínum einráðir um löggjöf
og landsstjórn og byggjum vér þessa
kröfu vora á hinum sögulega rétti
þjóðarinnar. Að mál íslands verðibor-
in upp í rikisráði Dana erum vér því
með öllu mótfallriir með því að slíkt
er ósamrýmanlegt við sjálfstæðiskröfur
vorar.
Þar sem vér búumst við, að áskor-
anir í þessa átt berist til yðar, hátt-
virti ráðherra, úr fleiri héruðum lands-
ins, leyfum vér oss að síðustu að skora
á yður, að gera þegar heyrinkunnugt
fyrir landsmönnum, hvort þér viljið
verða við áskorunum þessum.
Görðum 2. febr. 1908.
Jón G. Sigurðsson, Vilh. Briem,
Sœmundur Sigurðsson, Þorgils Guðmundss.,
Sveinn Magnússon, Ingvar Pétursson,
Jóliannes Ó. Gíslason, Guðmundur Jónss.,
Jón Sigurðsson, Björn Jónsson,
Kristján Pálsson, Ilafliði Þórsteinsson,
Niels Ólafsson, Magnús Magnússon,
Sigurður Þorleifsson, Guðl. Jónsson,
Eyólfur Sncebjarnarson, Eirikur Sigurðsson,
Jón Magnússon, Páll Pétursson,
Guðmwndur Jónsson, Björn Andrésson,
Bjarni Nikidásson, Ilálldór Jónsson,
Vigfús Vigfússon, Guðmundur Magnússon,
Pétur Daníelsson, Bjarni Jónsson.
SU lád-hetza . eLfancL.
Fylgi íslenzka fánans.
Sex fundir norðanlands
samþykkja tillögu Stúdenta-
fólagsins.
Fundir Ilólasveina og bænda í
Hólahreppi:
„Hið íslenzka stúdentafélag“ sendi
hingað til búnaðarskólans á Hólum
pren:að bréfum „fánamálið" samhljóða
ávarpi því, er stjórn félagsins birti í
síðastliðnnm nóvembermánuði.
í tilefni af því viljum vér skýra
hinni háttvirtu stjórn félagsins frá því,
að nemendur skólans tóku mál þetta
til athugunar á málfundi einnm í f. m.
Veitti fundurinn málinu einliuga fylgi;
og þá er um það var að ræða, hvert ai
þeim fánasýnishornum, sem fram hafa
kornið, skyldi velja, þá var fáni „Stú-
dentafélagsins samþyktur í einu hljódi.
Jafnframt skal þess getið, að málið
var borið upp til athugunar og rœlt á
fundi, sem bœndur í Hólahreppi ltéldu
liér 25. f. m.
Þar voru eftirfylgjandi tillögur sam
þyktar með nær öllum atkvæðum:
1. „Fundurinn er eindrcgið meðþví,
að vér Islendingar eigum að
fylgja því fast fram að fá sér-
stakan fána löggiltan og taka
hann þegar upp til notkunar
lieima fyrir, þó að löggjldingin
sé ekki fenginJ
2. „I öðru lagi vill fundurinn mcela
med þvi, að það verði fáni Stú-
dentafélagsins í Reykjavík, sem
allir landsmenn fylki sér um“.
Hólum í Hjaltadal 18. febr. 1907.
í umboði fundanna.
Jósep J. Björnsson. Sig. Sigurðsson.
Sig Þórðarson.
„Fundafélag Árskógsstrandar“
hefir samþykt svohljóðandi yfirlýsingu
á fandi 19. f. m.:
„Fundurinn lýsir yfir eindregnu
fylgi sínu við það að ísland
fái sérstsakan fána og aðhyllist
fyrir sitt leyti fánahugmynd Stú-
dentafélagsins í Eeykjavík.
Ennfremur lcetur fundurinn í
Ijós óánœgju sina yfir þvi að Vng-
mennafélag Akureyrar skyldi verða
til þess með afskiftum sínum af
þessu máli að vekja sundrungu,
sem að líkindum verður til að
tefja fyrir málinu.“
Á tvciin öðrum funduin
i Arnarneshreppi hefir Stúdentafán-
inn verið samþyktur með meiri
hlida atkvœða.
Á Málfundafélagsfundi Svínavatns-
lirepps í Húnaþingi
20. jan. var samþykt svohljóðandi
yfi lýsirg:
Málfundurinn er algerlega sam-
þykkur yfirlýsing borgarafundar á
ísafirði ‘25/j2 ''06', þeirri er sam-
þykkja fána Stúdentafélags Rvik-
ur, svo framarlega sem hann reyn-
ist ekki að vera þjóðfáni annara
þjóða, og treystir þvi að þau fáu
félög, sem hafa lýst sig lionum ó-
samþykk, veki ekki sundrung, en
samþykki sem fyrst Stúdentafán-
ann.
í umboði Málfundafél. Svínavatnshr.
febr. 2. 1907.
IArus Stefánsson, Hilmar Stefánss.,
p. t. fundarstjóri. p. t. skrifari.
llerkostnaðar-grýlaii.
Suuiir mótstöðumenn sjálfstæðis vors
halda því fram, að vér íslendingar
þurfum að hafa her ef vér hugsum til
að verða sjálfstæðir. Eg spyr þá: Hvað
höfum vér við her að gjöra, frekar fyr-
ir það þótt vér verðum sjálfstæðir?
Vofir nokkur ný hætta yfir oss þá?
Eða trúir nokkur heilvita maður því að
það sé sá danski verndarvængur, er
bægt hefir ofbeldi herskárra stórvelda
frá voru landi til þessa?
Svo mikið er víst, að eigi halda Danir
það sjálfir. Eg hefi talað við marga
Dani og spnrt þá, hvort þeir mundu
verja ísland ef á það yrði ráðist. Sum-
ir hafa rekið upp stóran hlátur og sagt
að þeir yrðu nú fyrst að hafa afl til
að verja sjálfa sig. Aðrir hafa gpurt,
hvort vér gætum ætlast til þess að þeir
færu að neyta síns ýtrasta afls til þess
að verja land í 300 mílna fjarska, sem
þar að auk vildi meina sér öll hlunn-
indi. — En aldrei hef eg heyrt þess
getið að einum einasta hafi dottið í hug
að gjörlegt væri að kasta út miljónum
fjár og mannlífum til þess að verja
jafn lítilsverðau landskika, sem ís-
land nú er orðið fyrir hina dönsku rik-
isheild. Nei, — Dmir vilja aðeins
halda íslandi mcðan þeir geta það sér
að kostnaðarlitlu, en fúsastir mundu
þeir til að afsala sér réttinum til
þess í hendur öðrum ef til kæmi. Því
að ísland er hvorki bein af þeirrabein-
um né hold af þeirra boldi. En látum
það nú vera þá þjóðréttarlegu viður-
kenningu á danska ríkinu, sem bægt
liefir stórveldunv.m frá þvi að ásælast
ísland, þá er það nú ekki annað en
það, scm vér getum hæglega útvegað
íslandi þegar vér höfum losað það und-
an völdum Dana. Ef oss tekst að
koma fram í vorri sjálfstæðisbaráttu
sem menningarheild en eigi uppreisn-
ar flokkur, þá eignm vér siðferðisleg-
an rétt á viðurkenningu. hvar sein
er og enginn mun brjóta upp á þeirri
fásinnu að krefjast þess af oss að vér
höldurn úti her til þess að tryggja
vort „hlutleysi“ á hernaðartímum. Detti
nokkrum það í hug, þá höfum vér æ-
tíð nóg gögn til að sýna fram á að
slik krafa sé sprottin af skammsýni.
Vér munum halda því fast fram, að
heimurinn hefir ástæðu til að gleðjast í
hvert skifti sem eiuhver heild rís upp,
sem setur traust sitt til menningar og
mannúðar réttarins, en eigi til vopna-
fargansins, sem nú þjakar framförum
hins mentaða heims. — Hvert fyrir-
komulag smáríkin, San Marinó og hin
önnur hafa hjá sér, kemur oss á norð-
urhjara heíms ekki við, vér getum fátt
af þeim lært. Eitt er víst, að vér þurf-
um að hafa góða lögreglu til varnar
mót öllum ránsskap bæði á sjó og landi.
En þess þurfum vér jafnt hvort vér er-
um sjálfstæðir eða ekki. Af Dönum
getum vér engan veginn haldið áfram að
þiggja gæzlu vorra eigin laga.
H.
Hrossakjötsát erlendis.
Spanskt tímarit hefir nýlega flutt rit-
gerð um hrossakjötsát í Norðurálfu og
hvetur landa sína til þess. Þar í landi
hafa allir ramman viðbjóð á hrossakjöts-
áti og stafar það upphaflega af banninu
i Móses lögum. Er þessi trúarfirra orðin
svo langæ og rótgróin í meðvitund manna
að engum dettur í hug að bragða hrossa-
kjöt og hyggja allir það „óhreint" og
óætt. Höfundur greinarinnar kveðst þó
hyggja að höfðingjunum mundi falla það
vel ef þeir reyndu það og fátækum
mönnum mundi það og hin hollasta fæða,
þeim sem brestur fé til þess að kaupa
annað kjöt fyrir dýrleika sakir og eru
svo án þess með öllu. Mundu þeir þá
mega afkasta meira verki heldur en
þeim er unt við þann kost, sem þeir
eiga nú að búa.
Hrossakjötsát fer mjög í vöxt í ýms-
um löndum álfunnar, sem bezt má sjá
á tölum þeim, er hér fara á eftir: í
Berlín var slátrað nær 3000 hrossum
til raanneldis árið 1847, en árið 1900
vóru þau 10363 og árið 1902 orðin
12703. í Prússlandi öllu var slátrað
63800 hrossum árið 1899, en 1902 var
talan orðin nær 86 þúsundir. Annars-
staðar á Þýzkalandi er hrossakjötsát
minna, en fer þó sívaxandi. Einna mest
er það í Hamborg og Breslau. í Frakk-
landi og Austurríki er mikið etið af
lirossakjöti, eiukum í stórborgunum. í
Vínarborg var slátrað 1122 hrossum
árið 1862, á ið 1890 nær því 7000, og
árið 1894 nam talan rúmum 18 þúsund-
um. í Parísarborg er etið viðlíka mikið
af hrossakjöti.
Hro-isakjötsát hófst fyrst á Frakklandi.
Var þar fyrst lögskipaður hrossaslátrari
árið 1866. Áður höíðu hross verið etin
þar á laun, svo sem titt var á íslandi
í fornöld. Nú eru löggilt sláturhús, þar
s m þess er vandlega gætt að ekki sé
kjöt af sjúkum hrossum haft til mann-
eldis.
Það er sagt, að i Krimsstríöinu hafi
hermenn þeir verið miklu þolnari er átu
hrossakjöt heldur en hinir, er ekki neyttu
þess. En uiest er undir komið, hversu
kjotið er fram reitt. Það er bragðgott
ef rétt er með farið og margir sælkerar
eru sólgnir í hrossatungur.
„Review of Reviews11.
„Stcrling11, hið nýkeypta skip Thore-
félagsins, er kom hingað í fyrsta sinn
11. þ. m. er allstórt, mjög vandað og
rúmgott fyrir farþega. Skipið er dá-
lítið stærra en „Laura“ (Alls 1100
smálestir netto 650). Fyrsta farrými
er handa 66 farþegum. Annað farrými
handa rúmum 20. Gangvél skipsins
hefir 800 hestöfl, hraðinn 12 mílur.
Skipið er 16 ára gamalt og snoturt á
að sjá enda hefir nýlega verið gert við
það. Raflýsing um alt skipið. Yflr
miðjum þiljum er lyfting handa far-
þegum. Skipstjóri er E. Nielsen, Qr
áður var skipstjóri á „Tryggva kon*
ungi.“