Ingólfur


Ingólfur - 28.04.1907, Síða 1

Ingólfur - 28.04.1907, Síða 1
V. árg. 17. blað Reykjavík, suiiiiudagiiiii 28 apríl 1907. Guömundur Hannnesson. (Mynd. þessi er tekin fyrir nokkrum árum). Sú fregn barst hingað i fyrradag frd Kaupmannahöfn með símanum, að Guðmundi lœkni Hannessyni vœri veitt héraðslœknisembœttið hér í ReyTijavík. I nœsta blaði Ingólfs verður minst nánar á þenna merka Islending. Leikhúsið. Forustuleysið. Þegar stjórnarskrárbreytingin 1903 var samþykt, þá var það sem rak á eftir breytingunni, eins og íslendingar höfðu hugsað sér hana, ekki beint það að fá breytingu á sambandinu við Dan- mörku eða að fá útkljáðan ágreininginn við Dani um réttarstöðu lands vors. Ekki svo að skilja að oss væri ekki réttur lands vors sama áhugamál og verið hafði, en oss var orðið það ijóst, að ef vér hefðum viljað hafa fram breyt- ingar í réttarstöðu íslands í ríkiuu, þá hefði oss eins og sakir stóðu við Dtni þá, ekkert orðið ágengt um breytingu á stjórnarfarinu í neinu tilliti. Það var tilætlunin með stjórnarskrárbreytingunni að fá í bráðina ráðna bót á galla á stjórnarfyrirkomulagi voru innanlands, þeim galla sem um ómunatíð hafði verið eitt hið tiiflnnanlegasta mein vort, eins og það hlýtur að vera til- finnanlegasta mein allra þjóða, sem við þann galla eiga að búa,l en þessi galli var forustuleysið í málum vorum, algjörleg vöntuníslenzkrarstjórn- ar í landinu, stjórnar sem byndist fyrir vorum málum íslendinga, liti á sig og starfaði sem íslenzk stjórn, í vorar þartir og að vorum áhugamálum, en skoðaði sig eigi eingöngu eða aðallega sem erindreka annarar þjóðar og verndara hennar hagsmuna og réttinda hér á landi. Stjórn vor átti með öðrum orð- um eins og framsögumaður stjórnar- skrárfrv. í neðri deild 1903, Hannes okkar Hafstein, sagði, að verða „í rétt- um slilningi starfsmaður þings og þjóðar“. Þetta var tiigangurinn með stjórn- arskrárbreytingunni 1903, og ef vér hefðum borið gæfu til að ná honum, þá hefði óneitanlega nokkuð töluvert verið unnið fyrir oss. Yér hefðum þá fengið eðlilega forustu mála vorra þar sem vor eigin stjórn var, og þ.jóð vor hefði getað skipað sér á bak við hana og beitt henni fyrir sig til framgangs mála sinna, bæði framfaramála sinna innanlands og frelsismáls síns og lands- réttinda í sambandinu við Dani. Þá hefðum vér fengið heimastjórn gæsalappalausa og þá hefðum vér feng ið stjórn eða ráðherra sem „í réttum skilningi" hefði orðið starfsmaður þings og þjóðar. En þetta fór alt öfugt. Þingið gerði sitt axarskaft, að lög- festa ráðherrann í ríkisráðinu danska og gera hann með þvi að dönskum ráð- herra, og Hafstein gerði það sem á vantaði, að láta dönsku stjórnina leggja beizlið við sig. Og árangurinn var sá, að vér feng- um enga íslenzka stjórn, engan sann- an starfsmann íslenzku stjórnarinnar og íslenzku þjóðarinnar. En Danir höfðu upp úr krafsinu það, að þeir fengu betri tök á íslenzku þjóðinni en þeir höfðu haft nokkru sinni fyrr. Þeir fengu komið inn á íslandi til forustu fyrir þjóðinni heilum dönskum ráð- gjafa í íslenzku dulargerfi, í stað hálfs dansks ráðgjafa áður, dulargerfislauss, sem enginn þurfti að glæpast á. (Frh.) Erlend símskeyti til Ingólfs frá R. B. Kh. 23. april kl. 6 síðd. Gjörbreytingamenn hafa til nefnt Krabbe í millilandanefndina. Gufuskipið Archangelsk rakst á ís- spöng á ánni Neva (í Rússlandi) og. sökk. Þar týndust 45 menn. Nylendnajnnyið í LundÚDum ætlar að koma saman 4. hvert ár og koma föstu skipulagi á þá stofnun. Þess í milli gegna tilnefndir starfsmenn málum. Fellibylur hefir banað 230 manns í Úlfseyjum í Suðurhafi. Shelfingarástandið í Lodz (á Póllandi) fer versnandi dag frá degi. Þar eru menn myrtir hrönnum og mikið um ránskap. Kh. 25 apríl kl. 6,15 síðd. Enghxndsbanki hefir lækkað vexti niður I 4°/o- Thorefélags aðalfundur í dag. Yaxandi ágóði. Félagsstjórninni veítt umboð til að auka stofnféð upp í mil- jón, og bæta manni í stjórnina við tæki- færi, ef til vill íslendingi. Bókmentafélagið endurkaus formanu sinn Þorv. Thoroddsen og stjórn. Frumvarp um írskt ráð verður lagt fyrir þingið í Lundúnum 7. maí- Einar Jónsson myndhöggvari hefir nýlega sett mynd á sýningu í Kaup- mannahöfn. Er myndin af nátt-trölli, sem numið hefir burt mennska konu og er á leið til heimkynna sinna en „dag- ar uppi“. Myndin hefir vakið mikla eftirtekt hjá þeim, er á sýninguna- komu. Dauðasyndin heitir leikurinn, sem sýndur hefir verið þar síðustu helgarnar. Höfundurinn er þýzkur, Otto Ernst; það er gerfiuafn hans. Fullu nafni heitir hann Otto Ernst Schmidt. Það er gamla sagan með nýjum orð- um, sem sögð er í leiknum: sagan um að selja sannfæring sína. Sviksemda- fiekkurinn sá verði sein-þvegnari af en allir aðrir. Það er dauðasyndin. Og hana verður ungur maður að fremja, djarfur og einarður; aðal-per- sóua leiksins. Hann verður að svíkja frjálslyndi sitt, bregðast hugsjónunum — til þess að frelsa líf konunnar sinnar. Höf. horfir beint framundan sér og þó ekki hvast. Og lítur ekki í aðrar áttir. Hann víkur t. d. hvergi að því, hvernig sannfæringarinnar sé aflað. Hvað mikið sé gert til þess að ganga úr skugga um, að þá sé ekki einmitt sannleikurinn svikinn verst, þegar sannfæringunni er haldið sem fastast. — Það eitt er þakklætisvert. að höf. hefir iáðist á þröngsýni og hræsni. Efn- ismeðferðin er lagleg, þó yfirleitt dauft yfir atburðunum. — En Leikfélagið hefir svo oft áður gert sér alveg ótrú- legt far um að láta manni ekki leið- ast í leikhúsinu; það verður þvi aldrei ofþakkað. G. J. Ingólfur hefir verið beðinn að geta þess, að sá sem fyrst hreyfði mótmæl- um á bæjarstjórnarfundinum síðast á móti því að leigja bæjarbryggjuna, var Magnús Blöudahl. Fylgi íslenzka fánans. Fjórir fundir samþykkja til- lögu Stúdentafélagsius. Fuudarályktun úr Ilolts- ogHaga- ucishreppuin: Ár 19U7 16. marz var almennur bændafundur haldinn í þinghúsi Haga- nesshreppj af fjölda bænda úr Holts- og Haganesihreppum. Fuudarstjóri var kosiun Þorsteinu sýslunefndarmaðnr í Vik og skrifari Gnðm. Davíðsson á Hraunum. Var þá tekið fyrir: Fánamálið. Bréf frá „Uugmennafélaginu“ á Ak- ureyri um fána íslands var upplosið. Eftir nokkrar uinræður var samþykt svohljóðandi tillaga með flest-öllum at- kvæðum: „Fundurinn samþykkir, að svo framarlega sem nokkur íslenzkur fáui fái laga-heimild til notkunar hér á landi, þá verði það sá fáni, sem „Stúdentafélagið“ hefir gert að uppá- stungu sinni/ Fnudargjörð lesin og samþykt. Þ. Þorsteinsson (fundarstjóri). Guom. Davíðsson (skrifari). Ályktuu á aliueuuuiu sveitarfuudi í Svcinsstaðalireppi: „Á almennum sveitarfundi í Sveins- staðahreppi 6. þ. m. var borið upp og rætt um bréf frá „Ungmeunafélagi Ak- ureyrar" dags 26. jan. þ. á. um fána- rnálið, og var eftir nokkrar umræður samþykt með öllum atkvæðum að styðja tillögu „Stúdeutaféiagsins" í fánamál- iau. Miðhúsum 8. apríl 1907. Halldór Pálssou (oddviti). Til Stúdentafélagsins í Reykjavík- Fundarsiiniþykt í FeLlshreppi: Keldum 4. apríl 1907. Haldinn var fnndur 15. marz að Felli í Fellshreppi eftir beiðni „Ung- mennafélags Akureyrar“ og mættu all- ir bændur til að ræða um fánamálið. Var funduriun eindregið með því að fá sérstakan fána og fellir sig bezt við „Stúdentafélagsfánann“ af þeim, er vóru til sýnis á fundiuum ogsamþyktu hann í einu hljöði. Hreppsnefndin í Fellshreppi. Til Stúdentafélagsins í Reykjavík. Fuudarsaniþykt í íliðdalahreppi: Mánudagiun 8. april var almennur aveitarfundur haldiun fyrir Miðdala- hrepp og kom þar ásamt ýmsu fleiru til umræðu: Fánamálið: „Samþykt var með 12 atkvæðum gegn 8, að landið hefði sérstakt flagg, en að löggjafarvald iandsins ráði forminu á fánanum.“ Réttan útdrátt staðfestir Kvennabrekku 10. apríl 1907. .Jóhannes L. L. Jóhannesson oddviti og fundarstjóri. Til Stúdentafélagsins í Reykjavik.

x

Ingólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.