Ingólfur


Ingólfur - 28.04.1907, Page 3

Ingólfur - 28.04.1907, Page 3
Vei þér — ! Sögulíorn cftir Y. Harwitz. INGOLFUR 67 Framh. Reiðbjóls-bjalla kvað við snögglega, svo að hún brökk við. Hún sá ljósklædda konu með enskan stráhatt líða eftir Hafnarstrætinu. Það var engin önnnr en Elsa Holm. Og hún var horfin hjá — . En frúin á svölunum slepti henni ekki úr hug sér. Hún sat lengi álút og hugsaði um Elsu Holm. Elsa Holm hafði lag á að höndla hamingjuna. Hún var ávalt glöð og ánægð með starf sitt. Hún var síhlæjandi ogfliss- andi eins og hún hafði verið á barns- aldri. Hún var nú reyndar orðin rosk- in jungfrú, en ekki var hún víst neitt hnuggin af „ástar-söknuði“. Hún stundaði starf sitt. ------Irma Verlin hefði líka getað haft starf —, iðju sem hún gat lagt stund á. — Þá var það hægt-------------! Einmitt þá. Ef hún hefði notað tækifærið í það sinn, þá hefði húnhaft starf, sem vert var að vinna að. Og þá hefði hún víst ekki ve. ið „veik“ — verið komin í dauðann . . .“ Hún sá ljósum kjól bregða fyrir í garðinum. Hana greip óljós þrá að gæla við barnið sitt. „Ester, Ester“, kallaði hún með á- kefð og óþreyju, eins og mikið lægi við. En hún iðraðist þess óðara en hún hafði slept orðunum af vörum sér og skalf og titraði. Hún vítti sjálfa sig fyrir að hafa kallað á stúlkuna. Hún óskaði að Ester hefði ekki heyrt það. En Ester hafði heyrt til hennar. Hún læddist upp til hennar hægt og hljóðlega. Hún horfði stóru augunum sínum feimnislega á móður sína, og nasirnar bærðust til í sífellu — eins og vant var á þessu barnil „Varstu að kalla á mig, mamma?“ Eu frú Irma horfði að eins á hvern- ig nasirnar bærðust. Hún þoldi ekki að horfa á það; henni lá við brjálsemi. Hún bandaði frá sér höndunum og sagði: „Nei, farðu, farðu, — eg vil vera ein.“ Barnið fór. Að barnið skyldi hafa hlotið þetta litla einkenni. Grimmar vóru norn- irnar. . . Henni lá við gráti en ekki kom henni tár í auga. Hún sat kyrr og starði þreytnlega framundan sér. Stofuklukkan sló fjögur lág högg. Alt hafði hljótt um sig í því húsi sam- kvæmt vilja húsfreyjunnar. Það færðist aftur svipur í augu hennar. Grimmur geigur birtist í þeim. Hún reis upp til þess að fara inn og hafa fataskifti. Hún átti von á forstjóranum, manni sínum, á hverri stundu. Henni var þungt um ganginn og reikaði til eins og maður sem ný- staðinn er af sóttarsæng. Leið hennar lá um herbergið hennar og hún stansaði ósjálfrátt við skrifborð- ið sitt. Hún tók upp iykil og opuaði í hálfgerðri leiðslu. Hún tók nokkur samfest pappírsblöð úr skúffunni hægra megin. Mörg blöðin voru skrifuð. Hún leit flóttalega í kringum sig. Eu þar var euginn, sem sá til hennar. Hún stóð andartak höggdofa með blöðin í hendinni. Svo lagði hún þau aftur frá sér. Sneri lyklinum og flýtti sér iun í klæði- stofu sína. Björns Kristjánssonar hefir miklap birgðir af allskonar FARFAVÖBU svo sem: Zinkhvítu Blýhvítu Gula liti Krómgult Gullokkur Dökkgult okkur Satin okkur. Bláa liti Parísarblátt Ultramarin Kobalt blátt. Græna liti Umbra Krómgrænt Rauða liti ítalskt rautt Amarant rautt Indverskt do. Zinnober Járnmenju Terra Siena Brúna liti Casseler brúnt Mahogni okkur Umbra Svartan lit Könrög Ferniolíu Kítti Törrelse Krít Terpentínu Gullbronze Alminium bronze Bronze-tin ktúr Lím Vikur Lökk allskonar Kvistlakk Kristallakk Kópallakk Ahornlakk Hvítt lakk Asfalt lakk Matt lakk Deeorationslakk Pensla margar tegundir Gúmmi-kamba og fleira. Stöku litar-tegundir kunna aö vera útseldar nú i svip, en koma aftur mjög bráðlega. Verlin forstjóri var kominD heim. Hann var hár vexti, fríður sýnum, blá- eygur og góðlegur. Húsfreyjau var ekki búin að hafa fataskifti. Forstjórinn gekk um gólf í dagstofuuni. Honum leiddist biðin, settist niður og fór að fletta tímariti. En hann leit upp á hverju augnabliki með eftir- vænting og harm í hug og horfði þang- að, sem hann átti hennar von. Hann unni Irmu hugástum. Hún var ást hans og yndi enn í dag. En hann hafði hugarvil af heilsuleysi henn- ar, sem hafði þjáð hana níu eða tíu ár. Honum fanst stefna að því, að hann misti hana. Hún gat aldrei á heilli sér tekið frá því fyrsta árið sem þau voru saman. Hún vildi aldrei þýð- ast hann, þótt hann léti vel að henni. Og þó unni hún honum, hann var þess full- vís að hún unni honum mikið. Hann vildi ekki láta sér annað til hugar koma, það hlaut að vera og átti að vera. Ef heilsan fengist þá væri alt í bezta lagi. Ester kom inn í stofnna. „Hvernig líður mömmu þinniídag?“ spurði forstjórinn. „Mömmu líður víst ekki vel. Hún kallaði til mín, en þegar ég kom sagði hún við mig : „Farðu, farðu —!“ Forstjórinn sá að henni þótti fyrir því. Hann unni henni. Hún var einkadóttir hans og Irmu. Ea hann skildi ekki, hversu Irma var óblíð við hana; hann vissi ekki hvort það var af því að hún hafði altaf verið veik síðan Ester fæddist. Irma var vöu að drepa á dreif þeim spurningum. Hann tók barnið á hné sér. Ester tók höndunum utan um hálsinn á hon- um. Þau sátu þannig þegar Irma kom inn í stofuna. Hún hafði reynt að taka á sig gleði- svip fyrir framan spegilinn en brosið dó þegar hún sá þau þarna. Hún greip fyrir hjartað og reikaði. Forstjórinn flýtti sér til hennar og studdi hana. „Þú ert veik Irma mín góð“. „Nei . . . nei . . . það líður frá . . . það er víst af þessum sterka blómailmi . . . svona nú er mér batnað aftur“. —Hún brosti aftur. — „Þakka þér fyr- ir góði minn“. „Eg varð hræddur um þig góða mín. Þú mátt ekki verða mikið veik“. „Þætti þér leiðinlegt ef ég dæi?“ „Þú mátt ekki hugsa um að deyjau. „Nei ég hugsa ekki um það — held- ur dey þegar dauðinn kemur“. „Yið skulum nú fara að borða en tala ekki um dauðann“, sagði hún. Forstjórinn yar vanur að sitja á svöl- unum og reykja vindil þegar lokið var miðdegisverði. Hann vildi þá að Irma sæti hjá sér á rneðan hann dvaldi þar. Þau sátu nú á svölunum. Hanu sagði henni nýungar úr bænum og hún kvaldi sig til að spyrja frétta. Samtal hjónanna fór fram hægt og rólega að hætti mentaðra manna. Þá var hafið að leika á hljóðfæri inni í næsta húsi. Fingurnir fóru í leik um strengina og leituðu lags. Síðan tók slátturinn að ná réttu skipu- lagi. Mátti heyra að karlmaður sló. Hreimaruir liðu burt í mjúkum öld- um, og voru þeir stundum svo hljóð- látir, að þeir heyrðust vart yfir um. Þeir urðu sem langdreginn brimsúg- ur við strendur úthafsins. Siðan breyttust þeir og urðu sem brosmilt bárugjálfur í fjörumálinu. Eða sem vorbros yflr fögrum dal, þar sem fuglarnir kvaka, brumið bólgn- ar og springur og konur og karlar stíga dans, Síðan urðu þeir ákafir og ofsalegir.

x

Ingólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.