Ingólfur


Ingólfur - 17.11.1907, Page 1

Ingólfur - 17.11.1907, Page 1
V. árg. 46. blað Reykjavík, sunnudagiim 17. nóvember 1907. Jónas HaUgrímsson. 1807-1907- Fundur í BftrubriO 2. og 4. fimtudagskveld 1 mánuði hverj. kl. 9. Yerzlunarskýrslurlslands 1905. ----- Niðurl. Mestir verzlunarstaðir. r. Upplestur. ögn var í landi, sérhver drúpti dalur, dagarnir langir, fólkið mókti sljótt, húm-skýjum döprum sveiptur himins salur sólin var falin bak við ský og nótt. Þögul sem gröf, með gulli renda strengi goðfögrum þrungin lífsins töfra hljóm norræna harpan hafði beðið lengi hendina þráð er vekti’ inn forna óm. Harpan sem geymdi Egils afl og hljóma ofna í gullnra tíða snildar mál, harpan sem geymdi Kormaks ástaróma eldlega tóna úr logaheitri sál); hljómarnir þeir, sem áður hrifu alla orðnir að sögu horfinni frá öld. Flúin var göfgin, flekkuð tungan snjalla, frjálsborin þjóð í hlekkjum stirð og köld. Vesalings ísland! — yfir dánum vonum einmana stóðstu köld og sorgarhljóð. Burtu var frægðin, fátt af nýtum sonum falin í ösku in helga aringlóð. Huggunarorð þú ekkert fékkst að heyra, ekkert sem gæti tendrað fornan þrótt, þó var þér sáru.st sönglaus þögn í eyra, sönglausri þjóð er lífið eilíf nótt. Þá komst þú Jónas, ungur, frjáls og fagur færandi vonir, söng og æskuþrótt, það var sem brosti bjartur sumardagur blikandi af sól á eftir kaldri nótt. Harpan sem áður hafði beðið lengi hljómlaus og dreymt um liðins tíma óm, fékk nú að nýju fagra, gullna strengi og fingur, sem vöktu nýjan snildarhljóm. Birti í dölum, brostu tindar fjalla blikandi af sól á eftir myrka nótt! Tignina fornu fann nú tungan snjalla, fegurðarblæ og aðalborinn þrútt. Það var sem léki logi huldra heima hljómvængjum borinn yfir kalið láð, Fjallkonan brosti og fann að hjarta streyma fegurð þess hljóms, er lengi hafði ’ún þráð. Fólkið sem svaf og mókti í deyfð og doða draumstýrur þerði votum augum frá; heyrði þig dag með hljómum vorsins boða, hristi sín bönd, og kendi nýja þrá. Svefnþýið hlaut að sjá: Það lýsti dagur sólroðinn brosti austurhæðum frá, landið var frítt og himinn hár og fagur hreinn eins og lífsins insta, dýpsta þrá. Meðan þú „glæddir ljós í hjörtum lýða“ launin þín voru þögnin dapra ein; grýttur þú varst — en fólkið hlaut að hlýða, hljómarnir seiddu líf í kaldan stein. Þeir sem að smána það sem altaf lifir þekkja’ ei það Iögmál gegnum tíma og ár: Tvöfaldur bjarmi brosir síðar yfir bi-ostinni hörpu, er glæða lýðsins tár! Þökk fyrir ljóðin þjóðin öll þér færir, þökkin kom seint — og blandast því við tár. Minning þín dýpstu hugans strengi hrærir, harpan er geymd þó skáldið liggi nár. Harpan er geymd, um hana bjarminn ljómar helgur og skær frá landsins arin-glóð, hátt yfir Fróni eldsins tunga ómar: Eldinn þann kveiktu ’in fögru snildarljóð. II. Einsöngur. Hátt skal gígjan hljóma honum þakkir færa, sem lét áður óma óðinn silfur skæra, söng um sólu bjarta, söng um frelsi þjóða söng í hug og hjarta himin vors og ljóða. Brosið blóm á engi, blika lind í halla, hreyfið hörpu strengi Huldur Islands fjalla! Glitra gullnum ljósum glóey logastöfuð, skreyttu röðulrósum röðulskáldsins höfuð! Látið Ióur gjalla listaskáldsins hróður, syngið svanir fjalla söng um ykkar bróður. Fjalladrotning fríða faldinn láttu skarta! Lofið hjörtu lýða Iandsins stærsta hjarta! Meðan lífs frá lindum ljós og hreimar streyma og í máli og myndum manna hjörtu dreymá, blikar skært ið bjarta bláhvel draums og ljóða, lifðu í lýðsins hjarta listaskáldið góða I III. Upplestur. 0! krjúp nú ísland, krjúp að skáldsins fótum, sem kvað sín Ijóð frá þínum hjartarótum. Og horfðu á vorskáld hundrað reynslu ára, sem hlaut að launum þyrnikranzinn sára. Hann kunni að bera kvöl og dulda Iiarma svo kranz úr þyrnum varð að morgunbjarma. Sá bjarmi lýsir hátt um höfðið bjarta og hrekur enn á burtu myrkrið svarta. Hans söngur hljómar ennþá ungur, fagur og alt í kring er ljós og sunnudagur. Hann stendur frjáls, sem frelsisboði lýða hinn frjálsi merkisberi nýrra tíða, Mark hans var: frelsi og fegurð ríki í landi um fet ei vék hans sterki, djarfi andi. Já, því er enn þá Ijós um ljúflings enni, sem ljóminn skær á vígðum arni hrenni. Svo tak nú þjóð hans sorgarkranzinn svarta, og settu um ennið heiðurssveiginn bjarta. Og vígðu sveiginn vonum ljóss og tárum, hann var þitt ljós á hundrað liðnum árum. Jonas Guðlaugsson, Hér eru taldir þeir kaupstaðir og kauptún, sem hafa hálfrar miljón króua verzlan eða meira: lieykjavík: 7548000 kr. Isafjörður: 2205000 - Akureyri: 1883000 - Mjóifjörður: 1777000 - Seyðisíjörður: 1135000 ■ Hafnarfjörður: 894000 - Sauðárkrókur: 700000 - Stykkishólmur: 616000 - Vestmanneyjar: 588000 - Eyrarbakki: 537000 - Viðskifti kaupstaðanna fjögurra eru nálægt 44°/0 af öllum viðskiftum Is- lendinga við önnur lönd enda er verzl- an Heykjavíkur einnar, fjórði hluti allrar verziunar landsins. Verzlanir. Árið 1905 vóru hér á landi 30 sveita- verzlanir, 283 innlendar „fastar“ verzl- anir og 62 útlendar „fastar“ verzlanir, eða alis 375 verzlanir. 1855 vóru hér 58 verzlanir.: 26 islenzkar og 32 út- lendar. Lausakaupmenn eru eigi taldir með, en þeir höfóu mjög mikii viðskifti við íslendinga fram yhr miðja 19. öld. Stuttu eítir 1880 hverfa þeir að heita má úr sögunni og nú eru þeir með öllu hættir að koma hingað. „Verziunareigendur eru mikið færri en verzlanirnar. Nú má heita algengt að sami kaupmaðurinn eigi Heiri en eina verzlan. Taia föstu verzlananna verður töluvert lægri, ef taldir erufastir kaup- menn x stað verziana. Eftir því, er næst verður í'arið* eru það hmui innlendir kaupmenn, sem eiga tvær verzlanir hver = 10 verzianir ogþrir inniendir kaupmenn og féiög reka 13 — Átta innlendir kaupmenn reka alls 23 verzlanir Elleíu erlendir kaupmenn reka hér alls 40 verzlanir Innlendir kaupmenn (sem áttu 283 verzianir árið 1905) vóru 268 Erlendir kaupmenn og félög (sem áttu 50 verzlanir hér) voru 33 Sveitaverzlanir vóru 30 Kauprn. og verzl.félög aiis 331. Árið 1855 vóru erlendar verzlanir fleiii en hinar innlendu og ef taldir hefðu verið lausakaupmenn, þá hefðu þær iíklega orðið helmingi lieiri. 1905 eru erlendu verzlamrnar 18'’/0 af öllum verziunum nema sveitaveizlunum, en hve rnikið af aliri veizlaninni kemur á þær, helir ekki verið rannsakað, en það er aðalatnðidJ** Hví er það þá ekki rannsakað? — Er það mjög vítavert hve verzlunarskýrslurnar eru hroðvirkn- islega samdar af stjórnarinnar hálfu. Siglingar. Um siglingar til landsins eru til á- reiðanlegar skýrslur frá 1787. Sést af þeim að hingað komu að eins 6 skip * Er nokkur vandi aö sjá það með vissu? Yerzluuarskýrslur 1906, XII.

x

Ingólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.