Ingólfur - 20.12.1908, Page 1
VI. árg.
51. blað.
Keykjavík, sunnudagiim 20. desember 1908.
GJB.,srsrgi'grsrsjsi'sr^r^jiSi,^j^rg3ii=»n=3i7=»i'F3n=>n=ii,^3r^3n=3m3r=3r=ir=»i7
VACUUM OIL COMPANY
hefir beztu mótoraolíu og aðra smurningaolíu.
Menn snúi sér til útsölumanna í Reykiavík Nic. Bjarnason
kanpm. og Magnúsar Blöndahls trésmíðameistara.
i
0
0)1
Mótorbátur tveggja og hálfs árs gamall er til sölu á Eski-
firöi 32y2 fet á lengd 9 eöa 10 fet á breidd meö 8 hesta Dan
vél. Listhafendur snúi sér til ritstjóra Ingólfs aö fá nánari
upplýsingar.
Jólavindlar
hvergi betri né ódýrari en í
I i 1 Bí fl
r
lr ci J
HVERFISGÖTU 2.
(Afgreiðslustofu Ingólfs. Hús P. Brynjólfssonar Ijósm.)
Þangað eru nýkomnar ótal margar tegundir af ágætum hollenzkum vindlum,
mjög ódýrum eftir gæðum:
á 7. 8, 10, 12, 15, 20 og 25 aura vindillinn.
Agæt
, heimastjórnar- .
ir VINDLAR
landvarnar-
Litlö inn i Ingólfstoiiö
10°|0 afsláttur
verður gefinn frá þessum degi til jóla á kjólaefnum, vetrarsjölnm, sængur
dúk, léreftum, tvisttaum, íioneli og mjög mörgu öðru.
Um þessar mundir hugsa allir um að spara sem mest, og því ættu mem
að nota þetta góða boð, sem að eins stendur fáa daga.
Betri og ódýrari vörur fást hvergi.
Vefnaöarvöruverzlun
Egils Jacobsens.
Þingræðið.
Skáldskapur ráðherrans.
Veikar varnir.
Ráðherrann heldur áfram fréttaburð-
inum suður í Danmörk. Hefir hann nú
látið „Berling" reyna að réttlæta fyrri
ummæli sin, sem rekin vóru aftur með
skeyti frá stjórn frumvarpsandstæðinga,
sem skýrt var frá í síðasta blaði. Frá
þessu yfirklóri þeirra „Berlings“ er sagt
á þessa leið, í skeyti, sem Blaðskeyta-
félagið fékk frá Khöfn á fimtudagskveld-
ið:
„Berlingske segir flokksmótmælin
[gegn söguburði ráðherrans] frá gömlu
þjóðræðis*tjórninni(!!). Ólafur Björns-
son upp’ýíti [þá um] nýja stjórnarkosn-
ing í haust. Berlingske rengir [þær
upplýsingar], kallar Þjóðólfs(rit)stjóra
,,overlöber.“ (Kveður) Austra vilja setu
ráðherrans."
Ráðherraoum kemur vel að hann er
„akáld“, enda neytir hnnn „gáfunnar"
óaleitilega. En heldur tekst honum þó
ófimlega, þegar hann fer að verja sögu-
burðinn í „Berlingi“. Mótmælaskeytið
frá stjórn frumvarpsandstæðinga kom
heldur en ekki óþægilega við og úrræð-
in gegn því urðu þau, að segja skeytið
frá gömlu þjóðræðisstjórninni(!). Þessi
ráðherrasannleikur hefir átt að duga í
í danskinn. — Þegar Ólafur Björnssou
rekur þann „sannleika“ og skýrir frá
því, að ný stjórn hafi verið kosin í
haust fyrir flokk frumvarpsandstæðinga,
þá hafa þeir Berlingur og Hafsteinn
ekki önnur úrræði en að þræta á móti
því. Bera þeir fram að ritstjóri Þjóð-
ólfs sé liðhlaupi, og stefnir það enn að
hinn sama, að sýna Dönum hvílíknr
píslarvottur blessaður ráðherrann sé,
þar sem fylgismaður hans, ritstjóri Þjóð-
ólfs, hafi nú gerst „overlöber“. Er
slíkt harla óviðurkvæmileg aðferð og
ekki drengileg, því að allir vita að
ritstjóri Þjóðólfs var frá öndverðu and-
vígur nefndarfrumvarpinu og játaði ráð-
herra í sumar, að á þeim grundvolli
einum ætti flokkaskiftingin að standa
við kosningarnar.
Skýrskotunin til „Austra“ er einnig
mjög rangsnúin. Austri vildi því að
eins að ráðherrann [sæti við völd að
hann beygði sig undir viija meiri liluta
þjóðarinnar, en það er nú eitthvað
annað en ráðherrann hafi fullnægt því
skilyrði.
Það má heita stórfurða, að ráðherr-
ann skuli láta sér sæma þvílíka frammi-
stöðu þegar hann á að reka erindi þjóð-
arinnar í öðru landi.
íslenzkt skip ferst
við Færeyjar.
Fiskiskúta, er Oolden Hope hét, fór
héðan í haust fermd saltfiski áleiðis til
Englands. Lét í haf 16. okt. Spurð-
ist ekki til skútunnar langa hríS, fyrr
en skipsferðir féllu frá Færeyium snemma
í þessum mánuði. Þá er skrifað það-
an, að brot hafi fundist af skipinu við
Straumey og Vocey.' Menn allir hafa
fariat og vórn þeir 10 saman. Allir
ungir menn ókvæntir.
Skipstjóri var Halldór Steinsson frá
Oddhóli, stýrimaður Gísli Gíslason frá
Hliði á Akranesi og Arnór bróðir hans,
Ólafur Gíslason Hinrikssonar af Akra-
nesi, Páll Hreiðarsson úr Rvík, Bjarni
Þórðarson frá Eyjum í Kjós, Árni Kr.
Einarsson úr Rvík, Guðmundur og Yil-
mundur Oddísynir frá Presthólum á
Akranesi og Gísli Gíslason, fóstarsou
Árna pósts í Lækjarhvammi.
Eigendur skipsins vóru þeir Elías
Stefánsson, Árni póstur og Jónas Sig-
urðsson [á Völlum á Kjalarnesi. Það
var vátrygt í Faxaflóafélaginu fyrir 12
þús kr. og farmurinn vátrygður erlendis
fyrir 18 þús. kr.
Landshagsskýrslur 1907.
----- Frh.
VIII.
Verzlunarskýrslur 1906.
Skýrslurnar ern enn samdar á sama
hátt sem þjrú ^íðustu árin, að aðfluttar
og útfluttar vörur eru taldar eftir sýsl-
um, svo að eigi er hægt að sjá hve
mikið flyzt á hverja höfn, en að því
eru mikil óþægindi og væri skýrslurn-
ar mun fróðlegri ef hver verzl.-staður
væri talinn sérstaklega svo sem var alt
til 1903. Þá er að geta þess að sýslu-
maðurinn í Dalasýslu hefir eigi haft
fyrir að senda neinar verzlunarskýrslur
í þetta sinn, sem mun vera eftir öðr-
um embættisrekstri hans. Verzlun er
ekki mikil í Dalasýslu, svo að þess
gætir eigi svo mjög þótt sú sýsla falli
úr þegar litið er’á verzlun alls lands-
ins.
V erzlunarmagnið.
1906 er verzlunin meiri en nokkuru
sinnifyrr. Aðflutt vara nam 16856796 kr.
og útflutt vara 13554739 kr. eða sam-
tals 30411535 kr. sem er yfir 2 milj.
kr. hærra en næsta ár á undan. Það
er aðflutta varan, sem hefir vaxið svo
gífurlegaað nemur 2 milj. og 200 þús.
kr. en útflutta varan steDdur í stað.
Veizlunarhallinn er þetta ár fullar 3
miljón kr. eða hinn langmesti verzlunar-
halli er komið hefir á einu ári síðan
1880. „Auðvitað hlýtur landið að hafa
einhverja peningalind, sem liggur fyrir
ufan verzlnnarskýrslurnar11.
„Aðflutta varan er ávalt hærri en
útflutta varan þótt verzlað sé skuld-
laust við önnur lönd. Það getur ekk-
ert land verzlað svo að það sökkvi ár
frá ári í dýpri verzlunarskuldir. Láns-
traustið hættir eftir 2—3 ár og skuld-
irnar verða að borgast. Viðskiftum
milli tveggja ríkja er farið eins og við-
skiftum milli tveggja manna. Auðvitað
getur landið gert eins og einstakur
maður, tekið lán og borgað með því
verzlunarskuldir. Þetta hefir Island
gert 1904, þvi að hlutafé íslandsbanka
sem nú er 3 milj. kr. er ekkert annað
en lán sem fengið er hjá erlendura
mönnum“.
Fundarályktun gerð á fuedi stú-
dentafélagsins í Reykjavík 14. þ. m.:
„í’lundurinn telur sérstaklega óheppi-
legt, að sú venja komist á að ráðherra
víki aldrei úr völdum milli þinga, þótt
í augljósum minni bluta sé, þar sem
nýr ráðheria, sakir þess að konungur
situr í öðru landi, naumast getur orðið
útnefndur fyrr en eftir þinglok, og
menn því orðið heilt þing að búa við
minnihluta stjórn, auk þess, sem það
er heppilegast að sú stjórn búi málin
undir þing, er fylgi hefur meiri hlutans.
En ótvírætt brot á þingræðinu telur
fundurinn það, að ráðherra framkvæmi
stjórnarathafnir, sem útnefning kon-
ungkjörinna þingmanna, þvert ofaní
yfirlýstan vilja meiri hluta þjóðarinnar.“
IHiÓLF
á að greiða á afgreiðslunni
Hverfisgötu 2.
Næsta blað á þriðjudagiun.