Ingólfur - 18.02.1910, Side 3
INGOLFUR
27
Mér er næsta óskiljanlegt, að jafnlærður
maður og prófesaor Olaen skuli kalda, áð vega-
lengdir sén mældir í klnkknstunduín, og hlýt
ég að ieiðrétta þstta og fræða lesendur Ingólfs
á þvi, að áðurnefnd fjarlægð samkvæmt mjög
nákvæmum og áreiðanlegnm útreikningum mín-
um 19. dag janúarmánaðar var 2677 rastir,
437 stikur og 3 læfðir.
Að öðrn leyti kann ég honum heztu þakkir
fyrir hinar skarpvitru athuganir hans, sem ég
hefi haft mikið gagn af við ransóknir mínar. —
Dað hefur löngum þótt fyrirboði stórtíðinda
hafi halastjarna sést og sannaðist það nú sem
fyr.
Hún var næst okkur um það leyti sem póli-
tísku fundirnir voru haldnir í Reykjavík um
daginn og að þeim loknum fór hún á heimleið.
Þá var hún búin að fá nóg af komnnni.
Að endingu reiknaði ég út, að heunar er
von aftur hingað til bæjarins einhverntíma, og
líklegt að það verði um þ&ð lcyti, sem auka-
þing verður haldið hér.
Sem sé ekki þotta árið.
Alþjóðamál.
Eftir Þorstein Þorsteinsson.
í 4. tbl. Ingólfs hefur ungfrú Thora Frið-
riksson ritað grein um Esperantó, sem mig
langar til að gjöra nokkrar athugasemdir við
og vildi ég biðja ritstjóra Ingólfs um að ljá
mér rúm fyrir þær í blaði sínu.
Ungfrúin byrjar mál sitt með því að tala
um hve vér íslendingar séum á eftir tímanum
í mörgn. Sem dæmi þess nefnir hún það, að
síðaBtliðið haust var hér gefin út kennslubók í
Esperauto. Hún álítur, að bókin komi um
seinan, því að Esperanto sé nú dottin úr sög-
unni cða muni að minsta kosti falla um koll
þá og þegar. Tit sannindamerkis um það getur
hún þess, að um þær mundir, er bókin kom
út, hah hafist mikil rimma um það, í írönskum
blöðum og víðar, hvort Esperantó ætti ekki
að víkja fyrir öðru heimsmáli, sem nefnist Ido.
Eu mér finst þetta því að eins sanna nokkuð
í þessu efni, að endirinn á rimmunni hafi orðið
sá, að Esperantó ætti að víkja fyrir hinu mál-
inu. Eða þá að líkur séu færðar fyrir, að svo
muni fara. En það gjörir ungfrúin ekki. Ein-
ungis segir hún, að „sumir hugsi að deilan verði
svo hörð að bæði rnálin falli i valinn“.
Ungfrúin gjörir sér þannig engu meiri vonir
um þetta nýja mál beldur en um Eíiperantó,
enda er það auðsjáanlega meiaing hennar, að
hugmyndin um tilbúið tungumál sé í sjálfu
sér fásinna, því að slfk mál geti ekki þrifist.
Þarna finBt mér einmitt ungfrúin sjálf vera
orðin nokkuð á eftir timanum.
Fyrir mannsaldri síðan þótti þetta góð latína.
Dá var það almennt álitið, að málin yrðu að
skaþast ósjálfrátt á vörum þjóðanna, ef þau
ættu að geta lifað, og fyrir þvi væri heimska
að fást við að búa til ný mál. Þau væru eins
og likneski hjá lifandi skepnu, þau gætu vorið
álitleg að ytra útliti, en þau vantaði bara það
eina nauðsynlega, sjálft lífið.
En nú er annað orðið uppi á teningnum.
Nú er það almennt viðurkennt af málfræðingum,
að enginn slíkur eðlismunur sé á lifandi málum
og tilbúnum, svo að ekkert sé því til fyrir-
stöðu, að tilbúið mál geti þrifist og biómgast,
ef það á annað borð or vel úr garði gjört.
Keynslan hefur lika sýnt það, að slik mál hafa
verið notuð bæði munnlega og skriflega alveg
eins og lifandi mál.
Ungfrúin segir í grein sinni, að tilbúin tungu-
mál séu dauð að því leyti, að þau geti okki
framleitt neinar bókmenntir. Þetta er í meira
lagi hæpin staðhæfing og skil ég ekki í því, á
hverju ungfrúin byggir hana. Ég fyrir mitt
leyti er í engum vafa um, að þau geti fram-
leitt bókmenntir og svo mikið er vist að all-
miklar bókmenntir voru framleiddar á latinu á
miðöldunum, enda þótt latínan væri þá ekki
móðurmál nokkurs manns og svipaði að því
lóyti til tilbúins tungumáls, að búið var all-
mikið að breyta henni frá' því sem hún var
töluð í Rðm.
En þó bvo væri, að tilbúin tungsmál gætu
ekki framleitt neinar bókmenntir, þá væri ekki
þar með sagt, að þau væru dauð og gagnslaus.
Mikill hluti — ef ekki meiri hluti — þeirra
manna, sem útlend tungumál læra, gera það
ekki vegna þoirra bókmenuta, som á þoim eru,
heldur af ýmsum öðrum ástæðum. Svo er t. d.
um verzlunarmenn, iðnaðarmenn, ferðamenn o. fl,
Og pidgin english, málblendingurinn, semnotaður
er mikið Bera verzlunarmál í Kína, hefur sýnt
það, að mál getur verið fulllifandi, þó að það
sé ekki bókmenntamál.
Það eru ekki skáld eða fagurfræðingar, sem
mesta þörf hafa fundið á að hafa eitt alþjóð-
Iegt hjálparmál, auk móðurmálsins, er alstaðar
mætti nota í viðskftum við aðrar þjóðir, heldur
verzlunarmenn, iðnaðarmenn og aðrir þeir, er
þátt taka í alþjóðíegum viðskiftum. Þessi
þörf verður æ ríkari eftir því, sem samgöng-
urnar batna, því að við það koma fleiri þjóðir
inn í viðskiftahringiðuna, svo að málin verða
fleiri, sem læra verður, auk þess sem alþjóðleg
viðskifti ná dýpra niður í þjóðirnar og tala
þeirra vex, er láta sig alþjóðleg málefni verða.
Það er svo að sjá, sem uDgfrúin álíti, að úr
þessari þörf sé þegar bætt, enskan sé slikt al-
mennt hjálparmál, því að húu sogir, að með
ensku megi komast áfram í öllum álfum. Það
er að vísu rétt, að enskun er töluð af fleiri
mönnum en nokkurt annað mál nema kinverska
og mikið notuð í viðakiftum þjóða í milli, eink-
um verzlunarviðskiftum, en mikið vantar þé á,
að húu sé orðin alment ríkjandi hjálparmál á
þessu sviði, svo að menn geti komist af með
hana eina, hvað þá heldur á öðrum sviðum,
svo sem í vísindum o. fl.
En þó að enskan sé enn ekki orðin almennt
hjálparmái, er eðlilegt, að menn ímyndi
sér, að úr því að enskan hefur náð tiltölulega
mestri útbreiðslu, þá sé hún líklegust til þess
að verða alveg ofan á með timanum og verða
almennt hjálparmál fyrir alla i framtiðinni.
En þá verða menn líka að gæta þess, að
það eru mikil öfl, sem vinna þar á móti. Það
er auðsætt, að það mundi verða geysimikill
ávinningur fyrir hinar enskumælandi þjóðir, eí
enskan yrði slíkt almennt hjálparmál, og það
mundi stuðla mikið að því að efla riki þeirra
og völd. Það er því ofur eðlilegt, að aðrar
þjóðir, sem keppa við þær um völd og yfirráð,
reyni af öllum mætti að sporna við því og
forðist að nota enskuna sem bjálparmál jafnvel
þó þeim væri það innan handar, ekki síst ef
þeirra eigið mál (svo sem t. d. franska) hefur
verið notað sem hjálparmál í snmum efnum.
Miklu meiri likiudi eru til, að menn gætu
orðið ásáttir um, að nota som hjálparmál eitt-
hvert mál, sem ekki veitti neinni sérstakri
þjóð neina yfitburði yfir aðrar þjóðir. Það gera
tilbúin tungumál auðsýnilega ekki og hafa að
því leyti mikinn kost fram yfir allar þjóðtungur.
En svo hafa þau einnig annan kost, en hann
er sá, að þau geta verið margfalt óbrotnari og
reglulegri og því margfalt auðveldari að læra
heldur en nokkur þjóðtunga.
Ungfrúin telur upp allmörg slík mál allt
síðftn 1640, er'öll hafi sætt sömu forlögum að
líða bráðlega undir lok. Hún segist hafa heyrt
getið um 40 slík mál, en það er víst alveg
óhætt að tvöfalda þá tölu. Allar þessar til-
raunir, sem meira og minna hafa misheppnast,
sanna samt alls ekki, að tilbúið tungumál sé
nein fjarstæða. Þvert á móti benda þær til,
að hér sé viðfangsefni, sem vert sé að leysa,
og að veruleg þörf sé á slíku máli.
Annars er harla fróðlegt að athuga
þessartilraunir dálítið og taka eftir þeirri framþró-
un, er lýst hefur sér í þeim. Flest eldri kerfin voru
samin a priori þ. e. höfundarnir fundu upp
hjá sjálfum sér allan efnivið mála sinna án þess
að leita stuðnings í hinum lifandi málum. Mál
þessi voru því svo ólík hvert öðru sem dagur
og nótt. Seinni kerfin eru aftur á móti lang-
flest samin a posteriore, þ. e. þau byggja ein-
ungis úr því efni, sem fyrir hendí er, þau taka
lifandi málin sér til fyrirmyndar og líkja eftir
þeim, og það er nú orðin svo mikil eining um
mörg grundvallaratriðin fyrir byggingu mála
þessara, að nýjustu uppástungurnar líkjast hver
annari svo mjög, að fremur má kalla þær
mállýskur heldur en frábrugðin mál.
Það hefur verið sagt, að alþjóðamálið þyrfti
ekki að finna npp heldur að eius að uppgötva
3$
&
«>
i
i
i
i
8
<í'
£
p
Verzl. „KAUPANGUR“
LINDARG. 41. TALS. 244.
er jafnan byrg af nauðsynjavörum, selur allt með svo
vægu verði sem unt er, gjörir sig ánægða með lítinn
ágóða — lætur að eins hönd seljahendi. Láuar ekkert,
gjörir öllum viðskiítin eins hagkvæm og frekast er hægt.
Gleymiö eH.ls.1 verzl.
i
«>
<>■>
«>
<x>
«>
<ý<>
3$
3$
3$
«>
<»
«>
I
\>4\>C^<-'<>c<><g<><í<>«>«>«>«>Z<>
i
i
a
I
a
Nýju vörurnar koma bráðum. |
Þangað til gef ég 15°o afslátt af
vctra,rli.ápu.tavLum.
Eslll Jacolbsen.
j.^iSraaaiT^lrS’lraiT^lrai^rgl^r^rgarparcsansaigai'^iTareansai'saisarai'saisai-;
það, því að það væri þegar til, fólgið i flestum
norðurálfumálunum og þyrfti þvi að eins að
að leiða þad í ljós. Mikiil hluti af orðaforða
þessara mála er sameiginlegur fyrir þau öll
eða mörg þeirra og myndar hann kjarnann i
alþjóðamálinu. Sé svo þairri reglu æfinlega
fylgt að taka þau orð upp fyrir hverja hug-
mynd, sem mesta útbreiðslu hafa i aðaimálum
norðurálfunnar, kerast þar ekkert gjörræðí að
og er þ’að bezta tryggingin fyrir því að málið
haldist óbreytt i sama horfi í öllum aðalatriðum.
Framh.
Frá Gróttu til Gvendarbrunna.
Gæzlustjórar Landsbankaus.
Enn einu sinni hefar verið skift nm
gæzlustjóra við Landsbankann! Jón
Hermannsson nkrifstofuítjóri hefur sagt
því starfi af sér. í hans stað er skip-
aðnr Oddur Gíslason ylirréttarmála-
flntningsmaður. Hann er því sjötti
gæzlustjórinn, sem stjórnin skipar siðan
22. nóv. f. á. Það má kaila vel að
verið.
Einu sinni í vetur stóð grein í ísa-
fold um „Lagamenn". Var því þar
haldið fram, að yfirleitt væri engir
óhæfari til gæzlustjórastarfsins eu ein-
mitt lögfræðingar. Það er því allein-
kennilegt að af þessum sex gæzlustjór-
um skuli 4 hafa verið lögfræðingar.
Er það af því, að þeir skari svo mjög
fram úr öðrum stéttarbræðrum sínum,
eða er þetta ávöxtur hinnar venjulegn
stefnufestu bannlagaráðherrans?
Leikfélagið.
Leikfélagið lék leikrit Stepniaks,
„Sinnaskifti“, í fyrsta sinni síðastl.
laugardag. Leikrit þetta er víða mjög
gott, og betur leikið, en vér eigum að
venjast.
Bankastjóruin
frávikna hefur nú samið allmikið
varnarrit, og er verið að prenta það.
>■ frá verksmiðjunni Deutz í Köln .
► eru heztir og ódýrastir. Fást <
*" að eins fyrir milligöngu undirrit- ”
* aðs, sem gefur nánari upplýsingar *
k þeim, sem þess óska.
vélfræðingur.
Akureyri.
Lagasafnið óskast til kaups. Rit- stjóri vísar á kaupanda,
Snjór
er hér óvenjnmikilJ. Segja elztu
menn, að þeir muni eigi annan eins.
Botnia
kom frá útlöndum 15. þ. m. Skip-
stjóri er nú Aasberg sá, sem áður var
á Lauru. Meðal farþega var Aage
Möller stórkaupmaður (firma P. J.
Thorsteinsson & Co).
Slökkviliðsstjériiiu,
Kristján konsúll Þorgrímsson, sagði
af sér Slökkviliðsstjórastöðunni á bæjar-
stjórnarfundi í gær. frá 1. n. m að telja.
Ný goodtemplarastúka
var stofnuð hér í bænum á sunnu-
dagskvöldið var, 13. þ. m. Fyrir því
gekkst meðal annara Sigurður danne-
brogsmaður Eiríksson.
Stúkan heitir „Skandinavion“ og er
ætluð útlendingum hér í bænum. Þar
drekka menn upp á dönsku.