Ingólfur - 06.04.1912, Blaðsíða 2
54
INGOLFUR
endanna", sem á að koma í staðinn;
það er hann sem er látinn ráða atofn
nnni. En „vilji kjósendanna er dntl-
nngafull og margbreytileg vera, sem
byltir okkar veika fari hingað og þang-
að, án.þess að séð verði að það sé með
neinni fyrirhyggju. Það er valt að
treyata á það stýri, þegar boðar eru á
báðar hlíðar og blindsker framundan.
Island erlendis.
í heimsblaðinu „Le Figaro“, í París
b'lrtist þ. 2. mar* þ. á. grein sú er hér
fer á eftir:
„Landfræðisfélagið.
ísland í París. — Söngvar Norðurl.
Hr. Hermann Stoll, svissneskur bygg-
ingarmeiatari og fyrrum lærisveinn við
fagurra-lista skóla vorn, hefnr farið
tvær ferðir um ísland, á árunum 1910
og 1911. Hann fór það bæði sem land-
könnuður og listsmaður.
Hann hefur farið um þá staðí á þess-
ari stóru eyju, eem enginn hafði áður
á komið.
Hann hefur meðferðis þaðan mjög
fróðleg gögn, er hann gaf mönnum í
gærkvöid ágrip af í fyrirlestri, erhann
hélt í landfræðisfélaginu og mönnum
geðjaðist mjög vel að; var þar í for-
setastólnum hr. Harmand, frakkneskur
sendiherra, en af áheyrendum voru þeir
Hulot barón, Reventlow greifi, sendi-
herra Dana, Lardy, sendiherraSvi ;slands,
embættismenn í sænsku og norsku sendi-
herraskrifstofunum, og ýmsir þekktir
menn úr skandínavisku nýlendunum í
Parí*.
Vísindalegur árangur af þessum tveim
leiðöngrum hr. Stolls er mikíll.
í fyriríe«itri eínum í gær lýsti hinn
ungi landkönnuður ytra útliti Islands,
og í tvo tíma gerði hann menn hlut-
takandi í lífsháttum íslendinga, og
atuddi lýsingu sína með mörgum kvik-
myndum.
Ekkert vantaði á það, að meon fengju
nikvæma hugmynd urn líf íslendinga,
annað en að menn fengja að heyra
rödd þeirra, því að söngva þeirra fiutti
hr. Stoll oss á óvenjulegan hátt.
Frk. Emma Holmstrand, leikkona við
Opera Comique, sænsk kona, aöng á
íslensku söngvana frá hinu stóra ey-
laudi í Norðurhöfum, hina einkennilegu
hrífandi söngva smáþorpsbúanna þar,
og nokknr lög, sem h'r. Stoll hefnr sett
þar á nótur. Auk þes* aðstoðaði kór
20 Svía, »em hér er í París, við þenn-
an hluta skemtunarinnar.
Þe»»i hugnæma frásögn um fjarlæga
»taði féll mjög í geð áheyrendunum,
fögrum Parísar-kouum og prúðbúnum
karlmönnum, sem þyipst höfðu þangað
til að Djóta góðs af frásögn br. Stoll*,
og klappa honum og þeim sem haun
aðstoðuðu, lof í lófa.“
í sambandi við þetta kann sumum
að þykja fróðlegt að sjá önnur umrnæli
sem IngóJíi hafa borist um fyrirlestur
þenua, frá Norðurlandabúa einum, sem
þar var viðstaddur. Þau voru á þesaa
leið:
„Hr. Hermann Stoll, sem dvalið hef-
ur á íslandi tvö »umur, hélt nýlega
fyrirlestnr í Landfræðisfélaginu í París,
nm Ííland, íbúa þe»s, siði þess (flærnar)
o. s. frv. — Þótt undarlegt megi virð-
ast lýsti ræðumaðurinn íslandi sem ó-
rannsökuðu landi, þar sem hann hafi
sjálfur uppgötvað allt mögulegt, sem
landi með storma og hríðir um hásum-
ar, með ógurlegum eyðimörkum (sem
hann hafi líka uppgötvað) og hafi hann
á öllum þessum stöðum komið fyrstur
allra mcnnakra manna. Til þess að
„punta uppá“ skemtiskrána átti þar að
verða islenskur söngur . . . . en sænski
kórinn í París söng þar .... sænsk
lög!!!! Aumingja ísland!“
Sókn og yörn.
Hr. Sigurður Hjörleifsson, ritstjóri
og fjármálanefndarmaðnr, lætur þess
getið í ísafold, að skýrsla sú, er Iug-
ólfur flutti um kolaeinokunar-fyrirlest-
ur hans, hafi verið röng í mörgum st-
riðum, og sé hún því að engu hafandi.
Yér »kulum ekki »ynja fyrir það, að
tiðindam&ður vor kunni að hafa tekið
raDgt eftir eiuhverju í fyrirleatri hr.
Sig. Hjör.; þó hyggium vér, að i flest-
um aðalatriðunum *é rétt akýrt frá,
þar sem skýrslu tíðindamanns Ingólf*
ber víðast saman við þær frásagnir um
fyrirlesturinn. er os» hsfa borist úr
annari átt. En sé hér eitthvað máium
blaudað, er vissulega ekki hægt að á-
saka Ingólf um það, þar sem oss var
ekki gefinn kostur á að heyra fyrír-
lesturinn, og var því meinað að dæma
um hvað rétt var hermt og hvað ekki.
Hr. Sig. Hjör. kveðst ekki hafa ráð-
ið því, hverir væri boðnir á fyrirle»t-
urinn og hverir ekki, og sé Iagólfi
kunnngt um það. Ekkí er þetta síðar-
nefnda þó rétt til getið, því það vi»s-
nm vér ekki, að hr. Sig. Hjör. væri
»vo lítill ráðamaður í flokki Sjálfstæðis-
manna, að hann fengi ekki ráðið því,
ef hann viidi, að þeim manni eða mönn-
um væri boðið að hlýða á mál hans, er
hann viidi á einhvern hátt hrakyrða.
En ef svo er — og má vafalaust gera
ráð fyrir að það sé satt, er hann segir
það sjálfar — þá hefðum vér talið rétt-
ara og prúðmaTjnlegra af honum að
leggja bönd á tilhneygiugar sinar og stilla
sig um að breyta úr sér »taðlausum
Goodtemplara fúkyrðum i garð fjarver-
andi manns. Hefði houum vitanlega
verið það sæmst á alla lund. Ummæl-
in sjálf um blað vort, að það sé „mál-
gagn ofdrykkjunnar", eru þannig lög-
uð, að oss dettur ekki í hug, að eyða
orðum að þeim. Þau eru jafn réttmæt
og ef vér negðum, að hr. Sig. Hjör.
vildi berjast fyrir því, að ailir menn
eyðilegðu »ig á kaffidrykkju. En slík-
ar röksemdaleiðslur hafa hingað til
verið einkaréttur götustráka og aunara
heimskra þjóða — þar á meðal hinna
of*tækisfylstu Goodtemplararembinga. —
Vér efumst nú ekki um það, að ef hr.
Sig. Hjör. hugsar sig um, þá muni
hann ajá sig um hönd og hald* aér frá
því að ganga á þann einkarétt, avo
mikla virðingu má gera ráð fyrir að
hann bsri fyrir einkaréttinnm, ef hann
er sjáifum sér og prinsípum aínum sam-
kvæmur.
Hr. Sig. Hjör. þykist hafa unnið til
þakklátsemi vorrar fyrir það, að hann
skyldi gefa oss tækifæri til að minnast
enn á „aðaláhugamál“ vort, likræðuna
yfir Eyjólf ljóstoll. Ekki finnnm vér
oss þó neitt ofþyngda af þakklætistil-
finningu til hans fyrir það, og það hlýt-
ur hr. Sig. Hjör. að vita, að hingað til
höfum vér getað komist af án hans
bjálpar og höfum rætt ahugamál vor,
án þess að hann hafi gefið oss tilefni
eða tækifæri til þes», og eins er með
þetta, sem hann telur „aðaláhugamál“
vort. En fyrir annað erum vér hon-
um þakklátir; vér höfum hingað til lit-
ið svo á, að hr. Sig. Hjör. vildi frekar
ræða mál þau, er fyrir kynnu að koma,
með sanngirni og stillingu, énn flestir
aðrir stéttarbræður hans; vér höfðum
húist við, að hann royndi síður leggja
sig niður við að nota gífuryrði og út-
úrsnúninga að vopni, þfegar hann hefur
engin rök fram að færa. Þess vegna
höfðum vér ekki búist við af honum,
að hann myndi minnast á baráttu voia
gegn afskiftum kirkjunnar af bannmál-
inu á þann hátt, er hann hefur nú
gert. Vér höfðum búist við, að hann
væri hingað kominn til bæjarins, til að
liœkka „niveauið“ í íslenskri blaða-
mensku og pólitík, en ekki til að lækka
það. Vér þykjumst nú sjá, að þetta
hafi einungis verið misskilningur vor;
vér þykjumst nú sjá, að hann sé af
sama sauðahúsinu og þeir hinir, og eng-
inn sá forystusauður, sem líklegur sé
til að finna nýjar, sléttari né beinni
leiðir í íslenskri blaðamensku, en hing-
að til hafa verið farnar. Og fyrir það
erum vér honum þakklátir, að hann
leiðrétti nú þennan misskilning vorn.
Það er betra að vita rétt en hyggja
rangt.
Ólympísku leikirnir.
í ár verða Olympisku leikirnir
haldnir i Stokkhólmi, og standa yfir
dagana 29. júní til 22. júlí. Síðast voru
þeir haldnir í London, einsog menn muna.
Haf$ nú íslenskir íþróttamenD haft
allmikinn undirbúning, og er í ráði
að einir 7 þeirra fari til Stokkhólms
til að sýna þar |list sína. Mun aðallega
vera svo til ætlast, að þeir sýni þar ís-
lenska glímu. Þessir eru helst nefnd-
ir til fararinnar: Sigurjón Pétursson
glímukonungur íslands, Hallgr. Bene-
diktsson, Axel Kristjánsson, Guðm. Kr.
Guðmundsson Magnús Tómasson og Hall-
dór Hansen og eru þetta allt glímu-
menn. Ennfremur mun í ráði að hr,
Jón Halldórsson bankaritari fari til
leikanna, og ætlar hann þá að reyna
þar kapphlanp. Hefur hann aðallega
lagt stund á þá íþrótt.
Mun Island fá að taka þátt, íleikun-
um »em sérstök þjóð með sérstöku merki,
og má því búast við að íþróttamöunum
vorum verði veitt þar eftirtekt engu síð-
ur en fulltrúum aunara þjóða. Er það því
mikils um vert fyrir oss, að þangað
verði sendir vasklegir og prúðmannleg-
ír menn, *em líklegir séu til að gera
Iandi voru frekar aóma enn hitt, ann-
ar» væri betur heima setið. Alhr þess-
ir menn, sem nú hafa verið nefndir til
fararinnar, eru vel þektir íþróttamenn
hér heima fyrir og menn, »em bera má
það traust til, að ekki verði þjóð vorri
til neins vansa hvar »em er; væri það
því óskandi, að úr því yrði að þeir
gætu farið í Stokkhólmsför þessa allfr
»aman. Það gerir minna til þótt sú
»veit sé fámenn, sem héðan fer, ef þeir
fáu eru vel valdir, sem fara, og það
má óhætt fullyrða um þessa menn.
Ólympísku leikarnir eru æfagamlir;
voruþeir upphaflega háðir tilheiðurs Seifi
Grikkjaguði, í Olympíu í héraðinu Elis á
Grikklandi. Yar þá friður um alt Grikk-
land meðan á leikunum stóð, hvernig sem
annar* var ástatt í landinu. Var þar háð
kapphlaup, kappakstur í léttum tvíhjóla
vögnum, spjótkast, disko»-kast og glím-
ur. Var þetta hin mesta hátíð og
streymdi víðsvegar að múgur og marg-
menni til að horfa á leikana; þó máttu
þar aðein* koma frjálsbornir menn og
kvennfólk alls ekki. Stóðu hátiðahöldin
yfir í 5 daga. Sigurvegarinn var heiðr-
aður á margvíslega lund. Var honum
færð pálmaviðargrein að sigurlaunum
og stundum líka gripir, t. d. sverð, spjót,
eða þvílíkt. Voru leikarnir haldnir með
þessum hætti 4. hvert ár alt þangað til
árið 394 eftir Krists burð, er Þeódósí-
us afnam þá.
Það er fyrst nú á seinni árum, að
farið er að reisa við Olympiiku leikana,
og þá vítanlega í nokkuð annari mynd
en áður var; mun það fyrst hafa verið
í Aþennborg árið 1896, að leikarnir
voru háðir á ný. En nú eru þeir haldn-
ir fjórðahvert ár, og á sínum *taðnum í
hvert sinn. En þetta er annað árið, sem
íslendingar taka þátt í þeim.
Mannskaðasamskotin.
Danska blaðið „Berlingske Tidende“
símaði fyrir nokkrum dögum til versl-
unarinnar „Edinborg“ 1000 krónur til
samskotanna handa aðstandendnmþeirra,
sem drukknnðu á fiskiskipinu „Geir“.
Verslunin „Edinborg“ hefur sjálf gefið
2000 krónur til samskotanna; og maður
einD, »em ekki vill láta nafns síns við
getið, hefur gefið 1000 krónur; og enn
hafa margir aðrir látið fé af hendi rakna
til hinna bágstöddu.
Er alt þetta að vísu mikil hjálp; en
þó vantar mikið á, að sú hjálp, sem
þegar er kunnugt um, sé nægileg, þegar
þess er gætt, hversu margir^hafa misst
einkastoð sína við þetta hörmulega »ly».
Minniit menn þe»s, að um 70 börn hafa
orðið föðurlaus við slysið.
Samskotalistar liggja frammi víðaveg-
ar um bæinn. Mnnið eftir þeim.
Samskotalisti Ingólfs Iiggur frammi á
skrifatofu Félagsprentsmiðjunnar Lauga-
veg 4, hjá hr. Halldóri Þórðarsyni prent-
smiðjueiganda. Þar er tekið á móti fé-
gjöfum manna allan daginn.
Hugsið til þeirra sem bágt eiga.
Bíó
hefir uudanfarna viku sýnt þætti úr lífi
þjófa og glæpamanua í Kaupmannahöfn,
langa mynd og fjölbreytilega. — En nú
eftir páskana ætlar Bió að sýna nýja
mynd, lengri en nokkru sinni áður og
heitir „Offar Mormónanna". Myndiu er
leikin af ágætum leikurum við Kaup-
mannahafnar leikhúsin. Aðalhlutverk-
in leika þau frú Clara Wieth og hr.
V. Psilander; frú Wieth er nú talin með
bestu leikkonum Dana; annars munu
Reykvíkingar muna eftir báðum þess-
um leikurum frá leiknum „Við dyr
fangel»isins“, sem sýndar var í Bíó í
vetur.
Leikur sá, sem nú verður sýndur í
Bíó, er til þe»s saminn, að sýna aðfar-
ir Mormóna hér í Evrópu er þeir reyna
til að tæla ungar og saklausar stúlkur
til að fara með sér til Utah (í Ameríku,
þar sem aðalaðsetur Mormóna er). Efni
leiksins er það, að ungur og laglegur
Mormónaprestur (hr. Psilander) kem»tí
kynni við unga, fallega »túlku í Kaup-
mannahöfn (frú Wieth). Haun telur
hana á að koma á samkomur Mormóna
í Khöfn, þar sem hann sjálfur á að
prédika, og á skömmum tíma hugtekur
hann stúlkuna svo, að hún fellst á, að
fylgja honum til Utah, og fer heiman-
að frá sér svo að enginn veit af. En
ekki líður á löngu áður en hana fer
að iðra þes*, er hún hefir gert, og áður
en þau leggja af stað yfir hafið biður
hún förunaut sinn að leyfa sér aðsnúa
við; en bann þverneitar henni um það,
og beitir illu við hana er hún reynir
til að láta heyra til sín og fá hjálp
annara á þann hátt.
En það er að segja af foreldrum
etúlkunnar og vandamönnnm, að þan
eru harmi lostin er þau sjá að stúlk-
an er horfin; komast þau nú brátt
eftir því, hvert hún hefir farið, og snúa