Ísfirðingur - 09.09.1898, Blaðsíða 2
2
framgengt. En hve erfitt er ekki að fá
menn til þess að trúa því og sannfærast
nm það. Menn halda oft, að þýðingar-
laust sé að hyrja, ef ekki er hægt að byrja
svo miklu nemi, en gæta þess ekki, að
»dropinn holar steininn*. Meiru skiftir, að
rétt og skynsamlega sé byrjað og með
einbeittum áhuga og fylgi, en að stórt spor
sé stígið i fyrstu og vigamannlega af stað
farið.
Þannig er því og varið með kaupfé-
lagsskapinn, engu síður en hvern annan
góðan félagsskap. Mest er undir þvi kom
ið, að grundvöllurinn, sem hann er byggð-
ur á, sé traustur. Hitt skiftir minnu þó
fjárframlög einstaklingsins séu ekki mikil
í fyrstu. Ef fyrirhyggja, ráðdeild og á-
hugi eru samfara, vaxa þau ótrúlega fljótt.
Vöxtur og afl hinna bresku kaupféiaga
sannar þetta best, og er það að þakka hinu
góða og heilbrigða verslunarfyrirkomulagi
þeirra. Gegnir því furðu, hve menn eru
seinir að átta sig á þessum gullvæga fé-
iagsskap.
Þó eru menn nú, á hinum síðustu tím-
um, dálítið farnir að opna augun, og nokkr-
ir hinir skarpskygnari sjá næstum skyrt
og greinilega, að fyrirkomuiag og verslun-
armáti pöntunarfélaganna íslensku er ó-
hafandi og enginn sannur gróðavegur.
Meðlimum pöntunarfélaganna safnast aldr-
ei arðberandi höfuðstóll eða innstæða, og
geta þeir því aldrei orðið fjáðir menn af
félagsskap þessum einum.
Svo er fyrir að þakka, að ekki eru ís-
firðingar öllum öðrum sjóndaprari, því
nokkrir menn hafa nú í sumar bundist
samtökum og sett á laggirni svo lítið kaup-
félag með alt öðru fyrirkomulagi en pönt-
unarfélögin. Hafa lög verið samin fyrir
félag þetta, og mun »ísfirðingur« flytja les
endum sínum lög þessi smátt og smátt,
dálítinn kafla i hverju nr. meðan þau
endast.
Ef lesendur blaðsins hafa gaman af að
eiga lögin og lesa þau í einu lagi verða
þeir að muna eftir því, að halda »ísfirð-
ing« saman.
Yms eru þau atriði í lögum þessum,.
er ekki verður hægt að fullnægja þegar í
stað, en það þótti hyggilegra að semja.
lögin svo fullkomin í fyrstu, að ekki þurfi
undir eins að breyta þeim og auka inn í
þau, þó félagið stækki að mun. En það'
er ósk og von stofnendanna, að menn sjái
sjálfir sinn eiginn hag og snúi sjer því eftir
mætti að þessum félagsskap, þegar þeir-
hafa kynt sjer lögin. Þó hver hafi ekki
miklu að miðla, þá er það þó víst, að-
»dropinn holar steininn*.
Til grundvallar fyrir lögum þessum,
sem hér ræðir um, er lagt frumvarp til
kaupfélags laga eftir Torfa skólastjóra í
Olafsdal, sem er prentað í Andv. 18. árg^
Heita þau: lög fyrir kaupfélag
ísafjarðarkaupstaðar og byrja á þessa
leið:
Nafn félagsins, takmörk
og skifting
1. gr. Félagið heitir kaupfélag ísa-
fjarðarkaupstaðar. — 2. gr. Félagið nær
yfir ísafjarðarkaupstað og nærliggandi
hreppa, er óska að eiga viðskifti við fé-
lagið á þessum aðal aðsetursstað félagsins.
— 3. gr. Félagið skiftist í deildir. Geta
10 menn eða fleiri myndað deild, eftir því
sem bezt hagar til og mönnum kemur
saman um.
Tilgangur félagsins.
4. gr. Tilgangur félagsins er. 1. Safna.
stofnsjóð (veltufé) með tillögum frá félags-
mönnum, til þess að geta ávalt keypt út-
lendan varning fyrir borgun út í hönd.
2. Safna varasjóði til að tryggja framtið