Landið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Landið - 01.09.1916, Qupperneq 2

Landið - 01.09.1916, Qupperneq 2
13» L A N D I'Ð kirkjunni, þar eð kenningar hennar ríði í bág við meginatriði evangelsk- fúterskra trúarbragða, eins og þjóð- kirkjan kenni þau í játningarritum sínum. Að lokum mælir hann mec skilnaði ríkis og kirkju, og telur það einu leiðina út úr ógöngum þeim, er íslenzka kirkjan sé komin í. Bendir og á, að formælendum nýju stefnunnar ætti að vera skiln- aðurinn einkar hugleikinn. Ymislegt er við bæklinginn og röksemdaleiðslu hans, sem athuga- vert er. Vér erum hvorki guðfræð- ingur né lögfræðingur, en viljum koma með nokkrar leikmannsat- huganir um efnið. — í kirkju vorri telur höf. tvo flokka. Annarsvegar g'ómlu stefn- una, sem þykist vera rígbundin vií játningarrit kirkjunnar, og hinsvegar nýju stefnuna, sem að sögn höf. er þríþætt, þ. e. „fagnaðarerindi nýju guðjrœðinnar, andatrúarinnar og guðspekinnar" (bls. 6 )r) Tvö atriði í þessu máU er vert að athuga. i. Eiga kenningar kirkjunnar altal' að standa í stað? Er það hugsan- legt eða æskilegt? Þessu mun höf. óefað svara ját- andi. Og enginn efi er á því, að hann og skoðanabræður hans þykj- ast kenna samkvæmt játningarrit- um kirkjunnar. En er þetta nú svo alveg víst? Er rétt-trúnaðarguðfræðin söm nú, sem fyrir 3—400 árum? Söm í öllum atriðum, því að ekki dugar að gera upp á milli aðalatriða og aukaatriða. Hvar á að setja tak- mörkin ? Höf. mun líklega kveða já við þessari spurningu. En það er bezt að athuga nokk- ur atriði í Ágsborgarjátningunni. í 9. gr. fyrra parts hennar er komizt þannig að orði um sklrnina (þýð. S. Melsteðs): „Um skírnina kennum vér, að hún sé nauðsynleg til sáluhjálpar, og að guðs náð frambjóðist í skírn- inni, og að börnin eigi að skíra, svo að þau framborin guði í skírn- inni, verði tekin til náðar hjá guði. Vér fyrirdæmum endurskírendur, sem hafna barnaskfrn, og fullyrða, að börnin verði hólpin án skírnar". Þetta er fullgreinilegt: Óskírðu börnin fara til helvítis. (Sbr. deilu um þetta efni í Kirkjublaðinu gamla). Vill sr. Sigurður skrifa undir þetta? Eða vill þorri gamalguð- fræðinga á Iandi voru gera það? Er ekki svo, að þeir hafi fylgzt með mannúðaranda tímans og af- neiti þessari kenningu, sem grimd- arlegri, þótt þeir ef til vill sjái sér ekki fært — sízt nú — að gera það með vörunum? í 17. gr. fyrra parts er svo að orði komizt: „Vér fyrirdæmum endurskírendur, sem kenna, að endir muni verða á hegningu fyrirdæmdra og djöfl- anna*. Og rétt áður í sömu gr.: „Enn fremur kennum vér, að Kristur muni birtast við enda heims .... og . . . . fyrirdæma óguðlega og djöflana, svo að þeir pínist eilíflega". Þetta mun sr. Sigurður sjálfsagt skrifa undir. En hvernig stendur á því, að miklu er nú hljóðara um þetta mikilvæga trúaratriði, en fyrir 300 árum? Gæti aldarandinn hafa haft nokkur áhrif á hina strang- lútersku kennendur? 1) Leturbreytingar gerðar hér. Sama er og að segja um sköp- unarsöguna og syndafallið. Er hugs- anlegt, að það standi í nokkru sambandi * við framfarir jarðfræð- innar? Það er alveg óhætt að segja það, að gamalguðfræðingar eru að mörgu Ieyti vaxnir upp úr játning- arritunum, þó að þeir ef til vill vilji ekki kannast við það, eða telji slíkt aukaatriði. En sem sagt, hvar eru takmörkin? Höf. telur upp nokkur trúarat- riði, þar sem „gamla stefnan* nú stendur á gundvelli játningarritanna, og kallar þau meginatriði (bls. 6). En það er aðeins á hans ábyrgð. Annars mun óhætt að segja, að „nýja stefnan" samþykkir flest eða alt í þessum trúarsetningum, er höf. telur upp, en hún leggur inn í pær nýjan skilning. Og í því sést lífsafl trúarsetninga, að eftir því, sem mannkyninu þroskast skiln- ingur, má leggja inn f þær æðri merking, en þá barnslegu merking, sem fullnægir fólki, lærðum og leikum á lægra þroskastigi. Af þessu leiðir, að höf. fer ekki með allskostar rétt mál, er hann Ieggur nýju stefnunni orð í munn (bls. 7 og 8) — eða þá, að ekki er slíkt Ginnungagap milli stefn- anna í þessum atriðum, sem hann virðist halda. Að því alveg sleptu, að sumt af því, sem hann Ieggur g'ómlu stefn unni í munn, er nærri því hneyksli fyrir eyrum flestra nú á tímum, svo sem það, að betrun og sálu- hjálp mannsins sé eing'óngu guðs verk. Ekki munu hinir neita því, að hún sé það, að nokkru leyti, en hvernig fer gamla stefnan að samríma sína kenning við eilífa fordæmingu? Þvf gerir guð þá ekki alla menn góða og sáiuhólpna? Nei, það er ekki til neins að ætla sér að skrúfa kirkjuna aftur í 16. öld. Ef það væri unt, þá myndi hún brátt verða tóm — að vonum. Og þessi átrúnaður á játningarritin er miklu verri en átrúnaðurinn á páfann. Hann dæmir vissum mönn- um á 16. öld vald yfir samvizku og trú vorri á 20. öldinni. Flestir munu sjá, hver fásinna slíkt er. Það er hvorki unt né æskilegt, að kirkjan sé steingjörfingur. Hún á-að vera lifandi tré, sem fullnægir sérstökum þörfum hverrar aldar og æ ber fegurri ávexti. Og áður en gömlu guðfræðing- arnir láta fordæminguna ríða að höfði manna nýju stefnunnar, fyrir það, að þeir sé ekki í samræmi við játningarritin, þá ætti þeir sjáifir að gera alvöru úr því, að prédika eftir oftnefndum ritum, án pess að ýella neitt úr, eða milda. Geri þeir það — og sjái ávextina. En er alveg óhugsandi, að báðar ^essar stefnur Iifi f eindrægni í kirkjunni? Geta þær ekki minzt jræðralagsins í Kristi, þótt ósáttar sé um ýmis atriði ? Og er pað ekki aðalatriðið, að reyna að útbreiða kenningar Jesú — frekar en kenn- inguna um Jesúi Hann spurði að minsta kosti ekki um trú manna á annað en lækninga- og hjálparkraft sinn. 2. Hitt atriðið er aðskilnaður ríkis og kirkju. Þar er fljótséð, að aezt á við, að rfkið skifti sér ekki af högum kirkjunnar, enda hefur það oft orðiðytil skaða. En þó er ýmislegt fleira, sem kemur til greina. Vér getum ekki farið níh- ara út í málið í þetta sinn, en að- eins látið það álit í ljósi, að vér telj- um það mj'óg varasamt, eins og nú á stendur, að fara út á þá skilnað- arbraut. Hyggjum það helzt mundu verða til þess 1. að draga fjölda landsmanna undan áhrifum kirkju og kristindóms, er vér teljum góð og ómissandi (hvort sem heldur er „gömul" eða „ný“ stefna) og — 2. geta orðið til þess, að lúterska kirkjan hér yrði um of einhliða og þröngsýn og fældi því frá sér ó- þarflega marga trúarþurfa, sem ella gæti fundið hvfld í skauti hennar. En þó að svo margt beri hér á milli, sem hér hefur sagt verið, þá má hver alvarlegur maður vera höf. þakklátur. Hann talar auðsjáanlega af sannfæringu og einlægri ást til kirkju og kristindóms (eins og hann skilur hvorttveggja) og verðskulda slfkar raddir ætíð, að heyrðar sé — ólíku frekar, en raddir sumra óvina trúarbragðanna, sem ætla að nota hina núverandi sundrung í kirkjunni til þess að spilla fyrir trúarbrögðum þjóðar vorrar. Og er undur, að „orþodoxían* skuli vilja gera bandalag við þann her. Af því mun aldrei Ieiða neitt gott fyrir trúarlff íslendinga. Kolalögin á Vesturlandi, eins og Danir ímynda sér að þau sé Er svo að sjá, sem þau nái yfir alla Vest- firðiI1 Von £insingen hershöfðingi, sem hefur yfirstjórn þýzku og austurrísku hersveitanna í Volhyníu í Rússlandi. Myndin teiknuð af orustumálaranum István Zador, kgl. ungverskum premier- lautinant f varaliðinu. Fréttir. Slys. Pdll Ey/ólfsson, bóndi í Sjávarhólum á Kjalarnesi, varð bráðkvaddur síðastl. laugardagsmorgun. Gekk niður að sjó, og kvaðst mundu brátt aftur koma, en fanst örendur í flæðarmáli síðar um daginn. Sá látni var vel látinn atorku- maður og efnaður vel. Er mikil eftir- sjá að honum. „Nyja Iand“ hefur keypt hr. Bjarni Magnússon verzlunarmaður. Brádkvnddnr varð nýlega í Kaupmannahöfn hr. Adolf Ldrusson (kaupmanns Lúðvígs- sonar). = éCessian z (t&isfisfrigi) ocj m 'HCUarBallar m fyrir kaupmenn, kanpfélög og útgerðarmenn. Leitið yður upplýsinga um verðið, áður en þér festið kaup annarstaðar, hjá <T. Æjarnasott, Sími 513. cRoæ ló%. Símn. cKBjarnason. Bændup tslandsl — Þið eruð að þreyfa á því, að mið- alda-búskaparlagið stenzt enga samkepni við tuttugustualdar sjávarút- veginn. — Helzta, ef ekki eina ráðið til viðreisnar, er notkun véla. Ekki aðeins skilvindu og saumavéla, heldur véla til allra nota — ásamt aflvélum — á hverju einasta heimili. — Og ég skal útvega ykkur allar þær vélar af beztu tegundum á lægstu verði, og við hvers eins hæfi, til kapps á móti hverjum sem er. Nokkurar birgðir af þess konar vélum eru vanalega hér fyrirliggj- andi í Rvík, Sendið mér línu, — það kostar svo lítið. — Og sendi ég yður þá nánari upplýsingar. Stefán B. Jónsson. Simi 521. Reykjavik. Box 315. Strand. Seglskipið „ Venus“ strandaði við Færeyjar 21. f. m. Ætlaði frá Khöfn til Eyrarbakka, en var tekið af ensku herskipi undir Meðallandi og átti að flytjast til Leirvíkur, en í þeim leið- angri strandaði skipið. Eftirtektaverð lagasetning. Síðasta alþingi samþykti lög, er heimiluðu ráðherra að leyfa íslands- banka að auka seðlaútgáfu sína til 1. des. 1917, þó eigi um hœrri upphæð, en eina miljón króna, „í mesta lagl“. Lög þessi eru út gefin 9. sept. 1915- Eftir vandlega íhugun hafði þing- ið komizt að þeirri ákveðnu niður- stöðu, að seðlaaukningin skyldi eigi meiri vera, en ein miljón króna, og á þessu hert með orð- unum „í mesta lagi“. Alt um það líður eigi lengra en til 29. sept., tuttugu dögum eftir útgáfu þessara laga, og fáum dög- um eftir þingslit, þá gerir ráðherra sér hægt um hönd og gefur út bráðabirgðalög, sem heimila að auka seðlaútgáfuna til janúarloka 1916 um aðra miljón, í viðbót við þá, sem þingið leyfði „í mesta Iagi“, til þess, eftir því sem stend- ur í ástæðunum fyrir þessum lög- um, „vegna viðskiftalffsins, að auka veltufé á íslandi, um stundarsakir", eins og slík seðlaviðbót um stund- arsakir sé nokkur aukning á veltufé. Svo mikla fyrirlitning sýnir stjórn sú, er vér nú höfum, eindregnu og vandlega huguðu ákvæði alþingis um það, hvað aukningin skyldi vera „í mesta lagi“. En ekki er alt búið með þessu. Bankinn átti að hafa innleyst alla þessa seðlaviðbót fyrir janúar- lok. En 18. maf koma út önnur bráðabirgðalög, sem heimila bank- anum, á ný, að auka seðlaútgáf- una, ekki um eina miljón, heldur ótakmarkað, „eftir því, sem við- skiftaþörfin krefur", það er að segja sem bankinn sjálfur telur og vill láta hana krefja, og nú á það ekki, eftir því sem f ástæðunum stendur, að vera til að auka veltu- fé, heldur til að auka „gjaldmiðil" á íslandi. Það er þó ekki laust við, að kenni nokkurs einurðarleysis hjá ráðherra, að Iáta sjá, að hann hafi þannig að engu vald alþingis og skýlausan vilja þess, því að ekki hafa þessi bráðabirgðalög frá 18. maí komið f ljósbirtuna fyr en nú í ágústmánuði. Z. Heima — erlendis. Próf. Finnur Jónsson hefur ný- lega í Lögréttu farið nokkrum þann- ig löguðum orðum um spiritismann og sálarfræðislegar rannsóknir f sam- bandi við hann, að mér finst ekki ástæðulaust, að drepa í samanburð- arskyni Iftilsháttar á afstöðu ment- aðra andstæðinga málefnisins er- lendis og hér heima. Tek ég fram, að með „erlendis" á ég við meðal hinna enskumælandi þjóða. Því eðlilegast er, að leggja mesta á- herzlu á, hvernig mentamenn þar líta á þetta mál. Því bæði er það, að afstaða þessara fjölmennu for- gönguþjóða hefur mesta þýðing, og svo er langmést mark takandi á henni, af þeirri ástæðu, að í þeim löndum hafa mestar rannsóknir farið fram á þessu sviði og um lengstan tfma. Það er talið að spiritisminn hefji göngu sfna árið 1848 f Bandaríkj- unum („Höggin í Hydesville)", og er það Ifka rétt að því leyti, sem þá hóýust almennar tilraunir til að koma á sambandi við framliðna

x

Landið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landið
https://timarit.is/publication/194

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.