Lögrétta - 14.03.1906, Page 3
LÖGRJETTA.
47
ísland erlendis.
Það er sagt hjer, að dr. Valtýr
Guðmundsson sje í þann veginn
að selja »Eimreiðina« sr. Hafsteini
Pjeturssyni.
»Heimskringla« frá 8. f. m. skýrir
frá því, að Sigurður Sigvaldason
frá Búastöðum í Vopnafirði hafi
sent sjer peningagjöf, 100 dollara
(o: 375 kr.), sem fara eigi til holds-
veikraspítalans í Laugarnesi.
Frá Khöfn er skrifað 2. þ. m.:
»»Extrablaðið« liefur, eins og jeg
lief áður getið um, verið að spyrja
hina og þessa um hina svo köll-
uðu »Þjóðveldishreifingu« á íslandi.
»Pólitiken« hefur spurt bæði Hannes
ráðherra Hafstein og Finn prófessor
Jónsson um þétta, en þeir gert lítið
úr, eins og við mátti búast. Skrítið
er það, að það virðist eins og dr.
Valtýr, sem þó er andstæður öllu
slíku, styðji menn í þeirri trú hjer
í Danmörku, að þess háttar hreyf-
ing sje til á íslandi, og að hún sje
risin af óánægju yfir aðgerðum okk-
ar núverandi stjórnar.
Prófessor Finnur talaði nýlega
um Island og Danmörku í Stúd-
entasamkundunni og hefur verið
skýrt frá því sem þar fór fram i
»Akademisk Foreningsblad«.
Annars mun all þetta uppþot
stafa frá fáeinum stúdentum hjer
og nokkrum Dönum og Norðmönn-
um, sem lítt þekkja til, en nóg til
þess að misskilja«.
íslendingar í Khöfn sendu silfur-
sveig á kistu Kristjáns konungs IX.,
en ekki blómsveig, eins og áðurer
sagt hjer í blaðinu að ráðgert hafi
verið.
r
Utlendar frjettir.
Nýja stjórnin enska hefur lýst
yfir, að hún ætli að veita Transwaal
og ó raníuríki fullkomna sjálfstjórn
innan enska ríkisins. Mótstöðu-
flokkur stjórnarinnar ámælir henni
harðlega fyrir þetta og segir, að
það verði til þess, að Suður-Afríka
rífi sig lausa undan yfirráðum Eng-
lands. Milner lávarður, sem fyrir
skömmu var landstjóri í Suður-
Afríku, mælir í efri málstofunni
fastlega gegn sjálfstjórn Búa.
Frönsk blöð hafa eftir hinum
fræga lækni, prófessor Behring, að
hann liafi fundið efni til þess að
bólusetja börn með gegn berkla-
veiki.
Sem betur fer, varð mannskað-
inn í Noregi ekki eins gífurlegur og
út leit fyrir, eftir fregninni í síðasta
blaði, Allmargir bátar brotnuðu,
en menn fórust ekki nema 25.
Það segja síðustu blöð frá út-
löndum, að engar sættir muni tak-
ast á fundinum í Álgeciras. Ráð-
gert að honum yrði slitið í gær.
frá fjallatindum til fiskimiða.
Frá Húsavik er skrifað 17. febr.:
„Tíð umhleypingasöm og óstilt mjög.
Gengur erfitt með staura-akstur; einir
6 staurar eru komnir fram i Geita-
fell af því, sem Jón í Reykjahlíð átti
að sjá um; svo ekki eru allir von-
lausir um, að þeir komist eigi á rjetta
staði á þessu ári“—.
Úr Mývatnssveit er skrifað 17. febr.:
„Verstu veður oftast allan Þorr-
ann, með frosti og fannkomu. Frost-
ið alt að 20 stig, mest 22 stig —
12. febr. Eins og stendur, kemst
enginn neitt íyrir ótíð og ófærð“.
„— Kaupfjelagsfundurinn var, eins
og til stóð, dagana 29,-31. jan. í
Þinghúsi Reykdæla. Nærri heill dag-
ur gekk í sjerstakar umræður um
stjórn, starf og ástand fjelagsins og
var þar á margt minnst, þar á meðal
grein Guðm. á Sandi í „Norðurl." um
sniddugarðinn frosna.
Hinn 1. febrúar var svo haldið stjórn-
arbótar-afmæfi. Fundarmenn K. P.
alfir 1 ar við, og svo Reykdælir og Lax-
dælir. Fundurinn þótti skemtilegur;
hann stóð frá kl. 12 á hád. til kl. 11
um kvöldið. Skemtanir: Ræður, söng-
ur, glimur, — og svo kaffidrykkjan.
Hin pólitiska „Stemniug" fundar-
ins var einlæg og góð.
Ræður hjeldu: Hólmgeir í Vallna-
koti, Steingrímur sýslum., Pjetur á
Gautlöndum, Sigurður í Felli, sr. Helgi,
Ingólfur læknir, Jón i Múla, Jón Ólafs-
son, Einarsst., Sigurður Sigfússon sölu-
stjóri, Hallgrímur Þorbergsson, Sig.
Jónsson o. 11. “
Úr Miðfirði er skrifað 28. febr.:
„Tíðin er fremur góð, yfir höfuð mjög
vægt vetrarfar og hagi nægur hjer um
slóðir. Og heppnir eru stauraflutn-
ingamennirnir með það, að dráttar-
færi er ágætt, enda held jeg þeim
gangi öllum vel hjer nærlendis. Jeg
sá í vikunni sem leið til Jóhanns í
Sveinatungu fram Hrútafjarðará og
gekk allvel að sjá.
A Hrútafjarðarhálsinum hefurstaura-
flutnineurinn gengið ágætlega, enda
fylgist þar alt að, dugnaður þeirra fje-
laga, valdir hestar og góð meðferð á
þeim. Sjerstaklega voru tveir hestar
Guðmundar bónda Theódórssonar á
Reykjum gljáandi eiits og ígróauda,
og dást allir að þeim, sem sjá þá.
Svo langt er nú komið flutningnum
á svæðinu frá Hrútafjarðará að Mið-
fjarðará, að þeir, sem verkið vinna,
sjá sig hafa góðan hag af því, sem
betur fer“.
Úr Steingrímsfiiði erskrifað 21.f. m.:
„Tiðarfar hefur verið mjög gott í
vetur og með þvi að heyatli var góð-
ur frá sumrinu, þá er útiit fyrir, að
ekki skorti fóður, ef vorið verður ekki
því harðara. Einhver hafíshroði hafði
komið upp undir Trjekyllisvik í norð-
anhreti, sem var hjer 5.—10. þ. m.;
hafði hann svo færst frá aftur og
norður með i suðaustanvindi, sem þá
gerði og haldist hefir öðruhvoru síð-
an. — Heilsufar manna alment mjög
gótt, og engir nafnkendir dánir.
Hagur almennings allgóður vegna
hins háa verðs á flestum íslenkum
verslunarvörum. Skuldir því með
minsta móti á nýjári. Nægar vöru-
birgðir í söludeild verslunarfjelags
Steingrimsfjarðar á Hólmavík. Alls-
laust í verslun R. P. Riis, en von
kvað vera á miklum vörum til þeirr-
ar verslunar með Vestu 19. mars, en
þangað til verða menn að neyðast til
að skifta við sína eigin verslun, sölu-
deildina, enda voru teknar út vörur
fyrir um 3000 kr. i henni á einum
degi um miðjan janúar.
Pófitikin liggur í dái, og minka
held jeg sje farin óánægjan með rit-
simann og tollhækkunina, enda er
ekki mikil ástæða til að gera veður
úr henni enn, þar sem flestar hinar
tollskyldu vörur hafa verið seldar með
sama verði og áður. Annars munu
margir þykjast illa blektir af Þjóð-
ræðisfjelaginu, þegar verið var að
ginna þá til að skrifa undir vitleys-
urnar í sumar, enda mundi reynast
torveldara. að fá þá til að undirskrifa
slikt nú“.
„Norðri“ flytur (i 5. tbl.) skýrslu
um þilskipaafla við Eyjafjörð siðastl.
ár. Þaðan hafa vorið gerð út 36 þil-
skip til þorskveiða, sildveiða og há-
kárlaveiða. Flest þessara skipa eru
litil, hið stærsta rúmar 70 smálestir,
en hið minsta tæpar 10. Tala skip-
verja samtals var 393, en áætlað verð
als aflans er nál. 220 þús. kr. Er
þá skipp. af fiski til jafnaðar 50 kr.,
sildartunnan 7 kr. og lifrartunnan 13
kr. 9 af skipunum hafa eingöngu
stundað hákarlaveiðar, 3 hákarlaveið-
ar og síldveiðar, hin þorskveiðar og
sildveiðar. Þorskaflinn nemur sam-
tals nál. 96 þús. kr-, síldveiðin rúml.
63 þús. og hákarlaveiðin rúml. 60 þús.
kr. — Veiðistöðvar þessara skipa eru
aðallega fyrir norðan land. Þó hafa
nokkur þeirra einnig rekið veiðar við
Vesturland. Hákarlaskipin hafa afl-
að mest á Strandagrunni, en sildin
er langmest veidd i reknet út af
Siglufirði.
I. þ. m. 'njeldu Akureyrarbúar fjöl-
menna gleðisamkomu til minningar
um stjórnarbótina. Voru þar ræðu-
höld og mælti Hjaltalin skólast.j. fyrir
minni konungs, Guðl. bæjarfógeti fyrir
minni íslands, M. Kr. alþm. fyrir minni
stjórnarinnar og Frb. Steinss. bóksali
fyrir minni Akureyrar. Milli þessa
skemti söugfjelagið „Hekla“.
28 námsmeyja.r ern i vetur í kvenna-
skólanum á Akureyri.
Málfundafjelag stofnuðu Húnvetn-
ingar í fyrra vetur og eru nú fjelags-
menn þar um 50.
„Otto Wathne" heitir hið nýja
skip. er fjel. O. W. Erf. heíur latið
byggja til ferðanna milli Austurlands
og útlanda.
Seint í janúar í vetur kviknaði í
töðuhlöðu á Bakka í Svarfaðardal og
brann taðan öll. Hafði vinnumaður
farið þar óvarlega með Ijós.
J. V. Hafsteen konsúll á Oddeyri
hefur leigt gufuskip til síldveiða næsta
sumar og er von á því þangaðíjúlí-
byrjun. Stóra bryggju ætlar hann að
láta gera við Oddeýrartangann i við-
bót við þá sem þar er nú.
Nemendur á Hólaskóla eru í vetur
um 50.
„Skjaldborg“ heitir fjelag, sem ný-
st.ofnað er á Akureyri, eitthvað í ætt
við þjóðræðisfjelagið hjer.
Thor E. Tuliníus stórkaupro. hefur
nýlega geflð timbur, 7—800 kr. virði,
til sjúkraskýlisins á Brekku i Fnjóska-
dal.
16. jan. síðastl. fórust tveir hestar
í snjóflóði í Súgnndafirði, eign Guðm.
Ásgrímssonar bónda á Gelti.
„Aftanskinið“ heitir smáblað, sem
nýfarið er að koma út á ísafirði, líkt
að efni „Nýja íslandi“ hjer.
Hjeraðshátíð ráðgera Eyfirðingar
að halda á Akureyri næsta sumar.
Þar á þá meðal annars að fara fram
iðnaðarsýning.
Með styrk frá Búnaðarfjelagi ís-
lands eru nú 3 menn hjeðan af landi
að læra slátrun o. fl. i Danmörku: "
1. Tómas Tómasson úr ísafjarðarsýslu.
2. Ingiinar Sigurðsson frá Draflastöð-
um í Fnjóskadal.
3. Vigfús Guttormsson frá Geitagerði
í Norður-Múlasýslu.
Um Bjarnarnessprestakall sækja sr.
Ben. Eyjólfsson í Berufirði og sr. Jón
Jóhannessen á Sandfelli.
Eyfirðingar ætla að auka hjá sjer
vjelabátaútgerð að stórum munísum-
ar komandi. Hafa þeir pantað að
minsta kosti 60 nýja vjelabáta.
Afli var sagður ágætur í Eyrar-
bakkaflóanum nú fyrir síðustu helgi.
Botnvörpuskipið Southcoats frá Hull,
skipst. Thomas Wilson, strandaði 13.
febr. á Fellsfjöru, austarlega á Breiða-
merkursandi. Öll skipshöfnin, 13
manns, komst heil á húfi að Tví-
skerjum. Sýslumaður gerir í brjefi
frá 19. febr. ráð fyrir, að láta flytja
skipshöfnina til Djúpavogs i vegfyrir
Vestu.
Annað botnvörpuskip, Wurtemburg
frá Bremerhafen, strandaði á Svína-
fellsfjöru á Skeiðarársandi, vestan-
megin við Ingólfshöfða. Skipverjar,
13 manns, komust allir til lands eft-
ir mikla hrakninga, en hefðu, að því
er þeir sjálfir segja, án efa orðið úti
þar á sandinum, ef strandmannaskýli
Thomsens konsúls hefði eigi orðið
þeim til hjargar. Fyrstu nóttina lágu
þeir úti, en náðu skýlinu næsta dag,
kl. 5 síðd., og voru þá orðnir mjög
illa til reika, tveir af þeim svo mátt-
lausir, að þeir gátu ekki gengið. En
mjög vel láta þeir yfir útbúnaði skýl-
lsins. Þar biðu þeirra uppbúin rúm,
ljósáhöld, vistir, þur sokkaplögg o. s.
frv. Þar voru og sleðar, bátur og
efni til að kynda af vita. Enn frem-
ur leiðbeiningar á ýmsum tungumál-
um, og eftir fyrirsögn þeirra hjeldu
skipsbrotsmenn kyriu fyrir í húsinu.
Kvöldið sem þeir komu þangað var
hríðarbylur og því ónýtt að kynda
vita. en næsta kvöld gerðu þeir það.
Öræfamenn höfðu þá þegar orðið varir
við strandið og komu þaðan menn
til skýlisins kl. 11 um kvöldið. Dag-
inn eftir voru skipverjar fluttir upp í
Fljótshverfi og voru þeir þá allir
hraustir og óskemdir. Hingað suður
komu þeir kvöldið 8. þ. m. og voru
fyrir flutningnum hingað Stefán póst-
ur Þorvaldsson frá Kálfafellskoti og
Jón Sfeingrímsson frá Rauðabergi.
Það gefur að skilja, að skipbrots-
mennirnir eruThomsen konsúl þakklát-
ir fyrir strandmannaskýlið og allan hinn
góða útbúnað þar, sem orðið hefur
til þess að írelsa líf og heilsu þeirra
allra.