Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 26.09.1906, Síða 1

Lögrétta - 26.09.1906, Síða 1
LOGRJETTA . Ritstjóri: PORSTEINN GÍSLASON, Pingholtsstræti 17. J46. Reykjavík 36. september 1906. I. árg. sCr H ThA Thomsen- HAFNARSTR' 1718 1920 2U2-KOLAS 1-2' LÆKJAKT-1-2 'ffinólasöluÓQÍlóin er í Hafnarstræti 18 (Nýhöfn). Þar fást bestir íslenskir vindlar, bæði í stórkaupum og smá- kaupum. Þar fást bestir útlendir vindlar, jafnvel ekta Havanna. Þar fæst alt reyktóbak, bæði i langar og stuttar pípur, danskt, enskl, hollenskt o. s. frv. Þar fást cigarettur, ótal tegundir. Þar fæst rjól í bitum og skorið. Þar fæst munntóbak í smápökk- um og stærri sölu. Þar fást pípur, munnstykki, tó- baksdósir o. s. frv. f sambandi við þessa deild er Vindlaverksm i ðjan, sem er í Kolasundi 1. Vindlarnir eru búnir til úr besta efni, sem hægt er að fá í Hav- anna, Brasilíu, Java og Sumatra. Verk og allur útbúnaður mjög vandaður. Vindlarnir eru vel þurkaðir, bragðgóðir, fallegir og ódýrir. Verksmiðjan bætir stöðugt við sig n^'jum formum og einkennis- miðum eftir nýjustu tísku. Einn- ið gerir hún ávall nýjar tilraunir með að bæta gæði og blöndun tóbaksins. Bókasafnshúsið nýja. Hornsteinninn var lagður, eins og til stóð, sunnudaginn 23. þ. m. Athöfnin hófst kl. 4 síðd. og var þá tjöldi manna saman kominn við húsgrunninn. Veður var ekki sem best, í'egnþrungið loft og allhvass vindur á sunnan. Stór pallur var reistur þar sem fordyr hússins eiga að vera. Þar var ráðherrann og frú hans, landritari, forsetar þings- ins, byggingarnefnd hússins og byggingameistarinn. Fólkið skip- aði sjer flest á götuna framan við húsið. Þar var útbýtt nýju kvæði eftir Þorstein Erlingsson og það sungið af söngflokki, sem Brynjólf- ur Þorláksson stýrði. Síðasta er- indið hljóðar svo: Nú finnur vor mentadís hækka sinn hag úr húminu’ og kreppunni í bænum, því hjer leggur úland nú hornstein í dag að höllinni’ á vellinum grænum, og hjer geta landið og hafið mætst og hamingjudraumarnir allir rætst. Síðan tók ráðherrann til máls og tlutti ræðu þá sem hjer fer á eftir. leirvöru- og járnvöruíeilö verslunarinnar €öinborgar, Ijajnarstræti 12, hefur mestar og bestar birgðir af alskonar húsgögnum úr járni og leir, hverju nafni sem nefnast, og margt fleira, alt mjög ódýrt. Hvar fást t. d. góð bollapör á 10 a. annarstaðar. Lampar: hanglampar, bordlampar, vegglampar, náttlampar aí öllum stærðum og tegundum. Spyrjiö eftii* verðinu og |>;i er enginn efl ;í, að .yönr líst best á að kaupa þar. Ræða ráðherrans. „Háttvirta sanikoma! „Hálfnað er verk þá hafið er“, segir gamalt máltæki. Það er svo jafnan um öll nauðsynjamál og góð fyrirtæki, að aðalerfiðleikarnir eru í byrjuninni, enda „varðar mest til allra orða, að undirstaðan rjett sje fundin". En sje undirstaðan fundin og hyrn- ingarsteinninn lagður í fullri meðvit- und um tilgang og takmark, í ein- lægum vilja og einbeittri trú á mál- efnið, þá lánast að jafnaði að Ijúka því sem eftir er. — I dag eigum vjer að leggja hyrn- ingarstein að mikilsvarðandi og merki- legu húsi, stórhýsi, er á að geyma fjársjóðu, sem vjer vonum, að eigi fyrir sjer að vaxa með vaxandi viðgangi og menning þessarar þjóð- ar, eins og safn það, sem þetta liús sjerstaklega er ætlað til að varð- veita, hefur eflst og aukist með vaxandi mannrænu, sjálfsdáð og sjálfstæði þjóðar vorrar á öldinni sem leið. Saga landsbókasafnsins er ekki löng. — Byrjun þess var sú, fyrir 88 árum síðan, árið 1818, að danskur maður, 23 ára gamall lögfræðiskandí- dat, Carl Christian Rafn, er síðar varð svo kunnur fræðimaður og ís- landsvinur, sneri sjer til Bókmentafje- lagsins með tillögu um, að stofna bóka- safn í Reykjavík, til þess að íslend- ingar ættu kost á að kynnast bók- um og mentum, sem þeim annars væri svo erfitt að ná til vegna fjar- lægðar landsins frá öðrum mentalönd- um. Hann hafði þegar safnað nokkr- um bókum í þessu skyni, og gaf þær um leið og hann bauðst til þess að vinna að efling safnsins eftir megni. Reykjavíkurdeild Bókmentafjelagsins átti nú brjefaskriftir um þetta mál við stiftsyfirvöldin, þau aftur við stjórnarvöld ríkisins, og árið 1821, 11. apríl, gaf konungur 840 rikisdali reiðu silfurs til þess að útbúa herbergi með hyllum og öðru, er til þurfti, á loftinu yfir dómkirkjunni hjer í Rvík. Þetta safn var nefnt Stiftsbókasafn. Arið 1826 var safnið orðið um 2000 bindi, og var þá gefin út reglugerð fyrir það, og útlánsreglur. Eftir það jókst safnið smátt og smátt, mest af gjöfum góðra manna, en að starfsemi þess hafi ekki aukist afarfljótt, sjest á því, að 30 árum síðar, 1856, eru árslaun bókavarðarins nýhækkuð úr 30 rdl. upp í 40 rdl. Árið 1868 bættust safninu 2,800 bindi frá kgl. bókasafninu í Kaupmh., auk gjafa frá F. A. Krieger ráðherra o. fl., sem of langt yrði upp að telja hjer. En af aimannafje hafði bóka- safnið engan styrk, alt þangað til Island fjekk sjálft fjárráð sín. En þeg- ar 1875, á hinu fyrsta löggjafarþingi, í fyrstu fjárlögum, sem alþingi samdi, var veitt fje til stiftsbókasafns- ins, að vísu ekki nema 400 kr. á ári, en það var þó byrjun, er markaði nýja stefnu. Safnið var þá enn geymt á kirkjuloftinu. En þegar alþingis- húsið var byggt, 1880, var stiftsbóka- safninu ætlað rúm þar, og á alþingi 1881 var tillagið til bókasafnsins fært upp í 2050 kr. á ári, og jafnframt afnumið notendatillagið, sem til þess tíma var 2 kr. á ári. Um það leyti var komið inn í safnið bókasafn Jóns Sigurðssonar, sem keypt var fyrir 25,000 kr. samkvæmt fjárveiting frá 1877, og er safnið upp frá þessu nefnt Landsbókasafn. Síðan hefur safnið aukist tiltölu- lega fljótt, og á nú um 50,000 bindi, eða fleiri þó, ef alt smælki ermeðtalið. Framlag landsjóðs hef- ur og aukist smám saman, og er eftir núgildandi fjárlögum 11,760 kr. á ári. — Síðan safnið fór að stækka hafa menn fundið mjög til þess, að hús- næði þess í alþingishúsinu er allsendis ónógt og ófullnægjandi; auk þess vantar landsskjalasafnið, sem stofnað var 1882, hentugt og nægilegt hús, og önnur söfn landsins eiga mjög erfitt uppdráttar vegna húsnæðisleys- is. Menn hafa því fundið, að bráð- nauðsynlegt var, að koma upp safna- byggingu, en útgjöldin hafa vaxið mönnum í augum, því nóg er til að vinna fyrir það fje, sem gjaldendur geta látið af hendi rakna til opin- berra þarfa. En á síðasta alþingi var það til bragðs tekið, að reyna að koma byggingunni upp án aukinna álaga, eða án þess að taka fje af árlegum skatttekjum landsjóðs f þessu skyni, með því að eins, að breyta einni eign í aðra, selja til bygginga þetta tún, Arnarhólstúnið, sem vjer nú stöndum á, og sem vegna framfara landsins og þessa bæjar sjerstaklega hefur aukist stórum að verðmæti, og stófna sjóð af andvirðinu, til bygg- ingar opinberra bygginga. Hin fyrsta bygging þessa sjóðs er þetta hús, sem hjer á að reisa. Er ætlast til, að húsið sje nú þegar bygt svo stórt, að nægi landsbóka- safninu og landsskjalasafninu í 50— 60 ár og einnig hinum söfnunum um hríð. Samkvæmt gamalli venju verð- ur lögð niður í grundvöll hússins stutt skýrsla um bygging þess. Hún er rituð á bókfell, sem ásamt gild- andi bankaseðlum og póstmerkjum verður sett í loftþjett blýhylki, og hljóðar skýrslan þannig : Hús þetta er bygt handa lands- bókasafni og landsskjalasafni Islands samkvœmt lögum um stofnun bygg- ingarsjóðs og bygging opinberra bygg- inga, staðfestum 20. dag októberm. 1905 og er hyrningarsteinninn lagð- ur á dánarafmœli Snorra Sturluson- ar 23. septemberm. 1906, á fyrsta rík- isstjórnarári Frederiks konungs hins VIII. Ráðherra: Hannes Hafstein. Landritari: Klemens Jónsson. Forsetar alþingis: Eiríkur Briem, Julius Havsteen, Magnús Stephensen. Byggingarnefnd, kosin af alþingi: Guðmundur Björnsson, Jón Jakobsson, Tryggvi Gunnarsson. Teikmngin gerð af: Magdahl Nielsen byggingameistara. Verkið framkvœmt af: Ijelaginu „ Völundur“. Umsjónarmaður við bygginguna: I. Kiörboe byggingameistari. Bókavörður landsbókasafnsins settur: Jón Jakobsson. Skjalavörður landsskjalasafnsins : Dr. Jón Porkelsson. Ætlast er til, að aukið sje við bygg- inguna eftir þörfum síðar. Ment er máttur. Sfðustu einkunnarorðin: Ment er máttur, verða höggvin inn í grunn- steininn, sem verður þannig fyrir komið, að hann sjest að innan úr kjallaranum. Á steininn verður og höggvið, að hann sje lagður á ár tíðardag Snorra Sturlusonar, snillings- ins snjalla, sem, eins og kunnugt er, ljest aðfaranótt þessa dags fyrir 665 árum. Nefndinni, sem aðstoðar stjórnina við bygginguna, þótti vel til fallið, að þessi athöfn færi fram einmitt þennan dag, því að vissulega er lífs- starf Snorra grundvöllur og hyrning- arsteinn undir mentafrægð og orðs- ti Islands, sem er þess fegursta fjöður enn fram á þennan dag, og vonin um, að sú stofnun, sem sjer- staklega er helguð fortíðar-, nútíðar-, og framtíðar-mentum þessa lands, megi koma að tilætluðu gagni með til- ætluðu magni, er óaðgreinanlega sam- einuð minning hans. Því fatt sann- ar öllu áþreifanlegar, hvílíkur máttur fylgir mentinni en það, hverja þýð- ingu þær mentir, sem Snorri Sturlu- son er fulltrúi fyrir og frömuður að, hafa haft fyrir hina íslensku þjóð, líf

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.