Lögrétta

Issue

Lögrétta - 14.11.1906, Page 3

Lögrétta - 14.11.1906, Page 3
L0GRJETTA. 211 fundinn, skýrði frá tilefni hans og stakk upp á, að Jón Magnússon skrif- stofustjóri væri kosinn fundarstjóri, og var svo gert; Asg. kaupm. Sig- urðss. var kosinn skrifari. Guðm. lækn- ir Björnsson talaði því næst alment um málið, gerði grein fyrir undir- búningi Oddfellovv-rjelagsins og gat þess að lokum, að fjelagsmenn hefðu þegar innanfjelags safnað fullum 1500 kr. til þessa fyrirtækis. Ræða hans kemur í næsta blaði „Lögr.". Guðm. læknir Magnússon, Einar rit- stjóri Hjörleifsson, Steingrímurlæknir Matthíasson, Jón ritstj. Ólafsson, Tr. Gunnarsson bankastj.og Þórhallur lekt- or Bjarnarson færðu Oddfellow-fjelag- inu þakkir fyrir dugnað þess og mæltu með fjelagsstofnun. Hannes Hafstein ráðherra ætlaði að koma á fundinn og mæla með fjelagsstofnun, en var þá veikur, og gat því ekki komið. Var svo, eftir tillögu, er síðasti ræðu- maður bar fram í nafni forgöngu- manna fyrirtækisins, kosin 12 manna skipulagsnefnd til að semja lög handa fjelaginu, og eru þessir menn í nefndinni: Ur Oddfellow ijelaginu : Asg. Sig- urðsson kaupm., B. Jónsson ritstj , Guðm. Björnsson læknir, Hjörtur Hjartarson trjesmiður, Kl. Jónsson landritari, Sighv. Bjarnarson bankastj. Utan Oddfellow-fjelagsins: Eir. Briem dócent, Guðm. Guðmundsson fátækrafulltr., Guðm. Magnússon lækn- ir, Matth. Þórðarson skipstjóri, M. Lund lyfsali og Ol. Olafsson fríkirkju- prestur. Skipulagsnefndin kom saman að fundinum loknum og kaus sjer for- mann, Kl. Jónsson landritara, skrif- ara, Björn Jónsson ritstj., og fjehirði, Sighv. Bjarnason bankastjóra. XaupjjelagshreyJingin austan fjalls. Eins og aður hefur verið skýrt frá í „Lögrjettu", var kosin nefnd manna á Þjórsárfundinum 8. jan. s. 1. til þess að íhuga og gera tillögur um kaup- fjelagsmál Sunnlendinga. Alit nefnd- atinnar hefur verið prentað og því út- býtt til athugunar. I áliti sínu gerir nefndin grein fyrir muninum á sam- eignarkaupfjelögum og þeim pönt- unarljelögum, sem tíðust hafa verið og eru hjer á landi. Munurinn er aðallega fólginn í þessum meginat- riðum, eftir því sem nefndinni farast orð : 1. Pöntunarfjelögin verða að kaupa allar vörur tyrir lánsfje, lána þær aftur út og eiga því alt af a hættu að bíða halla af vanskilum. — Kaupfjelögin aftur a móti leggja áhersluna á það, að hönd selji hendi í öllum viðskiftum. 2. Pöntunarfjelögin setja útsöluverð- ið á vörurnar svo lagt, sem ýtr- ast er mögulegt. Kaupfjelögin vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og selja vöruna með líku verði og kaupmenn, en úthýta síðan ágóðanum af versluninni í árs- lokin. 3. I pöntunarfjelögunum njóta nrenn þegar i stað als agóðans af vöru- kaupunum og verður hann jafn- óðum að eyðslueyri. Kaupfje- lögin leggja áherslu á, að hver tjelagsmaður leggi upp nokkuð af ágóðanum og safni sjerþann- ig nokkurskonar fasteign. Nefndin samdi einnig frumvarp til laga fyrir sameignar eða samvitinu- kaupfjelag og hafði til hliðsjónar lög útlendra kaupfjelaga. Nefndin ósk- aði eftir, að frumvarpið yrði rætt í hverjum hreppi í Árnessýslu. Rang- árvalla- og Vesturskaftaíellssýslu, og síðan kosnir fulltrúar til að mæta á fundi við Þjórsárbrú 26. okt. s. I. Annars lagði nefndin það til, að »Stokkseyrarfjelagið«, sem er elsta pöntunarfjelagið hjer sunnanlands, breytti lögum sínum í þá átt, er hún bendir á, og að það útvegaði sjer fleiri fjelaga. Hún gerði og ráðstaf- anir til þess, að á fundinum 26. okt. fengist vissa um undirtektir „Stokks- eyrarfjelagsins". Ætlaðist nefndin svo til, að á þeim fundi yrði tekin fulln- aðarákvörðun um málið. — Tillögur nefndarinnar munu hafa líkað vel yf- irleitt, og flestir töldu sjálfsagt, að Stokkseyrarfjelagið mundi fallast á málið og breyta lögum sínum í þá átt, er nefndin lagði til. Fundurinn var haldinn hinn ákveðna dag, en varð miklu fámennari en bú- ist var við. Mættu þar þó um 30 menn; en flestir þeirra, er sóttu fund- inn, mættu án þess að hafa verið kjörnir til þess Kjörnir fulltrúar voru fáir. Hefur það farist fyrir í flest- um hreppum að kjósa menn til þess að mæta fundinum, hverjum eða hverju sem það hefur verið að kenna. — Formaður nefndar'nnar, Eggert Benediktsson í Laugardælum, gat ekki mætt, og kom það sjer illa; hann var lasinn um það leyti. Sama var að segja um skrifara nefndarinnar, sjera Kjartan Helgason í Hruna, er einnig var forfallaður. Hinir nefnd- armennirnir mættu og ekki, hvað sem því hefur valdið. — Þá væntu menn, að formenn Stokkseyrarfjelags- ins mundu koma á fundinn; en það varð eigi, enda var annar þeirra (vara- maðurinn) Eggert Benediktsson for- tallaður eins og þegar er getið.— En fyrir hönd íormanns nefndarinnar mætti síra Ólafur|Sæmundsson í Hraun- gerði, er setti fundinn og gekst fyr- ir kosningu fundarstjóra og skrifara. Lýsti hann því yfir, eftir beiðni for- manns nefndarinnur, að Stokkseyrar- fjelagið gæti eigi eða vildi eigi breyta fyrirkomulagi sínu i þá átt, er nefnd- in hafði lagt til. — Vakti þetta tölu- verða óánægju á fundinum sem von var, því flestir höfðu gert sjer vonir um hið gagnstæða. Sumir hjeldu jafnvel, að þessar undirtektir Stokks- eyrarfjelagsins stöfuðu frá viðskiftum þess fjelags við umboðsmann sinn Zöllner; en það er næsta ósennilegt, einkum þegar þess er gætt, að nefnt fjelag er að öllu leyti óháð þessum umboðsmanni, eftir því sem vara- formaður fjelagsins, Eggert Bene- diktsson, lýsti yfir á nefndarfundinum í vor. Á fundinum kom það í Ijós, að í þessum sýslum (Árnessýslu og Rang- árvallasýslu) væri í undirbúningi stofn- un verslunarfjelags, eða kauptjelags, sem ætlaði sjer aðallega að hafa bækistöðu sína á Stokkseyri, og kaupa verslunarhús Olafs Árnasonar kaupmanns. Frá þessu fjelagi voru mættir 3 menn a fundinum, sem kosnir höfðu verið í því skyni. — í umræðunum, er urðu um kaupfjelags- málið, kom það ljóslega fram, að mönnum þótti fara best á því, að hjer væri komið á fót einn öflugn Jcaupfjelagi, og að þau fjelög sem nú eru sameini sig því. — En fund- urinu lagði áherslu á það, að þessi kaupfjelagsskapur væri í meginatriö■ unum sniðinn eftir frumvarpi nefnd- arinnar. Um þetta voru langflestir fundarmennir sammála og þar á með- al Ólafur Árnason, er lýsti því yfir, fyrir hönd sína og sinna fjelaga, að hann hefði ekkert verulegt við það að athuga. Á fundinum voru enn- fremur mættir allmargir fjelagar úr hlutafjelaginu „Heklu", setn er versl- unarfjelag, og hefur aðsetur á Eyrar- bakka. —- Virtust þeir einnig hlyntir sameiningit 1 verslunarefnum. Niðurstaðan á fundinum var sú, að eftirfylgjandi tillaga var borin upp og samþykt' „Fundurinn ályktar, að styðja hvern þann fjelagsskap í verslunarefnum, er fer sem næst því að fullnægja aðal- hugmyndinni í frumvarpi kaupfjelags- nefndarinnar frá 8. jan. 1906“. Kaupfjelagsmaður. Símskeyti til „Lögrjettu“. Khöfn S. nóv. Ráðaneytisbreyting í Noregi. Hægrimennirnir Hagerup Bull og Vinje hafa fengið lausn úr norska ráðaneytinu. 1 stað þeirra eru orðn- ir ráðherrar vinstrimennirnir Berpe, tjármálaráðherra, og Aarrestað, land- búnaðarráðherra. J'ingkosningar í Bandaríkjunum. Við kosningar til sambandsþings- ins í Bandaríkjunum hefur meiri hluti repúblikana þokast niður úrii2Í70. Kosningarjettur kvenna. Fyrir enska þingið hefur verið lagt frumvarp um kosningarjett kvenna. Rússneska þingið. Kosningar til þess hafa verið tak- markaðar. Kh'ófn IJ. nóv. Hákon konungur kom til Lundúna í gærkvöld. Búa-uppþot í Suður-Afríku. Reykjavik. Kirkjusöngvaætlar Brynjólfur Þor- láksson að byrja hjer í þessum mánuði. Nöngfjelag hefur Sigfús Ein- arsson stofnað hjer í haust. „Við höfum stofnað fjelagið", sagði hann, er „Lögr." spurði hann út í þetta mál, „í þeim tilgangi, að það full- nægi sem frekast er unt þeim kröf- um, er gerðar verða til góðrar söng- listar, en vitaskuld þarf bæði tima og æfingu þar til raddirnar eru sam- sungnar. Fyrsta samsönginn höld- um við þegar ofuriítið sljákkar tom- bólum og myndasýningum í Báru- húsinu. Þar verða sungin 3 lög eft- ir I. P. E. Hartmann og er eitt þeirra allstórt og fyrir sólórödd, biandaðar raddir undirspil, og heitir: Fyrir handan fjöllin. Stgr. Thorsteinsson hefur þýtt kvæðið". Annars nefndi hann ýms tónskald, er fjelagið ætlaði að syngja lög eítir, svo sem Goun- od, Lange-Múller. Grieg, Tschaikow- sky, (rússnenkt tónskald), Brahms og Wagner". Fyrsti samsöngurinn verð- ur nú á laugard. kemur, eftir því sem auglýst er annarsstaðar hjer í blaðinu. Iðunn. Farið er nú að reisa aft- ur úr rústum klæðaverksmiðjuna „Ið- unni" og á nú húsið að verða úr steini. Trúlofuð er Ásgeir Torfason efna- fræðingur og frk. Anna Ásmunds- dóttir. Páll Melsteð varð 94 ára í gær, ern og hress. Gullið. Byrjað er nú á verki í Vatnsmýrinni, að veita vatni frá þar sem bora á, og verður þar jafnframt gerð allmikil skál til vatnsbirgða, því við borunina eyðist c. 3/4 tn. af vatni a mínútu, til þess að skola hol- una og kæla borinn. Borinn verður knúður af gufuvjel. Rostgaard vjelastjóri fer væntan- lega utan með »Vestu« næsttil þess að taka á móti ahöldunum og búa sig undir að stjórna verkinu. Vænt- Safnað af Eyj. Guðmundss. Hvammi 50 kr., safn. af Guðm. Þórðars. fact., Gerðum 19 kr., Hallst. Bjarnas. Sólmundarhöfði 2 kr., S. Sig- urðss. Melkoti I kr., Gisli Einarss. Hliði 3 kr., Guðj. Tómass. Vinam. 5 kr., Benóný Jósefss. Háteig I kr., Bjartey Halldörsd. Hraunl I kr., Guðr. Jónsd. Hrauni I kr., Jóh. Jónsd. Hrauni I kr., safn. i Hvalfj.str.hr, af Bj. oddv. Bjarnas. Geitab. 58 kr., samsk. úr Miðn.hr. (safn. af hr. M. J. Bergmann) 75 kr. 40 a. Áður augl. 30,010 kr. 27 a. Samt. 30,227 kr. 67 a. Rvík ™/io — ’06. G. Zoéga. anlega verður svo byrjað á því jaín- skjótt og Rostgaard kemur heim aft- ur. nú um áramótin. Byggingarfjelag Reykjavíkur. Svo heitir hlutafjelag, setn stofnað var hjer í fyrrakvöld, 12. þ. m. Hluta- fje er 120 þús. og -að mestu leyti fengið. Stjórn fjelagsins hefur leyfi til að hækka hlutafjeð upp t 200 þús. Verksvið fjelagsins er, að taka að sjer að reisa hús úr steini og trje, reka timburverksmiðju og grjótgerð og versla með timbur og grjót. Fyrir stofnun fjelagsins hafa aðallega geng- ist: Thor Jensen kaupmaðnr, Eggert Claessen málaflutningsmaðitr og Bjarni Jónsson trjesmiður. I fjelaginu eru nú um 30 trjesmiðir og álíka margir steinsmiðir, og svo nokkrir aðrir. Stjórn er kosin: Thor Jensen, Eggert Claessen, Bjarni Jónsson, Stefán Egils- son múrsmiður og Jón Hafliðason steinsmiður. Lög fjelagsins voru samþykt á stofn- unar fundinum. Ábyrgðin er tak- mörkuð. Hlutir eru 100 kr., en einnig fjórðapartshlutir, aukahlutir kallaðir, 25 kr. „Vesta“ kom í nótt norðan um frá útlöndum, 7 dögum á eftir áætlun; hafði tafist vegna óstiltra veðra. Eftir henni er haft, að „Skálholt" sje ekki væntanlegt fyr en um helgi. Andar Sigurðar Triers. Ungur blaðamaður í Khöfn fjekk Sig. Trier, andatrúarpostula, nýlega til að ábyrgj- ast fyrir sig 200 kr. lán, en borgaði ekki í gjalddaga. svo að Trier varð að láta pen- ingana. I blaði sínu skýrir hann frá þessu og fer mörgum óvirðingarorðum um svik- arann. En merkilegt fanst honum, að for- sjónin skyldi leyfa annað eins og þetta. Hann sneri sjer þá til anda sinna og spurði, hvernig á því stæði. Þar fjekk hann lausn- ina á gátunni og er hún þessi: Fyr á tímurn var S. Trier rómverskur höfðingi, Marcus Claudius, en blaðamað- urinn svikuli var þá ríkur uppskafningur í Rómaborg, sonur leysingja eins þar. Einu sinni kernur þrælasölumaður til þeirra tveggja og býður þeirn kaup á ambáttum. Trier, þ. e. M. Claudíusi, lýst þar mjög vel á Gyðingastúlku stóra, fagra og svarthærða, en hefur ekki fje við hendina, af því að hann hefur þá tapað miklu á skipaútgerð og veðmálum á leikhúsinu. Uppskafning- urinn lánar honum þá fje til kaupanna. En M. Claudíus (Trier) svíkur hann um renturnar. Næst lendir þeim svo saman í Englandi mörgum öldum seinna og eru þeir þá báðir ungir drengir, Trier aðalsmanns- sonur, en hinn bóndason. Þá lenda þeir í þrætu, sem endar með áflogum. Nú hitt- ast þeir í þriðja sinni og hinn átti enn eftir að hefna sín. Trier endar þessa frásögn sína svo: „Eitt virðist mjer mega læra af sögu minni, og það er hinn mikli sannleikur í orðtakinu gamla: „Hefndin er drottins". Frá íjallatindum til fiskímiða. Jarðsbjálftar. Frá Akureyri er símritað IO. þ. m.: Aðfaranótt 9. jarðskjalftar hjer. 9 kippir, tveir all- snarpir. Tíðarfar agætt. Nnjól’ var a Akureyri í gær, en þó hláka. Aíli. Fr»á Akranesi og úr Grinda- vík aflaðist ágætlega siðastl. viku á færi. alt að 150 í hlut af vænurr. fiski

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.