Lögrétta - 01.05.1907, Síða 3
L0GRJETTA.
71
Lóðin er 30X30 álnir, húsið verður
l&lzXl^/z alin og stendur norðan
og vestan á lóðinni, með 5 álna bili
frá þeim hliðum, en sunnan við eru
12 álnir og austan við 10 álnir út
að lóðartakmörkunum. Inn í húsið
verður gengið frá austri og þar falleg
verönd, en önnur mót suðri 4x572
alin, opin, og verður gengið út í hana
úr daglegu stofunni, en uppi yflr ver-
öndinni verða svalir, er gang má út
á úr svefnherbergi á loftinu. Á suður-
gaflinum verða 2 stórir gluggar, en
á vesturhlið, sem snýr niður að Lauf-
ásvegi, 6 gluggar, 2 á kjallara, 2 á 1.
lofti og 2 á kvisti, sem er 7 X 6^/2 alin;
einnig sjer þar í gaflinn á veröndinni
sunnan á húsinu. Norðurgaflinn er
eins og suðurgaflinn að öðru en því,
að þar er skúr í staðinn fyrir ver-
öndina, og þar gengið út úr eldhús-
inu. Kjallari skiftist í 4 herbergi og
verður hann allur með steingólfi
og fægðum steinveggjum. A 1. lofti
verða 2 stofur: daglega stofan 7X7
áinir og borðstofa 7 X ð1/^ alin, eld-
hús 4X6 álnir og svo forstofa, skúr
og búr. Uppi er svefnherbergi 7X7
álnir, 2 barnaherbergi, hvort um sig
4X5x/2 alin, vinnukonuherbergi og
forstofa. Húsið verður mjög failegt
útlits og eins vandað að gerð og best
gerist hjer. Allur húsbúnaður á að
fylgja húsinu.
Þetta er nú komið inn í samskota-
sjóðinn til 'Ingólfsmyndarinnar:
Frá Iðnaðarmannafjelaginu . 2000 kr.
— D. Thomsen konsúl . . 500 —
— Ungmennafjel. Rvíkur . 200 —
— Kvenfjelaginu.......... 100 —
— Fjelagi á Akureyri . . . 300 —
Fyrir hlutaveltu........... 1300 —
Smágjafir.................. 200 —
Samt. 4600 —
Af þessu hafa Einari Jónssyni mynd-
höggvara verið sendar 2200 kr., hitt
ætla forstöðumennirnir að nægi til
þess að koma húsinu upp. Ætti þá
málinu með því að vera vel borgið.
Bankamál.
Kvartað hefur verið um að und-
anförnu, að fremur mundi þröngt
• búi hjá bönkunum, að því er
peningabirgðir snertir, enda bera
reikningar ogreikningságrip beggja
bankanna það með sjer, að alt
starfsfje þeirra er að mestu í út-
lánum, og þess utan eru þeir báð-
ir i skuldum við erlenda banka.
íslands banki hefur að visu eigi
nærri alla seðlafúlgu sína í veltu,
en það stafar af þvi, að innan-
landsviðskiftin eru eigi meiri en
svo, að hvergi nærri er þörf fyrir
alla seðlafúlguna, að viðhættum
seðlum landsbankans, og sje meira
gefið út af seðlum en viðskifta-
þörf þessi heimtar, streyma seðl-
arnir jafnharðan inn í bankana
aftur i skiftum fyrir gull, eða fyr-
ir ávísanir á útlönd, eða loks, að
seðlarnir eru sendir til útlanda til
innlausnar þar fyrir reikning bank-
ans, er gefið hefur þá út.
Nú eru menn sem óðast að ráð-
ast i ýms atvinnufyrirtæki, er út-
lieimta mikið lánsfje; erþví ]>ráð-
nauðsynlegt að bankarnir stöðvi
ekki um of útlán sín og hafi nægi-
legt starfsfj e, en óheppilegt að
ýmsu leyti, að hafa eigi slíkt starfs-
lje öðruvísi en að láni frá erlend-
um hönkum.
Hvort landsbankinn getur auk-
ið starfsfje sitt, vitum vjer eigi.
Aftur á móti kvað íslandsbanki
eiga kost á, að iæra út hlutafje
sitl, ef alþingi nú í sumar veitir
til þess samþykki sitt — en um
það mun varla þurfa að efast —
og hefur heyrst, að bankastjóra
við tjeðan banka, E. Schou, sem
er nýkominn frá útlöndum, hafi
tekist að fá tilboð um framlag á
2 miljónum króna í nýju hluta-
fje frá næsta nýjári og auk þess
allaðgengilegt tilboð um sölu á
nokkru af bankavaxtabrjefum
bankans.
Bæj arbryg-g-j an.
í Ingólfi 22. þ. m. hefur grein-
arhöfundur, sem kallar sig »bæj-
arvin» getið þess, að hjer sje að
myndast fjelag, sem ætli að taka
bæjarbryggjuna á leigu, til þess
að einoka hana, svo að hvorki
bæjarbúar nje aðkomumenn hati
aðgang að henni.
Frá þessu er eigi rjett skýrt.
Allir ferðamenn og bæjarbúar eiga
að hafa óhindraðan rjett til að
nota bryggjuna borgunarlaust til
alls nema til að flytja um hana
vörur, sem koma með skipum frá
útlöndum eða eiga að llytjast hjeð-
an þangað.
Gjaldið til hafnarsjóðsins, sem
boðið hefur verið, er aðallega ekki
fyrir bryggjuna, heldur fyrir járn-
braut, sporvagna og skýli yfir vör-
ur, sem ráðgert er að reisa, svo
þær þurfi ekki að liggja úti í rign-
ingu, eins og hingað til hefur við-
gengist.
Tilgangur þessa fyrirhugaða fje-
lags er sá, að koma lögun á þá
óheppilegu vöru-uppskipun, sem
verið hefur bænum til minkunar,
en ekki sá, að fjelagið vei’ði neitt
gi’óðafyi-ix-tæki. Ef »bæjarvinur-
inn« trúir því ekki, þágetur hann
átt kost á að eignasl hlut í þeim
ágóða, þvi að honum og öllum
öðrurn bæjax’búum er velkomið
að eignast »aktíu« í fyrirtækinu,
ef það verður stofnað. Það hef-
ur aldrei komið til oi’ða að stofna
fjelagið til gróða í'yrir ákveðna
menn, heldur með öllum, sem
vildu hjálpa tif að hi’inda vöruupp-
skipun lijer í beti’a horf.—Stofnun
þessa fjelags var til umræðu í vet-
ur á þrem fundum »Framfai’afje-
lagsins«, en fjell þar af þvi, að
fjelagsmenn voru hi’æddir um
fjártjón, og þox’ðu ekki að leggja
peninga sina i það.
Enginn þarf heldur að óttast
það, að »okrað« veiði með upp-
skipunargjaldið, þvi að það verð-
ur ákveðið með verðlagi, sem
bæiarstjórnin samþykkir, og lík-
lega vei’ður það líkt þvi sem verið
hefur.
Tr. Gunnarsson.
Fiskiskipið,, Georg“,
sem áður hefur verið minst á hjer í
blaðinu, er nú talið frá, og hefur þar
þá farist 21 maður. Skipið áttu þeir
í fjelagi Tr. Gunnarsson bankastj.,
Þorst. Þorsteinsson kaupm. og skip-
stjórinn. Það var 84 smál. að stærð,
virt á 18,000 kr., en vátrygt í Faxa-
flóatjelaginu fyrir 10,000 kr.
Þessir menn fórust á skipinu:
Stefán Daníelsson skipstjóri, 36 ára;
Signi. Sigmundsson stýrim., 25 ára;
Bjarni Ásmundsson frá Brekkulæk í
Húnavs., 22; Bjarni Sigurgeirsson frá
Fögrubrekku, 18; Einar Guðmunds-
son frá Brú í Stokkseyrarhr., 26;
Gestur Sv. Sveinsson, 27; Guðjón Jóa-
kimsson frá Selfossi, 20; Guðm. Daní-
elsson (bróðir skipstj.), 38; Guðm.
Steinsson, 29; Guðm. Guðmundsson,
frá Jaðri í Þykkvabæ, 24; Höskuldur
Jóakimsson frá Selfossi, 25; Jakob
Þorsteinsson úrHúnavs., 24; Jón Daní-
elsson (bróðir skipstj.), 30; Jón Guð-
mundsson, 28; Magnús Magnússon frá
Núpdalstungu, 22; Magnús Ingvars-
son, 34; Ölafur Jónsson, 43; Vilhj.
Guðmundsson frá Knútsborg, 39; Þor-
steinn Pjetursson, 33; Þorv. Daníels-
son, 46ogÞórarinn Guðmundsson, 58.
Skipstjóri lætur eftir sig ekkju og
4 börn, Jón Daníelsson 1 barn, J.
Guðmundsson konu og barn, G. Steins-
svo konu og barn, Þ. Guðmundsson
konuogbarn, V. Guðmundsson konu
og 5 börn, Þorv. Daníelsson konu og
4 börn.
Símskeyti
til „Lögrjettu“ frá R. B.
Khöfn 25. apríl: Englandsbanki
hefur lækkað vexti niður í 4°/o-
Guðm. Hannessyni veitt Reykja-
víkurlæknishjerað 19. þ. m:
Thorefjelagið hjelt aðalfund í dag.
Yaxandi ágóði. Fjelagsstjórninni veitt
umboð til að auka stofnfjeð upp í
milljón kr. og bæta manni í stjórn-
ina við tækifæri, ef til vill íslendingi.
Bókm.fjel. endurkaus formann sinn,
Þorvald Thoroddsen, og stjórn.
Frumvarp um irskt ráð verður lagt
fyrir þingið í Lundúnum 7. maí.
Khöfn 30. apríl: Rjettarpróf í gær
um Tryggvaslysið. Framburður Jen-
sens og Evensens mjög gagnstæður.
Raun að heyra það. Prófunum
verður haldið áfram.
Hlutaljelag nýstofnað með 1 millj.
kr. höfuðstól, tekur við verslun P. .1.
Thorsteinssons og Godthaab. A. T.
Möller með. Rekur verslun og fiski-
veiðar við Island, með undirdeildum
í Reykjavík, Hafnarfirði, Gerðum, á
Bíldudal, Vatneyri og Norðurfirði.
Höfn gerist í Viðey.
Konungshjónunum fagnað með
hátíðaviðhöfn í Kristjaníu.
Rússneska þingið samþykt stjórn-
arfrumvarp um nýliðaútboð, eftir
harða rimmu.
Leiðrjettiiig’.
Út af greinum, sem nýlega hafa
staðið í „Fjallkonunni" og „Ingólfl"
um yflrlýsinguna í 11. tölubl. „Lög-
rjettu“, skal þess getið, að yflrlýsingin
er ekki frá fjelaginu „Kára“. Það
fjelag hefur ekkert skift sjer af þessu
máli. Að jeg og nokkrir aðrir fje-
lagsmenn höfum skrifað undir yfir-
lýsinguna er alt annað mál. Á því
berum við ábyrgðina en ekki fjelagið.
Kaupmannahöfn 9. aprílmán. 1907,
Siqfús Blöndal
núverandi formaður „I<ára“.
Maiiualát.
2. f. m. andaðist Kristján Tómas-
son hreppstjóri á Þorbergsstöðum í
Laxárdal í Dalasýslu.
Aðfaranótt 27. f. m. andaðist hjer
í bænum Eyjólfur Eyjólfsson, skip-
stjóri á fiskiskipinu Haraldi. Hann
var nýlega kominn inn á skipinu stór-
meiddur af hreyfivjelinni, haíði verið
að fást við hana og brugðið kaðli
um handlegginn, en vjelin hljóp á
stað, að honum óvörum, og snerist
öfugt, kipti honum að sjer, muldi
allan handlegginn framan við ol-
boga og stórmeiddi hann víðar, þar
á meðal á hálsi. Eyjólfur var um
þrítugt, efnismaður og nýlega kvænt-
ur. Skipið átti hann sjálfur í ijelagi
við Kristinn kaupm. Magnússon og
tengdafóður sinn, Þórð Pjetursson í
Oddgeirsbæ.
Oliver T-wist
er hcimsfræg skáldsaga, eftir Charles Dickens. Hún
fæst nú í vandaðri ísl. þýðingu hjá bóksölum víðsvegar
um land alt. Góð, hentug og mátulega dýr tækifæris-
gjöf fyrir unga og fullorðna. Menn hafa sagtumNjálu,
að hvað oft sem þeir litu í hana, lærðu þeir eitthvað
af henni. Sama má segja um Oliver Tvist: hversu oft
sem hann er lesinn, finst nóg til íhugunar og þó til
skemtunar um leið.
ísland erlendiísi.
Khöfn 14. apríl: Um daginn var
mikil hátíð í konungl. landfræðisfje-
laginu hjer í bænum. Sendiherra
Bandaríkjanda afhenti prófessor Þor-
valdi Thoroddsen heiðurspening úr
gulli frá Landfræðisfjelaginu í New-
York. Hjelt sendiherrann ræðu á
ensku til próf. Þ. Th. og mintist á
hin miklu vísindalegu afreksverk hans
og hvílíkan sóma hann gerði ættjörðu
sinni íslandi. Þá talaði krónprinsinn
og þakkaði fyrir virðingu þá, sem Þ.
Th. hlotnaðist af hendi frægs erlends
visindafjelags, og sagði, að það væri
sómi fyrir landfræðisfjelagið í Höfn
(þar sem Þ. Th. er heiðursfjelagi) og
ríkið í heild sinni, að eiga slíkan vis-
indamann. Próf. Þ. Th. þakkaði fyrst
sendiherranum í ræðuáensku, ensíð-
an krónprinsinum ádönsku. Heiðurs-
peningurinn er úr fínasta gulli og er
öðrumegin mynd Daly’s, sem gaf
fje til að útbýta þessum verðlaunum,
en hinumegin er graflð nafn Þorv.
Thoroddsen og fagur sveigur umhverf-
is. Peningurinn er nærri því 3A úr
pundi að þyngd, og gullið í honum var
metið um 770krónur. Þorv. Th. hef-
ur nú fengið alls 5 heiðurspeninga úr
gulli.
Vestur-íslendingar hafa í kosninga-
hviðu, sem nýafstaðin er þar vestra, kom-
ið 2 ísl. þingmönnum inn í Manitóba-
þingið. Áður áttu þeir þar 1 þingmann,
Baldvin Baldvinsson ritstjóra, en nú fjell
bann í Gimlikjördæmi fyrir Sigtryggi
Jónassyni, fyrrum Lögbergs-ritstjóra. —
Hinn nýi þingmaðurinn er Thomas H.
Johnson, lögfræðingur, og náði hann
kosningu í Winnipeg.
Annars fóru kosningarnar svo, að
„conservatívar“, sem „Heimskr." fylgir
að málum og áður voru við völd, fengu
mikinn meirihluta í þinginu, en ísl. þing-
mennirnir eru þar báðir minnihlutamenn.
Heilsnliælis-gjaflr. Kristján læknir
Jónsson í Clinton í Bandaríkjunum hef-
ur gefið fjelaginu 200 kr., ogÞórðurGuð-
johnsen, fyrrum verslunarstjóri á Húsa-
vík, en nú búsetturí Lohals í Danmörku
100 kr.
Frá fjallatindum til fiskimiða.
Krabbe verkfræðingur er nú á
ferð austur í Mýrdal til þess að
skoða þar hafnarstæði, aðallega við
Dyrhólahey. Einnig á hann að
skoða svæðið milli Þjórsár og Öl-
vesár í sama skyni, og svo Þor-
lákshöfn. Áður hefur hann skoð-
að hafnarstæði í Vestmannaeyjum
og gert áætlun um bryggjugerð þar
handa vjelabátum og útbúnaði á
höfninni til þess að láta vjelabáta
liggja við.
Miltisbruni. Ur honum dráp-
ust á Reykjanesi 5 hestar og hund-
ar 5.—9. mars. Nýlega hafði og
drepist hestur úr honum í Kaldað-
arnesi’
Fálkinn tók enskan botnvörpung,
Myton frá Hull, 24. f. m. og fór
með hann til Vestmannaeyja. Sekt
60 pnd. sterl. (1080 kr.).
Leiðrjetting þessa hefur Lögr.
verið beðin fyrir: „Jóhannes Jósefsson
verslunarstjóri á Oddeyri hlaut fyrstu
verðlaun fyrir verðlaunaglímuna á Ak-
ureyri 2. f. m., en ekki J. J. öku-
maður, eins og getið var í Lögr. í f. m. “.