Lögrétta - 17.07.1907, Qupperneq 4
124
L0GRJETTA.
og snjórinn og alt, sem lauslegt var,
þyrlaðist upp í Ioftið. Annan fótinn
tók af keisaranum með öllu, en hinn
mölbrotnaði upp að mjöðm, hægri
höndin brotnaði bein fyrir bein, og
jafnvel hringirnir á hendinni lóru í
smámola; hann misti sjón á báðum
augum og annað augnalokið tók af
með öllu, fötin rifnuðu utan af honum
og tignarmerkin, sem hann bar, þyrl-
uðust víðsvegar; hann hafði og stórt
holsár á kviðnum. Hann fjell upp að
járngrindum við strætið og tók þar
um vinstri hendinni; ekki heyrðist
hljóð til hans, en varirnar bærðust,
eins og hann bæði fyrir sjer. Hálfri
annari stundu síðar biæddi honum til
ólífis. Þetta víg þótti hið versta, með
svo hroðalegum atburðum, og er þar
nú musteri mikið, sem hann fjell,
reist með allsherjar samskotum, því
að hann var ástsæll af almenningi
þegna sinna. — Einn af sonum þessa
keisara, Sergius stórfursti, var myrtur
í Moskva í fyrra vetur, nákvæmlega
með sama hætti og faðir hans.
Alexander hinn III. varð keisari
á Rússlandi eftir föðursinn, Alexander
II., allra manna mestur vexti og sterk-
astur sem þeir frændur margir, maður
fastlyndur og tortryggur og varð ni-
hilistum ilt við hann að fást. Þeir
sátu jafnan um líf hans, en hann hafði
varðhöid traust og ljet taka þá svo
hundruðum skifti, eða jafnvel þús-
undum, suma tók hann af lífi, eða
setti í dýflissu, eða rak til Síberíu
eða annara landa, og komust þeir
aldrei í færi við hann nema einu sinni.
Þá var keisarinn á ferð með drotn-
ingu sinni og lá lqið hans yfir brú
eina; brúin var sprengd í loft upp
meðan járnbrautarlestin var að renna
yfir hana; keisaravagninn var þá kom-
inn af brúnni, en þó brotnaði hann;
þegar veggir vagnklefana voru að síga
saman, þá er sagt, að keisarinn hafi
tekið drotninguna í fang sjer og sett
bakið við öðrum veggnum, en spyrnt
báðum fótum í hinn og sakaði þau
hvorugt. Þó segja sumir, að hann hafi
þá orðiðfyrir meiðslum, er drógu hann
til bana nokkrum árum síðar, en aðrir
segja, að hann hafi orðið hjartveikur
eða; taugaveiklaður af að búast við
dauða sínum á hverri stundu í mörg
ár, og hafi það dregið hann til dauða.
(Frh.)
Símskeyti
til „Lögrjettu“ frá R. B.
Khötn 12. júlí: Sæsímaslitið fyrir
norðan Hjaltland lagað í kvöld.
Keisarinn lagði á stað hjeðan til
Noregs 5. júlí.
Járnsteypa hrundi í Philadelphíu
og varð 40 mönnum að bana.
Loftfarsskáli Wellmans á Spits-
bergen hetur skemst í ofviðri.
Bandaríkjastjórn (N.-Am.) hefuraf-
ráðið að senda 16 herskip vestur í
Kyrrahaf; látið í veðri vaka, að það
sje gert í hertamningarerindum.
Stórþingið hefur hafnað með 63 :
60 atkv. nefndartillögu í móti stjórn-
inni um lögun á bökkum vatnsins
Mjörs.
Herman Trier lagt niður formensku
í bæjarstjórn Khainar. Tilefnið er
klofningur framfaraflokksins í spor-
brautamálinu. Misklíð í því máli
milli bæjarfulltrúa og borgmeistara
skotið til ráðaneytisins.
Frá fjallatindum til fiskimiða.
Nýtt hlað kemur upp á Eskifirði
í haust í stað Dagfara og verður rit-
stjóri þess Björn Jónsson frá Akur-
eyri, áður ritstj. Stefnis.
Efri hrautin þeirra Árnesinga
verður fjölfarnasta skemtibrautin á
landi hjer upp úr konungsreið. Með
austurfarar-„höfðingjunum“ síðast var
Guðmundur Hávarðsson, væntanleg-
ur konungs-ekill í sumar. Hann ók
einum mannflutningavagninum alla
leið í kring, upp að Geysi og niður
að Þjórsárbrú. Brú á Tungufljóti
verður beint undan Haukadal. Hvít-
árbrúin á Brúarhlöðum er undan Gýgj-
árhóli í eystri Tungunni. Brúarstæði
þar eitthvert hið fegursta. Frá Skip-
holti í Hreppum er kominn vel ak-
lær vegur niður að Laxá, þaðan all-
góður akvegur að Húsatóftaholti á
Skeiðum, en þá tekur Skeiðabrautin
við. Unnið er að vegabót fyrir of-
an Skipholt að brúnni, svo tært verði
með vagna. Svo er og verið að
ryðja Lyngdalsheiði. Hreppamenn
leggja fram einar 500 kr. til vega-
bótarinnar hjá sjer.
Grasleysi um land alt. Þurkar
og kuldar ómunalegir, og þó eink-
um vestanlands. Torfi í Ölafsdal,
sem hjer er staddur, kveður sprettu
vestur þar engu betri en mislinga-
sumarið 1882.
Heyhlöður, 12, eru Ölvesingar að
reisa sem stendur.
Skálarnir miklu á Þingvöllum og
við Geysi eru 54 og 5 5 álnir, milli
stafna, en Þingvallaskálinn er 24 álna
breiður, en hinn 13. Svefnklefar eru
fyrir 50—60 manns í hvorum. Kon-
ungshúsin eru 18 og 16 álna löng,
þau reist til frambúðar, en skálar til
rifs, og er þó eftirsjá að Þingvalla-
skála. Hann verður skurðskreyttur,
með fornum búningi. Stefán Eiríks-
son hefur gert öndvegi af miklum
hagleik og er konungi ætlað að sitja
í því í Þingvallaskálanum.
Reykjavík.
Oceana, þýska skemtiferðaskipið,
sem hingað kom í fyrra, kom hjer nú
aftur á laugardagsnóttina var og stóð
hjer við fram á næstu nótt. Með því
voru nær hálft fjórða hundrað ferða-
manna og voru þeir hjer í landi mestan
hluta dags. Skipið hjelt hjeðan til
Spitsbergen og Noregs.
Jón hlindi sagði hjer sögur, eins
og til stóð, á fimtudagskvöldið, fjekk
fult hús og sagðist vel. Mun hann
segja hjer sögur einhverntíma enn
áður hann fer.
Einar Hjörleifsson fór til Ameríku
í síðastl. viku.
Að anstan eru hjer komin með
Hólum 12. þ. m.: Þorvaldur Pálsson
Hornafjarðarlæknir, prestarnir Sig.
Sivertsen á Hofi, Jón Jónsson á Stafa-
felli og Pjetur Jónsson á Kálfáfells-
stað, frúrnar R. Thorlacius frá Bú-
landsnesi og Jósefína, kona jóh. Jó-
hannessonar sýslumanns á Seyðisfirði
Sláttuvjelar tvær voru reyndar í
lok búnaðarþingsins inni á túni Pjet-
urs kaupmanns Hjaltesteðs. Sturla
kaupmaður Jónsson fer með sölu á
þeirri, er „Herkúles" heitir, en Brynj-
ólfur kaupm. Bjarnason selur „Vík-
ing“. Báðum vanst vel. Dómnefnd
ljet uppi það álit, að vjelarnar slægju
svo jafnt, að munur yrði eigi á því
gerður; væru ljettar tveim hestum, en
einum of þungar til lengdar. Báðar
slá 1—ll/a þml. frá rót á sljettu,
hörðu túni. En gerðin á „Víking"
þótti dómnefndinni haganlegri, þótt
báðar vinni jafn vel.
Veðurathuganir í Reykjavík
eftir K. Zimsen.
Júlí 1907. | Klukkan 1 Loftvog millim. Hiti (Celsius) >- r-T- O O • g toCT PS 0 Veðrátta
10. 7 759-5 11.6 A I Alskýjað
I 760.0 14.5 NV 3 Regn
4 760.0 14.4 V 5 Hálfskýjað
IO 761.3 7.9 V 4 Alskýjað
II. 7 761.3 9-3 V 5 Skýjað
I 762.5 10.2 VNV 3 Hálfskýjað
4 762.8 11.4 VNV 4 Smáskýjað
IO 764.2 7.0 Logn O Skýlaust
12. 7 764.9 9-5 Logn O Smáskýjað
I 769.8 15.0 N 5 Hálfskýjað
4 769.5 14.8 N 5 Hálfskýjað
IO 765.2 IO. I Logu O Skýjað
13- 7 765.2 II.O ANA 5 Skýjað
I 764.6 17-5 ANA 4 Hálfskýjað
4 764.7 14.2 V 2 Alskýjað
IO 763.8 10.4 ASA 4 Móða
14. 7 759-0 10.5 A 4 Alskýjað
I 759-4 12.0 ASA 3 Regn
4 75«-i II.I A 3 Regn
IO 75«-2 11-5 A I Alskýjað
i5- 7 762.8 12.8 SSA 2 Alskýjað
I 768.3 15.2 S 3 Hálfskýjað
4 768.8 14.6 s 5 Smáskýjað
ÍO 771.2 10.0 A 2 Hálfskýjað
l6. 7 772.3 12.5 A 3 Alskýjað
I 772.1 19.0 A 5 Smáskýjað
4 771.9 19.4 ASA 5 Smáskýjað
IO 771.9 13-5 A 3 Skýjað
Meðalhiti í þessari viku -j- 12.53;
kl. 7 4-11.03; kl. 1 4" 1477;
kl. 4 14.27; kl. 10 4" 10.07.
Standard White,
dönsk (þrjár stjörnur),
ensk (þrjár stjörnur),
þýsk,
hentugustu og bestu olíu-
tegundir á mótora, olíu-
maskínur og lampa; hvergi
eins ódýrar í stórkaupum
og smásölu og
‘Ritstofa
og
afgreiðsla
móttökunefndar konungsfar-
arinnar er í Lækjargötu 14,
í Búnaðarfjelagshúsinu, og
er opin frá kl. 11—2 og 4—6.
Tapaður h.estur. Vekr-
ingur, grár, mark: bitifr. h. ogfjöðura.,
sýlt v., hefur tapast frá Skildinga-
nesi. Skilist til Magnúsar Vigfússonar.
Rautt koffort, merkt: frk.
Stefanía Jonsson, Sauðárkrók, tap-
aðist af Sterling á leið frá Reykjavík
til Sauðárkróks í síðustu terð skips-
ins norður um Iand. Skilist til St.
Jónssonar faktors á Sauðárkróki, eða
til ritstj. þessa blaðs.
Zil hjálpar berklaveikura
heldur „Hringurinn" Tombólu í Iðn-
aðarmannahúsinu sunnudaginn 21.júlí.
Allir góðir menn og konur eru beð-
in að styrkja þetta fyrirtæki með þvt
að koma á tombóluna og draga þar.
Marga góða muni verður þar að fá.
Nánara á götu-auglýsingum.
Stjórnin.
Bestu
OFNKOLIN,
sem til Reykjavíkur flytjast,
rr
eru
Fyrir nokkru kominn stór
farmur af þessum alþektu
góðu kolum, og ættu allir
að birgja sig upp til sum-
arsins á meðan verið er að
skipa þeim upp. Ressi kol
verða seld með sama verði
og kol annarstaðar hjer í
bænum.
Thomsens Magasín.
Heimboðsnefnd
alþingis
tekur á leigu duglega vagn-
hesta frá 22. júní til 12. á-
gúst. Menn gefi sig fram við
Axel Tulinius sýslumann,.
Lækjargötu 14, suðurenda.
Kenslubðk I Islendiiigasögu
með myndum,
kemur út í sumar eftir Bog Th. Mel-
steð. Hana má panta hjá skólastjóra
Morten Hansen í Reykjavík.
oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
o
o
o
Biöjið kaupmann yðar am
Edelstein, Olsen <fe Oo-
bestu <>t» ódýrustu
8
8
O
O
o
o
8
|
o
^OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Cfylinclerolíu,
Vjelaolíw,
Cunstvj elsií'eiti,
Þurkunartvist,
Karbólineum,
Tjöru o. fl., o. fl.
Prentsmiðjan Gutenberg.